Bergmálið - 20.06.1916, Side 2

Bergmálið - 20.06.1916, Side 2
2 Bergmálið. i. tbl Með 9|s Goðafoss fékk verslun undirritaðs ýmsar vörur, sem mik- ið hefir verið spurt um. Par á meðal: Allskonar álnavöru og barnanærfatnað. Rauðan kandíssykur. Purkuð epli. Þurkuð kirsiber. Kvensvuntur. Stórt úrval af enskum húfum. Og ótal m. fl. Virðingarfylst. Halldói Jónasson. Mikið úrval af nærfatnaði, karlmannapeysum — drengjapeysum og drengjaprjónafötum kom nú með g/s >Goðafoss« í verslun Sig S/g- uiðssonai, Siglufirði. þá vöru. Margir gera sér líka góðar vonir um íslensku kolin handa okkur. Héyrst hefir að Englendingar hafi í hyggju að kaupa eða gera tilboð í allar eða mestallar matvörur, sem fluttar verða út frá Norðurlöndum. Og borga þær sæmilegu verði. Vilja þeir fyrirbyggja að Þjóðverjar nái í þær. Og þau skip, sem flytja vörur til Englendinga, geta fengið hjá þeim bæði kol og annað. (Meira.) Eftir hringferð um Evrópu. Ungur ameríkanskur blaðamaður, sem ferðast hefir um Evrópu, svaraði spurning- um hinna forvilnu félaga sinna, er hann kom heim til New-York, á þessa leið. „Bestur matur?" »í Wien og París." »Bestur söngleikur?« „í La Scala í Milano." „Viðkunnanlegasti staðurinn?* „Budapest.« •Hávaðasamasti staðurinn ?« »Lissabon.« »Hreinlegasti staðurinn?« »Berlín.< »Inndælast fólk ?« »í Wien.« »Fegurstar konur?« »í Pétursborg.* »Hryllilegasti viðburðurinn?« »Raksturinn á Hotel de Paris í Monte Carlo.« »Skrautlegastar konur?« „Ameríkanskar konurí Parísargistihúsinu.« •Fegurst myndastytta?« „Victor Emanuel styttan 1 Rómaborg.« • Hlægilegasta sýnin?< •Minnismerkið við Leipzig, sem reist var til minja um að 350,000 Pjóðverjar unnu sigur á 150,000 Frökkum.< »Yfirlætislausasta sýnin?« »Ungverska þingið við vinnu sína.« »Besta gestgjafahúsið?< » »La Reserve í Corniche við Marseille.« »Ánægjulegasta augnablikið?« »Pegar eg sá loftbátinn frá Sandy Hork koma á móti okkur við heimkomuna.« Pessa heims og annars. Það var háttað í himnaríki. Sankti Pétur var búinn að loka bænum og kominn inn í sitt herbergi. Hannbjóst ekki við fleirum þann daginn. Hann var að hugsa um hvað hann hefði mikið að gera og ætti oft andstætt. Honum datt í hug að heimta meira kaup þar sem alt væri orðið svo dýrt. En hann hætti við það. Hann komst af með það sem hann hafði. Og hann vissí að Herrann hefir í mörg horn að líta. »Og það sem eg gæti verið búinn að hafa upp úr »smúleríí«,« sagði hann við sjálfan sig. »Það hafa margir boðið mér laglegan skilding til þess eg hleypti þeim inn. En eg hef aldrei brotið lögin. Bækurnar sýna hverjir hafa aðgang. Eg fer eftir þeim en ekki mínum hagsmunum. Það fara að verða vandræði með rúm- föt hérna í himnaríki, þetta er sá ógnar- fjöldi, sem streymir hingað síðan stríðið byrjaði. En sem betur fer fær minni hlut- inn af því dóti aðgang. Þeir koma auð- vitað með dún sumir. En hann er svo dýr. Auðvitað er æðardúnn saman við og það er bót í máli.« Pétur var kominn úr utanhafnarfötunum. Þá heyrist barið. Pét- ur hlustar. Hann er nefnilega búinn að missa af heyrn. Aftur er barið og þá fast- ara. »Jú, sem eg er lifandi, þá er einhver kominn, Það eru Ijótu lætin. Eg verð að fara fram.< Hann smeygir sér í jakkanfl og gengur til dyranna. Úti fyrir var há og grönn sál í dökk- um hjúp. »Gott kvöld,« sagði sálin. Pétur var svo gramur að hann gengdi ekki kveðjunni. »Hvaðan ertu?« sagði hann. »Eg? Þekkirðu mig ekki?< »Nei. Hvað eiga þessar vífilengjur að þýða? Hvaðan ertu? Og hvað heitirðu?< »Eg er frá Návík.< »Návík,< át sankti Pétur eftir. »Já. Eg man eftir því eg sá þig, þegal þú gistir þar um árið.« »Nú kannast eg við þig,< sagði Pétur. »Þú varst að selja smárit.< »Jú. Jú. Þú vildir ekkert kaupa. Þú sagðir að það væri svo mikið af blöðurí og bókum í himnaríki. En eg er viss uií að þau eru ekki þar til.« »Um hvað eru þau rit ?< »Um áhrif síldarvinnunnar á mannlegaf líkama, með sálarfræðislegum athuga’ semdum eftir séra Kláus,«

x

Bergmálið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmálið
https://timarit.is/publication/1292

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.