Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 3
um þar sem ÍBV-vörnin virkaði eins
og hún á að gera. Þá varði Kolbeinn
Aron Arnarson, Eyjamaðurinn í
marki Aftureldingar, 23 skot í leikn-
um.
Það deilir enginn um það að lið sem
missir út Sigurberg Sveinsson, Theo-
dór Sigurbjörnsson og Aron Rafn
Eðvarðsson, allt leikmenn í lands-
liðsklassa, á leikdegi, spilar ekki á
fullri getu í leiknum. Það sem Eyja-
menn sýndu þó á köflum í sókninni
var liðinu ekki sæmandi.
Þrátt fyrir að þessir leikmenn hafi
ekki verið með, þá getur liðið spilað
betri handbolta, hópurinn er góður
og margir leikmenn í landsliðsklassa
eftir, þrátt fyrir að þessir þrír hafi
ekki getað spilað.
Það má þó ekki taka neitt af Mos-
fellingum, sem spiluðu einhverja
bestu vörn sem sést hefur í Vest-
mannaeyjum í langan tíma, allavega
þá bestu sem sést hefur á nýja gólf-
inu, allan leikinn. Afturelding hefur
nú unnið fimm af síðustu sex leikjum
sínum og nálgast því það lið sem allir
héldu að þeir væru, fyrir mót.
Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV,
mun eflaust ekki dvelja lengi við
þennan leik enda mikilvægt að klára
umferðirnar fyrir jól með sæmd. Ein-
ar Andri Einarsson, þjálfari Aftur-
eldingar, er eflaust himinlifandi og
vonandi fyrir hann heldur liðið áfram
að spila svona og safna stigum sem
skila liðinu nær toppi deildarinnar,
þar sem það á heima.
Sama stemning á Selfossi
Það er ekki hlaupið að því fyrir að-
komuliðin að ná dampi í stemning-
unni sem hefur verið á Selfossi í vet-
ur. Þetta fengu Stjörnumenn að
reyna í gærkvöldi, og þurftu að játa
sig sigraða, 31:26, gegn sterkum
heimamönnum og stuðningsmönnum
þeirra.
Heimamenn voru í hægagangi í
upphafi leiks en eftir tíu mínútna
upphitun settu þeir allt á fullt og rifu
sig frá gestunum. Munurinn var orð-
inn sex mörk í leikhléi, 16:10, eftir að
ungstirnið Haukur Þrastarson hafði
raðað inn mörkum fyrir þá vínrauðu.
Stjörnumenn voru allt of mistækir
í sókninni og töpuðu mörgum boltum.
Þess á milli náðu þeir að galopna Sel-
fossvörnina og Leó Snær Pétursson
nýtti sér það til að mynda vel og
smaug oft snyrtilega í gegnum gluf-
urnar.
Stjarnan mætti af meiri krafti í
seinni hálfleikinn og minnkaði mun-
inn fljótlega í 19:17. Þegar ellefu mín-
útur voru eftir af leiknum var staðan
22:20. Þá skildi aftur á milli og Sel-
fyssingar buðu upp á stjörnurúllun á
lokakaflanum. Lokatölur 31:26 en
Stjarnan skoraði tvö síðustu mörkin á
lokamínútu leiksins.
Eins og svo oft í vetur var frábært
að fylgjast Hauki Þrastarsyni í þess-
um leik. Hann átti frábært kvöld í
sókninni hjá Selfyssingum og það
sama má segja um Einar Sverrisson.
Einnig átti Hergeir Grímsson fínan
leik og lét finna vel fyrir sér í vörn-
inni.
Stjarnan átti mjög góða kafla en
þegar mest á reyndi kepptist liðið um
að gera klaufaleg mistök og náði því
aldrei að brúa bilið. Egill Magnússon
átti góðan leik fyrir Stjörnuna og
skoraði nokkur mjög góð mörk.
Davíð sá við Fjölnismönnum
Stórleikur Davíðs Svanssonar,
markvarðar Víkinga, lagði grunn-
inn að fyrsta sigri liðsins í Olís-
deild karla þegar Víkingar lögðu
Fjölnismenn, 27:23, í Dalhúsum.
Davíð lék afar vel, ekki síst í síðari
hálfleik þegar hann dró jafnt og
þétt teknnurnar úr Fjölnismönnum
sem gerðu sér vonir um að vinna
sinn annan leik í röð í deildinni .
Víkingar eru þar með komnir upp í
næstneðsta sæti deildarinnar með
fimm stig eins og Fjölnismenn.
Fjölnismenn voru heldur skárri
en gestirnir í fyrri hálfleik en því
miður var leikju beggja liða ekki
rismikill, sérstaklega þá í sókninni.
Eftir jafnar upphafsmínútur komst
Fjölnir yfir og náði um skeið
þriggja marka forskoti sem var
komið niður í eitt mark, 12:11, þeg-
ar flautað var til loka fyrri hluta
leiksins.
Víkingar voru hinsvegar miklu
ákveðnari í síðari hálfleik. Sókn-
arleikur þeirra var heilsteyptari en
heimamanna og varnarleikurinn
betri. Þá munaði mikið um mark-
vörslu Davíðs meðan Ingvar Krist-
inn Guðmundsson náði sér alls ekki
á strik í marki heimamanna.
Leikurinn var í heildina slakur
en Víkingar voru hinsvegar áhuga-
samari og viljugri. Ástæða er til
þess að óska Víkingum til ham-
ingju með þennan sigur. Eftir afar
erfiða leiki og skelli í mörgum
leikjum fram til þessa hefðuein-
hverjir þegar verið búnir að leggja
árar í bát.
Fjölnismen verða hinsvegar að
hugsa sinn gang. Þeir geta ekki
ætlast til þess að einn maður beri
leik þeirra upp og skori öll mörkin.
Fleiri verða að taka af skarið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Góður Bergvin Þór Gíslason var í lykilhlutverki hjá ÍR-ingum í gærkvöld og
skoraði 6 mörk. Hér sækir hann að vörn Hauka í Austurberginu.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2017
Vallaskóli Selfossi, Olísdeild karla,
fimmtudag 30. nóvember 2017.
Gangur leiksins: 1:3, 3:4, 6:4, 10:7,
13:9, 16:10, 17:13, 19:15, 21:18,
24:20, 28:23, 31:24, 31:26.
Mörk Selfoss: Einar Sverrisson 7,
Haukur Þrastarson 7, Hergeir
Grímsson 5, Atli Ævar Ingólfsson 5,
Teitur Örn Einarsson 4, Árni Steinn
Steinþórsson 2, Alexander Már Egan
1.
Varin skot: Helgi Hlynsson 8, Sölvi
Ólafsson 2.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Egill Magn-
ússon 8, Leó Snær Pétursson 6,
Sigurður Egill Karlsson 4, Aron
Dagur Pálsson 3, Garðar Bene-
dikt Sigurjónsson 3/2, Andri
Hjartar Grétarsson 1, Brynjar
Jökull Guðmundsson 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pét-
ursson 7/1, Lárus Gunnarsson 2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Sigurður H. Þrast-
arson og Svavar Ólafur Pét-
ursson.
Áhorfendur: 467.
Selfoss – Stjarnan 31:26
Dalhús, Olísdeild karla, fimmtudag
30. nóvember 2017.
Gangur leiksins: 2:2, 3:3, 6:5, 8:5,
9:8, 12:11, 14:14, 15:15, 16:19, 19:19,
21:23, 23:27.
Mörk Fjölnis: Kristján Örn Krist-
jánsson 9/1, Sveinn Þorgeirsson 4,
Sveinn Jóhannsson 3, Bjarki Lár-
usson 3, Breki Dagsson 2, Björgvin
Páll Rúnarsson 1, Andri Berg Har-
aldsson 1/1.
Varin skot: Ingvar Kristinn Guð-
mundsson 11/1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Víkings: Birgir Már Birgisson
6, Jón Hjálmarsson 5, Egidijus Mika-
lonis 4, Víglundur Jarl Þórsson 4/1,
Guðmundur Birgir Ægisson 4, Ægir
Hrafn Jónsson 2, Magnús Karl Magn-
ússon 1, Hlynur Óttarsson 1.
Varin skot: Davíð Hlíðdal Svansson
16/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Bjarki Bóasson og Ingvar
Guðjónsson.
Áhorfendur: 286.
Fjölnir – Víkingur 23:27
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Brauð og co-höll: Höttur – Þór Þ ........ 19.15
1. deild karla:
Ísafjörður: Vestri – Breiðablik............ 19.15
Dalhús: Fjölnir – Skallagrímur........... 19.15
Hveragerði: Hamar – ÍA ..................... 19.15
1. deild kvenna:
Kennaraháskóli: Ármann – Hamar ......... 20
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Valshöllin: Valur U – ÍBV U................ 19.30
Í KVÖLD!
Valshöllin, Olísdeild karla, fimmtudag
30. nóvember 2017.
Gangur leiksins: 2:1, 4:3, 6:5, 9:11,
10:13, 13:18, 16:19, 19:21, 21:27, 25:29,
27:32, 30:34, 33:35.
Mörk Vals: Anton Rúnarsson 11/2, Sti-
ven Tobar Valencia 6, Alexander Örn
Júlíusson 4, Magnús Óli Magnússon 4,
Ýmir Örn Gíslason 2, Sveinn Jose Ri-
vera 2, Ólafur Ægir Ólafsson 2, Ásgeir
Snær Vignisson 1, Ryuto Inage 1.
Varin skot: Sigurður Ingiberg Ólafs-
son 11/2, Einar Baldvin Baldvinsson
3/1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Gróttu: Júlíus Þórir Stef-
ánsson 10, Bjarni Ófeigur Valdimars-
son 9/2, Daði Laxdal Gautason 6/2,
Pétur Hauksson 4, Maximilian Jons-
son 2, Þórir Bjarni Traustason 2,
Hannes Grimm 1, Nökkvi Dan Elliða-
son 1.
Varin skot: Hreiðar Levý Guð-
mundssson 18.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Bóas Börkur Bóasson og
Hörður Aðalsteinsson.
Áhorfendur: 159.
Valur – Grótta 33:35
24 ára. Þeir voru því lítið meira en
unglingar þegar Woods sigraði síðast
á risamóti. „Ég held að Jordan hafi
enn verið með bleyju þegar ég byrjaði
í atvinnumennskunni árið 1996,“ sagði
Woods og bætti við: „Í fullkomnum
heimi þá myndi ég leyfa þeim að finna
hvernig mínum gömlu keppinautum
leið þegar þeir tókust á við mig á golf-
vellinum á árum áður.“
Keppir á Bahamaeyjum
Tiger Woods er á meðal keppenda
á PGA-móti sem hófst á Bahamaeyj-
um í gærkvöldi. Er það hans fyrsta
mót síðan í febrúar. Woods gætir þess
nú að vera ekki með of miklar yfirlýs-
ingar um hvort hann nái nógu góðri
heilsu til að spila af fullum krafti sem
atvinnumaður.
„Ég þarf meiri tíma til að átta mig á
því. Ég er nú búinn að æfa í mánuð og
þarf lengri tíma til að meta stöðuna.“
FH-ingar eiga fyrir höndum afar
krefjandi en spennandi verkefni tak-
ist þeim að komast áfram í riðla-
keppni EHF-bikars karla í hand-
bolta. FH er 24:21 undir í einvígi sínu
við Tatran Presov frá Slóvakíu en
liðin mætast í seinni leik sínum í
Kaplakrika á morgun. Liðið sem
kemst áfram leikur í riðlakeppni
mótsins frá 10. febrúar til 1. apríl, og
í gær varð ljóst hvernig riðlarnir líta
út.
FH eða Tatran Presov mun leika í
riðli með SKA Minsk frá Hvíta-
Rússlandi, Bjerringbro-Silkeborg frá
Danmörku og Magdeburg frá Þýska-
landi. Minsk var í efsta styrk-
leikaflokki og er annað af bestu lið-
um Hvíta-Rússlands, og sigurvegari
Áskorendabikarsins árið 2013. Bjerr-
ingbro-Silkeborg er í 3. sæti dönsku
úrvalsdeildarinnar, tveimur stigum
frá toppnum, og komst í 16-liða úrslit
Meistaradeildar Evrópu á síðustu
leiktíð. Magdeburg, sem er í 7. sæti
þýsku 1. deildarinnar, endaði svo í 3.
sæti EHF-bikarsins á síðustu leiktíð.
Leikið er í fjórum riðlum um að
komast í 8-liða úrslit keppninnar.
sindris@mbl.is
FH-ingar fengju leiki við
bronsliðið og fleiri góð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Erfitt Einar Rafn Eiðsson og félagar
í FH fá leiki við hörkugóða mótherja
takist þeim að slá út Tatran Presov.
Knattspyrnumaðurinn Björn Berg-
mann Sigurðarson, framherji Molde,
er í úrvalsliði norska dagblaðsins Ver-
dens Gang, fyrir frammistöðu sína á
nýliðinni leiktíð. Björn skoraði 16 mörk
í norsku deildinni en Molde hafnaði í 2.
sæti. Aðeins Nicklas Bendtner og Ohi
Omoiuanfo skoruðu meira en Björn á
leiktíðinni. Björn var sex sinnum í liði
umferðarinnar hjá miðlinum og fékk
meðaleinkunnina 5,8 en hæsta ein-
kunn er 10. Aðeins Samuel Adeg-
benro, leikmaður Rosenborg, var með
hærri meðaleinkunn eða 6,04.
Ólafur Andrés
Guðmundsson,
fyrirliði Svíþjóð-
armeistara Kristi-
anstad í hand-
knattleik, er í liði
nóvembermán-
aðar sem valið er
af fulltrúum
heimasíðu sænsku
úrvalsdeildarinnar. Þótt Ólafur hafi
leikið afar vel með Kristianstad þá er
þetta í fyrsta sinn á keppnistímabilinu
sem hann hlýtur náð fyrir augum
þeirra sem velja úrvalslið hvers mán-
aðar.
Betri sveit Íslands af tveimur í
kvennaflokki var í 40. sæti eftir fyrri
keppnisdaginn í þrímenningi á heims-
meistaramótinu í keilu í Las Vegas en
honum lauk í fyrrinótt að íslenskum
tíma. Sveitina skipa Katrín Fjóla
Bragadóttir, Linda Hrönn Magn-
úsdóttir og Dagný Edda Þórisdóttir. Í
karlaflokki er betri sveit Íslands í 27.
sæti en hana skipa Gunnar Þór Ás-
geirsson, Gústaf Smári Björnsson og
Skúli Freyr Sigurðsson.
Spænski miðjumaðurinn David
Silva skrifaði í gær undir nýjan samn-
ing við enska knattspyrnufélagið Man-
chester City. Silva er nú samnings-
bundinn Manchester-liðinu til ársins
2020 en þessi 31 árs gamli Spánverji
kom til liðsins árið 2010 og hefur
tvisvar orðið Englandsmeistari með
félaginu.
Kristinn Freyr Sigurðsson mun
ekki ganga í raðir FH eftir að samn-
ingaviðræður slitnuðu á milli hans og
Hafnarfjarðarfélagsins. 433.is greinir
frá því að viðræðurnar hafi verið langt
komnar. Miðjumaðurinn er á heimleið
eftir eitt tímabil með Sundsvall í Sví-
þjóð. Hann lék með Val í fimm ár, áður
en hann fór utan og hefur ver-
ið að æfa með Íslandsmeist-
urunum að und-
anförnu. Það
verður því að
teljast lík-
legt að
Kristinn
gangi aftur í
raðir Vals. Kristinn var
valinn besti leikmaður
Pepsi-deildarinnar í knatt-
spyrnu árið 2016 og fór til
Sundsvall í kjölfarið.
Eitt
ogannað