Morgunblaðið - 23.10.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.10.2017, Blaðsíða 8
8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2017 Ísland mætir Tékklandi í 3.umferð í undankeppni HM 2019 í knattspyrnu kvenna í Znojmo í Tékklandi á morgun. Fyrir leiki morgundagsins eru Ís- land, Tékkland og Þýskaland jöfn að stigum með 6 stig. Ísland getur tyllt sér á topp riðilsins með sigri í leiknum, en hætt er þó við því að Þýskaland lagi markatölu sína með stórsigri gegn Færeyinguum og hirði toppsætið fari svo að Ísland og Þýskaland vinni bæði sigur í leikjum sínum á morgun. Líkt og á föstudaginn var, þegar Ísland hafði betur gegn Þýskalandi, í fyrsta skipti í A- landsleik kvenna, þarf íslenska liðið að brjóta blað í sögu ís- lenskrar kvennaknattspyrnu þegar liðið mætir Tékklandi. Ísland og Tékkland hafa raunar bara mæst tvisvar, en það var í undankeppni HM 2007. Tékkland hafði betur á heimavelli í september árið 2006 með einu marki gegn engu. Tékkland bar svo sigur úr býtum, 4:2, þegar liðin mættust á Laugardalsvelli um það bil ári síðar. Þá skoruðu Ásthildur Helgadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir mörk Íslands. Ísland getur ekki reitt sig á markaskó þessara leikmanna á morgun, en sex leikmenn ís- lenska liðsins hafa verið á markaskónum það sem af er undankeppninni og því óþarfi að hafa áhyggjur af markaþurrð. Það er vonandi að leikmenn íslenska liðsins komi sér hratt og örugglega úr skýjunum eftir frá- bæran sigur gegn Þýskalandi og komi sér í þægilega stöðu fyrir framhaldið með góðum úrslitum gegn tékkneska liðinu. Það er draumur okkar allra að leikirnir gegn Tékklandi og Þýskalandi í septemberbyrjun á næsta ári verði upp á það hvort íslenska liðið verður meðal þátttökuþjóða í lokakeppninni í Frakklandi. BAKVÖRÐUR Hjörvar Ólafsson hjorvaro@mbl.is ENGLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Hrakfarir Gylfa Þórs Sigurðssonar og félaga í Everton virðast engan endi ætla að taka. Arsenal kom í heimsókn á Goodison Park í 9. um- ferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær og sá til þess að Everton tapaði þriðja heimaleiknum í röð og sat eft- ir í fallsæti. Arsenal var í stuði og skoraði fimm mörk gegn tveimur. Spurningin virðist ekki lengur hvort heldur hvenær Ronald Koem- an, knattspyrnustjóri liðsins, tekur pokann sinn og stjórnarmenn félags- ins leita annað. Dagurinn byrjaði þó vel fyrir Everton því Wayne Rooney skoraði á 12. mínútu. Arsenal svar- aði hins vegar með því að skora næstu fjögur mörk leiksins og skipti engu þótt Oumar Niasse minnkaði muninn í 4:2 í uppbótartíma. Arsenal átti síðasta höggið því Alexis Sánch- ez skoraði fimmta markið andar- tökum síðar. Gylfi lék allan leikinn en hafði hægt um sig. Hann hefur verið töluvert frá sínu besta í her- búðum félagsins. Arsenal fór upp í 5. sæti deildarinnar með sigrinum en Everton er í 18. sæti, sem er fallsæti, og í miklu basli. Liverpool átti ekki möguleika Ekki var dagurinn betri í hinum rauða hluta Liverpool. Lærisveinar Jürgens Klopps steinlágu fyrir frá- bæru liði Tottenham, 4:1, á Wem- bley. Liverpool er í 9. sæti eftir vonda byrjun á tímabilinu. Marka- vélin Harry Kane skoraði tvö marka Tottenham og hefur hann nú skorað 11 mörk í síðustu átta leikjum sínum fyrir Tottenham og enska landsliðið. Staðan var orðin 2:0 eftir aðeins 12 mínútur og var eftirleikurinn næsta auðveldur með sjóðheitan Kane í stuði. Með sigrinum jafnaði Totten- ham Manchester United að stigum í 2. og 3. sæti. United fór illa að ráði sínu gegn nýliðum Huddersfield á útivelli á laugardaginn og tapaði 2:1. Tapið var það fyrsta hjá United á leiktíðinni og fyrsta tapið gegn Huddersfield síðan 1952. „Þetta er áfall og ég er mjög hissa. Ég þarf að greina þetta,“ sagði pirraður Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Man- chester United. Dregið hefur af lið- inu í undanförnum leikjum eftir glæsilega byrjun. Grannarnir í Manchester City nýttu sér það vel og náðu fimm stiga forskoti á toppi deildarinnar. 11. sig- urleikur liðsins í röð kom á heima- velli gegn Jóhanni Berg Guðmunds- syni og félögum í Burnley á laugar- daginn, 3:0. City hefur skorað 28 mörk í síðustu átta leikjum sínum og er stórskemmtilegt að fylgjast með Pep Guardiola ná því besta úr góð- um leikmönnum liðins. Jóhann Berg kom inn á sem varamaður á 71. mín- útu í stöðunni 1:0. Chelsea komst aftur á sigurbraut í deildinni eftir tvo tapleiki í röð. Meistararnir fengu þá heimsókn frá skemmtilegu liði Watford og þurftu að hafa fyrir hlut- unum. Þegar 20 mínútur voru til leiksloka var staðan 2:1 fyrir Wat- ford. Varamaðurinn Michy Batshu- ayi tók hins vegar málin í sínar hendur, skoraði tvö mörk og lagði grunninn að góðum 4:2-sigri. Chelsea fór upp í 4. sæti deild- arinnar en Watford er í 6. sæti eftir góða byrjun. Hughes í hættusæti Newcastle, undir stjórn Rafa Benítez, hefur einnig farið vel af stað og er með 14 stig í 7. sæti eftir 1:0-heimasigur á Crystal Palace. Palace lagði Chelsea í síðasta leik en var ekki líklegt til afreka gegn nýlið- unum. Palace er á botninum með að- eins þrjú stig. Sæti Marks Hughes í stjórastól Stoke er orðið nokkuð heitt eftir 2:1-tap á heimavelli gegn Bournemouth. Stoke hefur aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum, en væntingarnar voru mun meiri fyrir tímabilið. Stoke er fyrir ofan fallsætið á markatölu, en Bournemouth er enn í 19. og næst- neðsta sæti með sjö stig. Leicester úr fallsæti Leicester kom sér upp úr fallsæti með 2:1-sigri á Swansea í fyrsta leik liðsins eftir að Craig Shakespeare var rekinn frá félaginu og South- ampton vann sinn annan sigur í síð- ustu átta leikjum er WBA kom í heimsókn. Stórglæsilegt mark vara- mannsins Sofianes Boufals undir lokin reyndist sigurmarkið. Bæði rauði og blái hluti Liverpool í miklum vanda  Liverpool og Everton fengu slæman skell  City náði fimm stiga forskoti AFP Óstöðvandi Harry Kane, framherjinn frábæri í liði Tottenham, skoraði tvö mörk gegn Liverpool í gær. Viktor Samúelsson og Elín Melgar Aðalheiðardóttir báru sigur úr být- um á bikarmótinu í klassískum kraftlyftingum, sem haldið var í World Class Kringlunni á laugar- daginn. Keppt var í hnébeygju, rétt- stöðulyftu og bekkpressu. Elín bætti Íslandsmetið í hnébeygju Viktor, sem er í Kraftlyftinga- félagi Akureyrar, var stigahæstur í karlaflokki með 449,51 Wilksstig. Hann vann -120 kg flokk er hann lyfti samanlagt 780 kg. Viktor lyfti 280 kg í hnébeygju, 200 kg í bekk- pressu og 300 kg í réttstöðulyftu. Hann varð stigahæstur í bekkpressu með 115,25 Wilksstig og réttstöðu- lyftu með 172,89 Wilksstig. Elín, sem er í Kraftlyftingafélagi Reykjavíkur, keppir í -63 kg flokki. Hún lyfti samanlagt 360 kg sem er jöfnun á núgildandi Íslandsmeti. Hún bætti Íslandsmetið í hnébeygju með 135 kg lyftu, tók 90 kg í bekk- pressu og 135 kg í réttstöðulyftu og fékk fyrir það 393,30 Wilksstig. Ein- ar Örn Guðnason, Kraftlyftinga- félagi Akraness, varð stigahæstur í hnébeygju með 162,0 Wilksstig en hann lyfti 270 kg í -105 kg flokki. Ell- en Ýr Jónsdóttir, Breiðabliki, setti nýtt Íslandsmet í hnébeygju í -84 kg flokki með 170,5 kg lyftu. Stiga- hæsta lið kvenna varð Kraftlyftinga- félag Reykjavíkur með 41 stig og stigahæsta lið karla varð Kraftlyft- ingafélag Akureyrar með 56 stig. johanningi@mbl.is Viktor og Elín sterkust í Kringlunni Staðan breyttist ekkert á toppi spænsku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla um helgina, en sjö efstu lið deild- arinnar unnu öll sigra í leikjum sínum. Barcelona sem trónir á toppi deildarinnar með 25 stig vann þægilegan 2-0-sigur gegn botnliði deildarinnar, Malaga, á laugardagskvöldið. Það voru Ger- ard Deulofeu og Andrés Initesta sem skoruðu mörk Barcelona sitt í hvorum hálfleiknum. Valencia sem situr í öðru sæti deildarinnar með 21 stig vann öruggan 4:0-sigur gegn Sevilla á laugardagskvöldið. Goncalo Gue- des skoraði tvö marka Valencia í leiknum og Simone Zaza og Santi Mina skoruðu síðan sitt markið hvor. Þá lagði Real Madrid sem er í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig Eibar að velli með þremur gegn engu í gærkvöldi. Paulo Oliveira varð fyrir því óláni að skora sjálfs- mark í upphafi leiksins og Marco Asensio og Marcelo bættu síðan við mörkum fyrir Real Madrid. Óbreytt staða á toppi deild- arinnar Andrés Iniesta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.