Morgunblaðið - 01.12.2017, Síða 1

Morgunblaðið - 01.12.2017, Síða 1
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2017 ÍÞRÓTTIR Danmörk Ómar Ingi Magnússon gengur til liðs við Aalborg næsta sumar. Aron Kristjánsson þjálfari ánægð- ur með liðsaukann og stöðuna á liðinu sem gengur vel í sterkum riðli Meistaradeildar Evrópu 4 Íþróttir mbl.is Birgir Leifur Hafþórsson lék í fyrrinótt fyrsta hring- inn á móti í Evrópumóta- röðinni í golfi í Queensland í Ástralíu á 74 höggum, tveimur höggum yfir pari. Þetta er fyrsta mótið á nýju tímabili en Birgir er nú með takmarkaðan keppnisrétt á mótaröðinni vegna árang- urs síns á Áskorendamóta- röðinni á þessu ári. Hann var í 107. sæti af 155 keppendum eftir hring- inn. Birgir lék annan hringinn á mótinu í nótt og sjá má gengi hans þar á mbl.is/sport. Birgir lék á 74 Birgir Leifur Hafþórsson Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods átti góða end- urkomu á golfvöllinn í gærkvöld en hann lék fyrsta hringinn á Hero World Challenge-mótinu á Bahamaeyjum á þremur höggum undir pari, 69 höggum. Tiger hefur glímt við þrálát bakmeiðsli og er að keppa á sínu fyrsta móti í 10 mánuði. Hann hefur ekki unnið mót frá því hann fagnaði sigri á heimsbikarmótinu 2013. Meira um hann í opnunni. »2-3 Tiger byrjaði vel Tiger Woods Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfu- knattleik, fékk í gærkvöld sinn lengsta spilatíma til þessa með Valencia í Evr- ópudeildinni. Hann lék þá í 9 mínútur þegar Spán- armeistararnir töpuðu á heimavelli, 64:72, fyrir toppliði deildarinnar, Olym- piacos frá Grikklandi. Tryggvi, sem skoraði 2 stig, tók 2 fráköst og varði eitt skot, hafði áður kom- ið við sögu í þremur leikjum í þessari sterk- ustu deild Evrópu og mest spilað í 6 mínútur. Lengsti til þessa Tryggvi Snær Hlinason Embla Kristínardóttir, landsliðskona í körfubolta, hefur sagt skilið við 1. deildar lið Grindavíkur. Þetta staðfesti hún við karfan.is. Ástæðan er ósætti hennar og Angelu Rodriguez, spilandi þjálf- ara Grindavíkur. Embla segir óvíst hvað taki við hjá sér en opnað verður fyrir félagaskipti í janúar. Hún hefur skorað 21,3 stig, tekið 12,4 fráköst og gefið 5 stoðsendingar að meðaltali í leik í 1. deildinni í vetur. sindris@mbl.is Ósátt og kveður Embla Kristínardóttir Alfreð Már Hjaltalín, knatt- spyrnumaður frá Ólafsvík, samdi í gær við Eyjamenn til tveggja ára. Alfreð er 23 ára bakvörður eða kant- maður og hefur leikið með Víkingi í Ólafsvík allan sinn feril. Hann er leikjahæsti leikmaður Ólafsvíkinga í efstu deild og hefur spilað 63 af 66 leikjum liðsins þar, m.a. alla 22 leikina á þessu ári. Þá hafa Eyjamenn samið við íranska fram- herjann Shahab Zahedi um að leika með þeim næstu þrjú árin. vs@mbl.is Alfreð fer til Eyja Alfreð Már Hjaltalín Valur gekk í gær frá samn- ingum við tvær knatt- spyrnukonur sem koma til félagsins frá KR. Það eru Guðrún Karitas Sigurðar- dóttir og Ásdís Karen Hall- dórsdóttir. Guðrún er 21 árs miðjumaður og lék áð- ur með Stjörnunni og ÍA. Hún hefur leikið 59 leiki í efstu deild og skorað í þeim 9 mörk. Ásdís er 18 ára framherji sem hefur leikið 45 leiki með KR í efstu deild og skorað 7 mörk en hún lék með U19 ára landsliðinu í ár. vs@mbl.is Frá KR til Vals Guðrún Karitas Sigurðardóttir Enska knattspyrnufélagið Reading hefur lánað varnarmanninn unga Axel Óskar Andrésson til enska E-deildarliðsins Torquay til áramóta. Axel er 19 ára, fastamaður í 21-árs lands- liði Íslands og hefur leikið með aðalliði Reading í deildabikarnum á þessu tímabili og verið í hópi liðs- ins í B-deildinni. Yfirmaður knattspyrnumála hjá Reading sagði við fot- bolti.net í gær að Axel myndi fara til liðs í C- eða D-deildinni eftir áramótin. vs@mbl.is Axel til Torquay Axel Óskar Andrésson Kristófer Páll Viðarsson, sóknarmaður úr Leikni á Fáskrúðsfirði, er búinn að semja við knattspyrnudeild Selfyssinga til þriggja ára. Kristófer, sem er tvítugur, hefur skorað 12 mörk fyrir Leikni í 1. deildinni undan- farin tvö ár og hefur leikið þar alla tíð en samdi hins- vegar við Víking R. fyrir tveimur árum og var lán- aður þaðan aftur til Leiknis. Hann hóf þó síð- asta tímabil sem lánsmaður hjá Fylki en sneri aftur til Leiknis í maí. vs@mbl.is Kristófer á Selfoss Kristófer Páll Viðarsson HM 2018 Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Draumur eða martröð? Rimma við Brasilíu í Moskvu eða glíma við Þjóð- verja í Sotsjí? Mæta Íslendingar Króötum enn einu sinni eða er komið að fyrsta landsleik Íslands og Ástr- alíu? Í dag, eftir kl. 15, fást svör við þessum spurningum og fleirum því þá ræðst hverjir verða andstæðingar Íslands í riðlakeppninni á HM karla í knattspyrnu í Rússlandi. FIFA tilkynnti í vikunni nákvæm- lega hvernig verður farið að því að draga í riðlana átta á HM. Sam- kvæmt því eru 24 „ferðamöguleikar“ í boði fyrir Ísland, allt eftir því í hvaða riðli liðið lendir og hvort það dregst í „hólf“ númer 2, 3 eða 4 í þeim riðli. Liðin úr 1. styrkleikaflokki fara í 1. hólf hvers riðils. Búið er að ákveða leikjadagskrá hvers „hólfs“ fyrir fram (þ.e.a.s. hvar og hvenær leikir liðs í viðkomandi hólfi verða). Þó að fátt sé hægt að segja um hvaða liðum Ísland mætir á HM er þó hægt að segja að sumar þjóðir eru líklegri en aðrar til að verða and- stæðingar strákanna okkar. Það er til dæmis mun líklegra að Ísland verði í riðli með Brasilíu en Serbíu, eins og nánar verður útskýrt hér að neðan. Liðunum 32 sem taka þátt hefur verið raðað í 4 styrkleikaflokka, og verður ein þjóð úr hverjum flokki dregin í hvern riðil, fyrst úr 1. flokki, svo 2. flokki, o.s.frv. Eina reglan sem við þetta bætist er sú að það mega í mesta lagi vera 2 Evrópuþjóðir í hverjum riðli, og í mesta lagi 1 þjóð frá hverju hinna álfusambandanna. Stærðfræðingurinn Julien Guyon hjá bandaríska fjölmiðlafyrirtækinu Bloomberg hefur út frá þessu til gamans reiknað út hverjir séu líkleg- ustu andstæðingar Íslands úr hverj- um styrkleikaflokki. Eftir 100.000 hermanir er niðurstaðan sú að líkleg- ast sé að Ísland dragist í riðil með Argentínu eða Brasilíu, Mexíkó og svo Marokkó eða Nígeríu. Ólíkleg- ast er að Ísland mæti Serbum sem eru eina Evrópuþjóðin úr styrk- leikaflokki fjögur, því ef Ísland yrði þegar búið að fá Evrópuþjóð í sinn riðil úr 1. eða 2. flokki mætti Serbía ekki lenda í riðli Íslands. Líklegast er að Ísland fái Mexíkó úr flokki tvö, þar sem aðrar þjóðir þar eru frá Evrópu eða Suður-Ameríku. Fyrrnefnd „álfuregla“ gerir sem sagt að verkum að líklegra er að Ís- land dragist til dæmis gegn Argent- ínu eða Brasilíu, en gegn Þýskalandi eða Portúgal. Meðfylgjandi mynd sýnir niðurstöður Guyons varðandi mögulega andstæðinga Íslands í riðlakeppninni. Smávægilegir hnökrar eru á niðurstöðunum, eins og til að mynda munurinn á líkunum á því að mæta Nígeríu eða Marokkó, sem ætti ekki að vera neinn, en það er vegna ónógs fjölda hermana. Þær gefa engu að síður góða mynd af stöðunni áður en stóra stundin renn- ur upp þegar dregið verður í Kreml í dag. Mexíkó líkleg- asti andstæð- ingurinn á HM  Ólíklegast að Ísland mæti Serbíu  Ferðamöguleikar Íslands eru 24 AFP Allt klárt Brasilíumaðurinn Cafu, Frakkinn Laurent Blanc, Rússinn Nikita Simonyan, Englendingurinn Gordon Banks, Ítalinn Fabio Cannavaro, Úrú- gvæinn Diego Forlán og Spánverjinn Carles Puyol munu hjálpa til við riðla- dráttinn fyrir HM við hátíðlega athöfn í Kremlín í Moskvu í dag. *Dregið verður í 8 riðla. Fyrst verður dregið úr styrkleikaflokki 1, svo flokki 2, flokki 3 og loks flokki 4. *Þjóðir frá sömu heimsálfu geta ekki lent saman í riðli, nema í tilviki Evrópuþjóða en að hámarki tvær Evrópuþjóðir geta lent saman í riðli. Ef til dæmis Úrúgvæ dregst í riðil með Brasilíu eða Argentínu, færist Úrúgvæ í næsta riðil. *Þjóðunum var raðað í flokka eftir styrkleikalista FIFA. Eina undantekningin er Rússland, gestgjafinn, sem sett var í flokk 1 og mun leika í A-riðli. Flokkur 1 Líkur % Flokkur 2 Líkur % Flokkur 3 Líkur % Flokkur 4 Líkur % Rússland 6,5 Spánn 7,2 Danmörk 0,0 Serbía 3,2 Þýskaland 11,2 Perú 17,4 Ísland 100,0 Nígería 17,8 Brasilía 18,5 Sviss 7,0 Kosta Ríka 0,0 Ástralía 12,8 Portúgal 11,3 England 7,1 Svíþjóð 0,0 Japan 12,7 Argentína 18,5 Kólumbía 17,3 Túnis 0,0 Marokkó 17,9 Belgía 11,3 Mexíkó 19,5 Egyptaland 0,0 Panama 10,5 Pólland 11,3 Úrúgvæ 17,4 Senegal 0,0 Suður-Kórea 12,6 Frakkland 11,4 Króatía 7,1 Íran 0,0 Sádí-Arabía 12,6 Líkurnar á að lenda í riðli Íslands á HM í Rússlandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.