Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Qupperneq 9

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Qupperneq 9
9 Karl­ Björnsson,­ framkvæmdastjóri­ Sam-bands­ íslenskra­ sveitarfélaga,­ ræddi­ samkomulag­ ríkis­ og­ sveitarfélaga­ um­ opinber­fjármál­á­landsþingi­sambandsins­ 8.­apríl­sl.­Hann­sagði­að­um­formlegt­og­ reglubundið­samstarf­væri­að­ræða­með­ sambandinu­ og­ sveitarfélögum­ um­ mót- un­ fjármálastefnu­ og­ fjármálaáætlunar.­ Samkomulagið­fæli­í­sér­niðurstöðu­sam- ráðs­ aðila­ og­ sameiginlegan­ skilning­ á­ markmiðum­ríkis­og­sveitarfélaga­í­opin- berum­ fjármálum.­ Gert­ er­ ráð­ fyrir­ að­ þróa­efni­og­framkvæmd­samkomulags­á­ samningstímanum­ til­ undirbúnings­ fyrir­ gerð­næsta­samkomulags­að­ári­en­stefnt­ er­ að­ því­ að­ samkomulag­ liggi­ fyrir­ í­ marsmánuði­ár­hvert. Samkomulag þetta er gert á grundvelli 11. gr. laga um opinber fjármál nr. 123/2015 þar sem segir að fjármála- og efnahagsráðherra og innanríkisráðherra annars vegar og Samband íslenskra sveitarfélaga hins vegar geri árlega með sér samkomulag. Undir- búningur fari fram á grundvelli tímasettrar aðgerðaáætlunar í febrúar og mars ár hvert. Að verkefninu hverju sinni komi óformlegur samráðshópur embættismanna ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga, samráðs- nefnd ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál, kjaramálaráð ríkis og sveitarfélaga, Jóns- messunefndin svokallaða, samráðsfundur sveitarfélaga og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Reglulegt og formegt samstarf sveitarfélaga og sambandsins Karl sagði í erindi sínu að forsendur og mark- mið samkomulagsins séu að hið opinbera skuli stuðla að góðri hagstjórn og styrkri og ábyrgri stjórn opinberra fjármála. Móta eigi heildstæða stefnumörkun í opinberum fjár- málum til lengri og skemmri tíma. Einnig að vandað verði til lagasetningar um fjármál opinberra aðila og að eftirlit með stjórn og ráðstöfun opinbers fjár, eigna og réttinda verði traust. Hann sagði að í forsendum samkomulagsins sé tekið fram að formlegt og reglubundið samstarf skuli vera með sam- bandinu og sveitarfélögum um mótun fjár- málastefnu og fjármálaáætlunar. Samkomu- lagið felur í sér niðurstöðu samráðs aðila og einnig sameiginlegan skilning á markmið- um ríkis og sveitarfélaga í opinberum fjármál- um. Fjárfestingaráform opinberra aðila auki ekki spennu Um efnahagslegar forsendur og hagstjórnar- leg markmið sagði Karl m.a. að núverandi efnahagsforsendur verði að skoða í ljósi margra ára samfellds hagvaxtartímabils á Íslandi og spár um vöxt fyrir komandi ár. Spenna sé nú á vinnumarkaði með hættu á að ósjálfbærar launahækkanir á hluta tíma- bilsins ógni stöðugleika. Forðast þurfi að fjár- festingaráform opinberra aðila auki spennu í efnahagskerfinu næstu ár. Sjálfbærni, varfærni og stöðugleiki Karl sagði aðila samkomulagsins sammála um afkomumarkmið sem byggja á grunngildum um sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi. Að heildarafkoma hins opinbera (A-hluta) verði jákvæð árin 2017 til 2021 og heildarafkoma A-hluta sveitarfélaga verði í jafnvægi og stuðli þannig að efnahagslegum stöðugleika. Heildarafkoma B-hluta sveitar- félaga verði einnig jákvæð, sbr. fyrirliggjandi áætlanir. Rekstur sveitarfélaga verði sjálf- bær. Skuldir þeirra sem hlutfall af VLF hækki ekki og stefnt að því að þær fari lækkandi. Rekstur sveitarfélaga verði innan varúðar- marka, tekjuáætlun þeirra verði varfærin, útgjaldaáætlun raunsæ og sveitarflög gangist ekki undir skuldbindingar sem raski forsend- um í rekstri og afkomu til lengri tíma. Karl Björnsson, framkvæmdastjóri sambandsins. Samkomulag­ríkis­og­sveitarfélaga­um­opinber­fjármál: Tekjustofnar sveitarfélaga verði skoðaðir Frá Landsþinginu. - Myndir: Ingibjörg Hinriksdóttir.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.