Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Blaðsíða 19
19
neshrepp, Garðahrepp og Hafnarfjörð. Til
þess þurfti þó samþykki yfirvalda landsins
sem ekki fékkst þegar til kastanna kom. Féll
þéttbýlið við Hafnarfjörð því undir undir hinn
nýja Garðahrepp. Íbúar við Hafnarfjörð gáf-
ust ekki upp og voru lög um kaupstaðar-
réttindi til handa Hafnfirðingum samþykkt á
Alþingi árið 1907 og tóku gildi 1. júní 1908.
Í janúar 2013 urðu aftur tímamót í sögu
Garðabæjar en þá sameinuðust hrepparnir
gömlu og grannarnir góðu, aftur formlega í
eitt sveitarfélag Garðahreppur og Bessastaða-
hreppur, þá sem Garðabær og Álftanes.
Alþingi fljótt til verka
Á árinu 1974 kom það fyrst til tals innan
hreppsnefndar Garðahrepps að sækja um
kaupstaðarréttindi. Garðahreppur var á þess-
um tíma langstærsti hreppur landsins, með
um 4.000 íbúa og í örum vexti. Umsókn
hreppsnefndar hlaut skjóta afgreiðslu á
Alþingi og voru lög, sem kváðu á um að
Garðahreppur skyldi öðlast kaupstaðarrétt-
indi, samþykkt þann 12. desember 1975 og
tóku gildi 1. janúar 1976 en þann 17. júní
2004 var nafni Bessastaðahrepps breytt í
Sveitarfélagið Álftanes.
Skifstofan
í kompu og án síma
Fyrstu sveitarstjórar Garðahrepps og síðar
Garðabæjar voru Þórður Reykdal og Ólafur
G. Einarsson er síðar varð alþingismaður og
ráðherra. Öll aðstaða var ólík því sem fólk á
að venjast í dag. Fyrsta hreppsskrifstofan var
í litlu herbergi í barnaskólanum. Þar var engin
sími og þurftu sveitarstjórarnir að fara í her-
bergi húsvarðarns sem var í kjallara skólans
ef þeir þurftu að hringja.
Nokkrum árum síðar eða 1961 var hrepps-
skrifstofan flutt í hús sem gekk undir nafninu
Strýtan og var við Goðatún og sex árum síðar
var aftur flutt og þá í hluta hússins Sveina-
tungu. Hreppurinn eignaðist síðar alla Sveina-
tungu og voru hrepps- og síðar bæjarskrif-
stofurnar þar í hartnær 30 ár þótt hluti starf-
seminnar hafi með árunum færst yfir í önnur
hús í bænum.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ.
Séð yfir Garðabæ. Vífilsstaðavegurinn liggur til austurs. Miðbær Garðabæjar er á vinstri hönd
en Hofsstaðabraut á þá hægri.