Víkurfréttir - 10.05.2018, Síða 20
20 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 10. maí 2018 // 19. tbl. // 39. árg.
Enski landsliðsþjálfarinn stýrði
æfingabúðunum Keflavík Open
Keflavík Open æfinga-
mótið í taekwondo var
haldið í TM höllinni um
helgina. Á hverju vori
stendur taekwondo-deild
Keflavíkur fyrir æfinga-
búðum og æfingamóti
sem hefur notið mikilla vinsælda
síðustu ár. Í ár fékk deildin til sín
einn af reyndust þjálfurum Evr-
ópu, Stephen Jennings, aðalþjálfara
enska landsliðins í taekwondo, til
að stýra æfingabúðunum. Kefla-
vík Open var gífurleg vel sótt í ár,
alls tóku um 120 iðkendur þátt í
æfingabúðunum og þar af var um
20 manna hópur frá Skotlandi sem
kom sérstaklega til landsins til að
taka þátt í æfingabúðunum.
Ljósmyndir: Tryggvi Rúnarsson
Vinnum saman
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ stendur fyrir fjölskyldu-
degi, laugardaginn 12. maí milli kl. 15:00 og 17:00 við
kosningaskrifstofu flokksins að Hafnargötu 15.
Candy floss, hoppukastalar, andlitsmálning,
Dýrin í Hálsaskógi, hestar, pylsur og gos.
Hlökkum til að sjá ykkur. Vinnum saman og höfum gaman.
Minnum líka á mæðradagskaffið sunnudaginn 13. maí
milli kl. 15:00 og 17:00 á sama stað. Kaffi, kökur og kruðerí.
Fjölskyldudagur
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjanesbæ
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ
HEIÐARSKÓLI SIGRAÐI Í SKÓLAHREYSTI
Heiðarskóli í Reykjanesbæ sigraði í Skólahreysti í síðustu viku í úrslita-
keppninni sem fram fór í Laugardalshöll. Tólf skólar mættu til leiks en
auk Heiðarskóla keppti Holtaskóli frá Reykjanesbæ og voru þau tvö lið
frá Suðurnesjum.
Heiðarskóli sigraði keppnina með 60
stigum, Laugalækjaskóli varð annar
með 48,5 stig og Grunnskólinn á Hellu
var með 47,5 stig.
Frá árinu 2011 hafa skólar úr Reykja-
nesbæ verið ósigrandi að undanskildu
síðasta ári en Holtaskóli hefur sigrað
keppnina fimm sinnum frá upphafi
og Heiðarskóli með, þessum sigri,
þrisvar.