Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Blaðsíða 11

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2016, Blaðsíða 11
11 Dagur telur fullkomlega eðlilegt að sveitarfélögin fá gistináttagjald – gjald sem greitt er af hverri nótt sem gist er á gististað. Þetta er nákvæmlega eins og víðast hvar erlendis þar sem fólk greiðir svokallaðan „City tax“ ofan á gistiverðið. Með því væri hægt að tryggja sveitarfélögunum aukna möguleika til þess að standa undir því álagi sem mikil fjölgun ferðamanna skapar.“ Engin þversögn í uppbyggingu og velferð Dagur segir að skilningur á þessum málum sé að aukast og mikilvægt að ferðaþjónusta taki sem atvinnugrein undir þessar ábendingar. „Ég tel mikilvægt að íbúar í sveitarfélögum þurfi ekki að horfa upp á að takmarkað skattfé sé ekki notað til þess að sinna umhirðu og öðru sem tengist ferðaþjónustu með beinum hætti. Ef þessu verður ekki breytt geta þessi verkefni farið að keppa með beinum hætti við þá fjármuni sem fara til skólahalds eða þjónustu við fatlaða og eldri borgara sem þarf að standa vel að.“ Dagur kveðst ekki sjá neina þversögn í því að vera borg þar sem mikil uppbygging á sér stað og að vera velferðarborg. „Við verðum að muna að öflugt atvinnulíf og tekjur sem það skapar borginni er grundvöllur þess að reka góða skóla og öflugt velferðarkerfi sem við viljum hafa.“ Dagur bendir á að Reykjavíkurborg sé hlutfallslega með þyngra velferðarkerfi en nágrannasveitarfélögin. „Við erum með um talsvert hærri hlutfallsleg útgjöld vegna velferðarmála en nokkurt annað sveitarfé- lag. Hluti skýringarinnar er auðvitað sú stefna sem mörkuð hefur verið í velferðarmálum í borginnar – að við séum velferðarsam- félag.“ Erum stolt af hafnarsvæðinu „Nú er einnig verið að byggja hafnarstarf- semina upp. Að undanförnu hafa margir þrýst á bygginu íbúða og gistiaðstöðu á svæði gömlu hafnarinnar en við höfum stað- ið gegn því og sagt að við viljum efla hafn- sækna starfsemi,“ segir Dagur. „Við höfum einnig verið að leggja áherslu á menningu. Það tengist hugmyndum um skapandi grein- ar og skapar möguleika fyrir fólk, hvort sem það starfar hér á landi eða erlendis eða jafn- vel á fleiri en einum stað. Ef fólk þarf meiri þjónustu á þessu sviði þá leitar það til höfuð- borgarinnar. Við getum horft til Kaupmanna- hafnar í því sambandi þar sem blönduð byggð hafnarstarfsemi og aðstöðu fyrir skap- andi greinar hefur verið að þróast. Við erum ákaflega stolt af hafnarsvæðinu og leggjum áherslu á að það fái að njóta sín sem slíkt. Eins og ég sagði í upphafi verðum við að standa saman um spennandi atvinnufyrirtæki og möguleika til afþreyingar,“ segir Dagur B. Eggertsson. Hringhella 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími: 535 2550 • info@hafnarbakki.is • www.hafnarbakki.is Fjögurra salerna kerra frá Danfo. Salernishús „Octagon“ frá Danfo.Grunnteikning af 10 feta Schafy salernishúsi. 10 feta salernishús frá Schafy. Bjóðum salernis- og snyrtieiningar í ýmsum stærðum og útfærslum, með eða án baðaðstöðu. Þetta er tilvalin lausn þar sem þörf er á slíkri aðstöðu í lengri eða skemmri tíma. Aðilar í byggingariðnaði og verktakar eru sérstaklega ánægðir með þessar lausnir. Sveitarfélög og ferðaþjónustufyrirtæki nýta þau í ýmsum tilgangi, á torgum, tjaldsvæðum og öðrum útivistar- svæðum. Ýmsar gerðir salerna Hafið samband við ráðgjafa okkar í síma 535 2550 og fáið allar nánari upplýsingar. 43 0. 07 8/ 03 .1 6 „Tekjurnar voru ekki að fylgja þeim auknu útgjöldum sem samningarnir leiddu til, hvorki hjá Reykjavíkurborg eða öðrum sveitarfélögum.“

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.