Sveitarstjórnarmál - 01.03.2016, Blaðsíða 19
19
Sveitarstjórnarmenn á Akureyri eru ósáttir við
þá ákvörðun Isavia að veita 30 milljarða króna
til framkvæmda á Keflavíkurflugvelli næstu
tvö árin. Þar af verður fjárfest þar fyrir 20
milljarða króna í ár og alls 40 milljarða á fjór-
um árum.
Framkvæmdir vegna nýs flughlaðs á
Akureyrarflugvelli hafa stöðvast þar sem
ekki hefur tekist að fjármagna frekari
framkvæmdir. Komið hefur fram að fjár-
magn í nýtt flughlað er ekki á sam-
gönguáætlun næstu fjögurra ára. Mikil
óánægja er líka á Austurlandi með að
ekki skuli ráðist í framkvæmdir við að stækka
og efla millilandaflugvöllinn á Egils-
stöðum.
Furðuleg ákvörðun
„Þetta er furðuleg ákvörðun. Við
getum fengið efnið úr Vaðlaheiðar-
göngunum mjög ódýrt í dag því við
þurfum einungis að greiða fyrir
flutninginn á því frá göngunum og
í flughlaðið. Ef beðið verður með
framkvæmdirnar verður mun dýrara fyrir ríkið
að stækka flughlaðið síðar,“ segir Logi Már
Einarsson, bæjarfulltrúi á Akureyri.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Ak-
ureyrarkaupstaðar, hefur látið hafa
eftir sér að „framkvæmdir á Akur-
eyrarflugvelli munu tryggja að við
höldum hér fjölda starfa í flug-
tengdri starfsemi, sem annars
gætu farið. Þær eru líka m.a.
forsenda þess að fjölga gáttum inn
í landið og dreifa erlendum ferða-
mönnum betur.“
Ísland að verða „uppselt“
Fram hefur komið í fréttum að víða um land
er nær ómögulegt að útvega ferðamönnum
gistingu yfir háannatímann. Sævar Skaptason,
framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda,
segir að á mörgum stöðum sé orðið fullbókað
á háannatímanum í júlí og ágúst. Staðan sé
erfiðust frá höfuðborgarsvæðinu að Höfn í
Hornafirði. „Suðurlandið er fullbókað og þá
kemst fólk hvorki austur né vestur,“ segir
Sævar.
Í Fréttablaðinu á dögunum sagði Skapti
Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi Samtaka aðila
í ferðaþjónustu, ljóst hvað þyrfti að gera:
„Stóra verkefnið okkar er að dreifa ferða-
mönnum betur um landið.“
Logi Már Einarsson bendir á að Isavia sé
í eigu ríkisins og eigi að þjóna hagsmunum
alls landsins. Til lengri tíma litið muni það
skapa ómælda erfiðleika að dreifa ekki ferða-
mannastraumnum betur um landið allt en nú
sé gert.
Gagnrýna misskiptingu fjármagns til flugvalla
Fréttir
Logi Már Einarsson.
Flughlaðið á Akureyrarflugvelli. Framkvæmdir við stækkun þess hafa nú stöðvast vegna þess að ekki fæst fjár-
magn til að flytja efnið úr Vaðlaheiðargöngum í flughlaðið. - Mynd: BB.
Meira en 70% vega í Dalabyggð eru malarvegir og engin áform eru um
umbætur samkvæmt samgönguáætlun 2015-2018 þrátt fyrir aukna
umferð ferðamanna.
Hlutfall malarvega mun einungis hærra í þremur sveitarfélögum hér
á landi. Umferð um Vesturland hefur aukist mikið á öllum árstíðum á
undanförnum árum og Snæfellsnes verður sífellt vinsælli áfangastaður.
Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Dalabyggð, sagði í viðtali við RÚV fyrir
skömmu að margir ferðamenn aki hringleið um Snæfellsnes til að fara
ekki sömu leið fram og til baka. Þá liggi leiðin um Skógarströnd, austur
frá Stykkishólmi sem þykir falleg en þar er malarvegur með einbreiðum
brúm og blindhæðum. „Þetta er stórhættuleg leið. Og maður skilur
ekki að hún eigi sér ekki stað í samgönguáætlunum. Það er ekki staf-
krókur um framkvæmdir á þessum malarvegum í Dalabyggð,“ sagði
Sveinn í umræddu viðtali.
Meira en 70% vega í Dalabyggð malarvegir
Malarvegur í Dalabyggð. Mynd. RÚV.