Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Qupperneq 6

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Qupperneq 6
6 Hvað eru brothættar byggðir? ... byggðarlög sem búið hafa við langvarandi fólksfækkun Byggðamál Þetta­ er­ verkefni­ um­ samfélagsþróun­sem­ grundvölluð­ er­ á­ íbúalýðræði,“­ segja­ þau­ Sigríður­ K.­ Þorgrímsdóttir­ og­ Kristján­ Þ.­ Halldórsson,­ verkefnastjórar­ Brothættra byggða­hjá­Byggðastofnun.­ Í­ greiningu­ Byggðastofnunar­ á­ „byggðar- lögum­ sem­ búið­ hafa­ við­ langvarandi­ fólksfækkun“­ frá­2008­og­2012­ telst­um­ helmingur­sveitarfélaga­í­landinu­til­brot- hættra­byggða.­Þar­er­byggð­með­fólks- fækkun­sem­nemur­a.m.k.­15%­á­15­ára­ tímabili­ skilgreind­ sem­ brothætt­ byggð.­ Verkefnið­ Brothættar byggðir­ hófst­ á­ Raufarhöfn­en­Kristján­Þ.­Halldórsson­var­ ráðinn­ verkefnisstjóri­ í­ mars­ 2013.­ Verk- efnið­nær­í­dag­til­sjö­samfélaga,­Raufar- hafnar,­ Breiðdalshrepps,­ Skaftárhrepps,­ Bíldudals,­Kópaskers­og­nærsveita,­Gríms- eyjar­ og­ Hríseyjar,­ sjá­ nánar­ www.bygg- dastofnun.is/is/brothaettar-byggdir­ Ástæður þess að byrjað var á Raufarhöfn voru að aðstæður þar voru sérstaklega aðkallandi, yfir 50% fólksfækkun á fimmtán árum, hækkandi meðalaldur og samdráttur í atvinnulífinu. Mörg samfélög á Íslandi hafa liðið fyrir viðvarandi fólksfækkun en til þessa hefur ekki tekist að snúa vörn í sókn. „Með Brothættum byggðum er verið að þróa aðferð til að taka á vandanum í sam- starfi við íbúa hvers byggðarlags og við erum að leita leiða til að ná sem bestum árangri,“ segir Kristján. Sigríður kom að verkefninu með þekkingu úr greiningarvinnunni þar sem hennar hlut- verk var að heimsækja byggðirnar, hitta sveit- arstjóra og íbúa. „Það skiptir máli að hafa sjálf ekið ónýta vegi og upplifað lélegt net- og símasamband. Með þessum heimsóknum byggði ég bæði upp tengsl og öðlaðist þekk- ingu á stöðu mála í samfélögunum,“ segir Sigríður. Ný nálgun og þátttaka íbúa Aðspurð um hvort þau þekktu til svipaðra verkefni erlendis frá, kom fram að farið hafði verið í heimsókn til Noregs til að kynna sér þá aðferðafræði sem þar er beitt til að efla brot- hættar byggðir. „Í Noregi er áherslan á atvinnulífið og fyr- irtækin, okkar verkefni horfir meira til samfé- lagsins alls, leggur áherslu á að byggja upp jákvætt andrúmsloft, skapa umræðu og vinna með hugmyndir heimamanna um nýsköpun og samfélagsþróun,“ segja þau. Í aðdraganda verkefna er skipuð verkefnis- stjórn og í kjölfarið er haldið íbúaþing þar sem hugmyndavinna fer fram og lögð eru fyrstu drög að áherslum í verkefninu, sem síðan er unnið áfram með í stefnumótun- arvinnu og markmiðssetningu. Byggt á niður- stöðum þessarar vinnu er ráðinn verkefnis- stjóri sem vinnur áfram með heimamönnum að þróun hugmynda, hvort sem þær tengjast nýsköpun, umbótum á innviðum eða samfé- lagsþróun. Mikilvægt að þjálfa skapandi hugsun Sigríður og Kristján tóku þátt í tilraunakennslu á vinnustofum á vegum FIERE verkefnisins (www.fiereproject.eu) um nýsköpunarvirkni og samfélagsþróun í lok október á síðasta ári. Vinnustofan var skipulögð út frá þremur meginþáttum þ.e. sköpunarkrafti og nýsköp- un, greinandi hugsun og útsjónarsemi og að lokum leiðtogahæfni og seiglu. Sigríður K. Þorgrímsdóttir og Kristján Þ. Halldórsson, verkefnastjórar Brothættra byggða hjá Byggðastofnun. Hringurinn er skemmtilegt fundarform. Mál brothættrar byggðar rædd í Skaftárhreppi.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.