Muninn - 01.08.1906, Qupperneq 19
Reykjavík
er það ánægja, að tilkynna heiðruðum viðskipta-
mönnum sínum, að hún í vetur hefir látið stækka
búð sína svo, að hún sér nú fært að bæta við
mörgum nýum vörutegundum, sem t-Jiana
hefir vantað áður, t. d.:
álnavöru, prjónles, smíðatól, smærri járn-
vöru, leir- og glervöru
og margt fleira, og þar eð verslunin hefir útvegað
sér mjög góð sambönd með kaup á þessum vöruteg-
undum, vonast hún fastlega eftir, að þær fljótt náni
hylli fólks, ekki síður en þær vörutegundir, sem hún
hefur áðr verslað með.
Hinavinsælu|meginreglu verslunarinnar: „Að eins
að flytja vandaðar vörur, og selja þær
með svo vægu verði, sem frekast er unt“,
mun framvegis verða fylgt, jafnt með nýar og gaml-
ar vörutegundir, enda mun lengst af rætast hið
fornkveðna
að gott sé að versla í
Godthaab.