Morgunblaðið - 01.12.2017, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2017
Ítalía
Bikarkeppnin, 32-liða úrslit:
Udinese – Perugia ................................... 8:3
Emil Hallfreðsson lék ekki með Udinese
vegna meiðsla.
Sviss
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Lugano – Grasshoppers .......... 0:0 (1:3 víti)
Rúnar Már Sigurjónsson lék ekki með
Grasshoppers vegna meiðsla.
Grikkland
Bikarkeppnin, riðlakeppni:
Kalliteha – AEK Aþena .......................... 2:3
Arnór Ingvi Traustason var ekki í leik-
mannahópi AEK.
Spánn
Bikarinn, 32-liða, seinni leikir:
Alavés – Getafe......................................... 3:0
Alavés áfram, 4:0 samanlagt.
Espanyol – Tenerife................................. 3:2
Espanyol áfram, 3:2 samanlagt.
Villarreal – Ponferradina ........................ 3:0
Villarreal áfram, 3:1 samanlagt.
Real Betis – Cadiz .................................... 3:5
Cadiz áfram, 6:5 samanlagt.
Valencia – Zaragoza ................................. 4:1
Valencia áfram, 6:1 samanlagt.
England
Leikir í fyrrakvöld sem var ekki lokið þeg-
ar blaðið fór í prentun:
Bournemouth – Burnley......................... 1:2
Jóhann Berg Guðmundsson lék allan
leikinn með Burnley og lagði upp mark.
Everton – West Ham ............................... 4:0
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
með Everton og lagði upp mark.
Arsenal – Huddersfield ........................... 5:0
Chelsea – Swansea ................................... 1:0
Manchester City – Southampton............ 2:1
Stoke – Liverpool ..................................... 0:3
KNATTSPYRNA
Olísdeild karla
ÍBV – Afturelding ................................ 19:25
Selfoss – Stjarnan................................. 31:26
Valur – Grótta....................................... 33:35
ÍR – Haukar.......................................... 24:23
Fjölnir – Víkingur ................................ 23:27
Staðan:
FH 12 10 0 2 399:313 20
Haukar 12 8 1 3 339:295 17
Valur 12 8 1 3 322:312 17
ÍBV 11 7 2 2 307:295 16
Selfoss 12 8 0 4 345:321 16
Stjarnan 11 4 3 4 299:297 11
Afturelding 12 5 1 6 318:322 11
ÍR 12 5 0 7 324:312 10
Fram 12 3 2 7 336:377 8
Grótta 12 3 0 9 305:326 6
Víkingur 12 1 3 8 290:356 5
Fjölnir 12 1 3 8 303:361 5
Frakkland
Nantes – Nimes ................................... 33:25
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði ekki
fyrir Nimes.
HANDBOLTI
1. deild karla
FSu – Snæfell ..................................... 98:102
Staðan:
Skallagrímur 9 8 1 909:784 16
Snæfell 10 7 3 1006:945 14
Breiðablik 9 7 2 817:710 14
Vestri 8 5 3 715:698 10
Hamar 8 5 3 728:724 10
Fjölnir 9 5 4 746:778 10
Gnúpverjar 9 2 7 788:863 4
FSu 10 1 9 848:922 2
ÍA 8 0 8 598:731 0
1. deild kvenna
KR – Ármann........................................ 76:40
Staðan:
KR 8 8 0 706:408 16
Grindavík 10 7 3 725:652 14
Fjölnir 8 6 2 580:469 12
Þór Ak. 8 5 3 561:522 10
ÍR 7 2 5 350:472 4
Hamar 9 1 8 487:620 2
Ármann 8 0 8 343:609 0
Evrópudeildin
Valencia – Olympiacos ....................... 64:72
Tryggvi Snær Hlinason lék í 9 mínútur
með Valencia, skoraði 2 stig, tók 2 fráköst
og varði eitt skot.
NBA-deildin
Detroit – Phoenix ............................. 131:107
Orlando – Oklahoma City ................ 121:108
Philadelphia – Washington.............. 118:113
New York – Miami ............................. 115:86
Toronto – Charlotte ......................... 126:113
Houston – Indiana.............................. 118:97
New Orleans – Minnesota ............... 102:120
Dallas – New Jersey......................... 104:109
San Antonio – Memphis..................... 104:95
LA Lakers – Golden State .......(frl.) 123:127
KÖRFUBOLTI
mundsson átti auk þess stórleik í
markinu, varði 18 skot og lagði upp
ófá mörkin á Júlíus Þóri Stefánsson
sem skoraði tíu mörk í vinstra horn-
inu, flest úr hraðaupphlaupum. Daði
Laxdal Gautason stýrði sóknarleik
Gróttu með miklum sóma og leikur
Gróttu var heilsteyptur og öruggur.
Hinum megin vantaði margt og
mikið og komu t.a.m. aðeins tvö mörk
úr hægri skyttustöðunni. Ólafur Æg-
ir Ólafsson fór hægt af stað og Árni
Þór Sigtryggsson var arfaslakur er
hann leysti félaga sinn af. Hann tók
tæplega tíu skot í leiknum og varði
Hreiðar Levý hvert eitt og einasta og
virtist hafa lítið fyrir því. Árni verður
að teljast ein stærstu vonbrigði deild-
arinnar til þessa, enda atvinnumaður
til margra ára. Það var búist við
miklu meira frá honum.
Valsmenn hafa nú tapað tveimur
leikjum í röð og verða að hugsa sinn
gang á meðan Gróttan er öll að koma
til, með þrjá sigra í síðustu fjórum
leikjum eftir mjög erfiða byrjun og
komin úr fallsæti.
Dísætt og verðskuldað hjá ÍR
ÍR-ingar unnu dísætan baráttu-
sigur á Haukum í Austurbergi, 24:23,
þar sem Daníel Ingi Guðmundsson
skoraði sigurmarkið úr vítakasti sjö
sekúndum fyrir leikslok. Sigurinn var
fyllilega verðskuldaður enda hafði ÍR
yfirhöndina nánast allan leikinn, þó
að forskotið yrði aldrei mikið, og
sýndi aðdáunarverða liðsbaráttu í
varnarleiknum. Sóknarleikurinn
Í HÖLLUNUM
Jóhann Ingi Hafþórsson
Guðmundur Tómas Sigfússon
Sindri Sverrisson
Guðmundur Karl Sigurdórsson
Ívar Benediktsson
Gróttumenn sýndu hvað í þeim býr er
þeir heimsóttu Íslandsmeistara Vals
á Hlíðarenda í 12. umferð Olísdeildar
karla í handbolta í gærkvöldi og unnu
sanngjarnan 35:33-sigur. Eftir jafna
byrjun komst Grótta yfir í fyrsta
skipti í stöðunni 8:7 á 18. mínútu og
náðu Valsmenn aldrei að jafna leikinn
eftir það. Fáir áttu von á því að
Gróttumenn ættu möguleika á útivelli
gegn meisturunum enda skildu átta
sæti og 13 stig liðin að þegar flautað
var til leiks. Bjarni Ófeigur Valdi-
marsson skoraði níu mörk í leiknum
og var besti Valsmaðurinn á vell-
inum. Hann er á láni hjá Gróttu, frá
Val og ljóst að hann vildi sanna sig
fyrir þjálfarateymi heimamanna. Svo
virtist sem leikmenn Vals hefðu ekki
sama áhuga á því. Algjört andleysi
einkenndi liðið, fyrir framan fáa
stuðningsmenn. Það var helst ein-
staklingsframtak Antons Rúnars-
sonar og góð nýting hins 17 ára
gamla Stiven Tobar Valencia sem
héldu Valsmönnum í leiknum.
Það dugði hins vegar skammt gegn
gestunum sem seldu sig dýrt frá
fyrstu mínútu. Hvað eftir annað
fundu sprækir sóknarmenn Gróttu
risastór göt á vörn Valsmanna og
nýttu sér það vel. Hreiðar Levý Guð-
gekk einnig vel þar sem Bergvin þór
Gíslason, Sveinn Andri Sveinsson og
afmælisbarnið Elías Bóasson léku
vel, sér í lagi Sveinn Andri sem fór
stundum illa með vörn Hauka og
krækti í vítakastið mikilvæga í lokin.
Það má segja að það sé hálfgert
ólán í láni fyrir Hauka að hafa lánað
ÍR-ingum Grétar Ara Guðjónsson en
hann varði vel í leiknum og vann „ein-
vígið“ við Björgvin Pál Gústavsson
sem hefur ekki náð sér á strik í allra
síðustu leikjum.
ÍR-ingar eiga eftir leiki við tvö af
þremur neðstu liðum deildarinnar,
Gróttu og Víking, áður en jólafríið
tekur við og hafa alla burði til að fara
í fríið í góðri stöðu um miðja deild.
Þeir hafa sýnt að þeir geta staðið
bestu liðum deildarinnar snúninginn
og ekki misstigið sig gegn lökustu lið-
unum.
Haukar sáu á eftir mikilvægum
stigum í toppbaráttu deildarinnar og
sýndu aftur hve brothættir þeir geta
hreinlega verið. Eitt helsta einkenni
þeirra um árabil, stöðugleiki, virðist
fyrir löngu hafa glatast. Gæðin í lið-
inu í dag eru ekki næg til að það geti
leyft sér að vera „lengi í gang“.
Góð ferð Aftureldingar til Eyja
Afturelding lagði vængbrotið lið
ÍBV að velli, 25:19, í Eyjum í gær-
kvöld Með sigri hefði ÍBV getað lyft
sér á topp deildarinnar en sökum for-
falla þriggja manna á leikdegi litu
heimamenn aldrei út fyrir að geta
lyft sér á toppinn.
Afturelding drap niður sóknarleik
ÍBV frá fyrstu mínútu til þeirrar síð-
ustu og virkuðu þeir alltaf eiga svörin
gegn vörn ÍBV á hinum endanum,
fyrir utan nokkra stutta kafla í leikn-
Grótta
flaug úr
fallsætinu
Valur, Haukar og ÍBV töpuðu öll
Besti Valsarinn var í Gróttubúningi
Morgunblaðið/Hari
Heimavöllur Bjarni Ófeigur Valdimarsson er Valsmaður en í láni hjá Gróttu.
Hann fór illa með sitt félag og skoraði 9 mörk fyrir Gróttu.
Vestmannaeyjar, Olísdeild karla,
fimmtudag 30. nóvember 2017.
Gangur leiksins: 1:1, 2:3, 3:5, 4:7,
5:9, 7:10, 8:12, 11:14, 12:16, 14:19,
16:21, 18:25, 19:25.
Mörk ÍBV: Agnar Smári Jónsson 6,
Kári Kristján Kristjánsson 5/1,
Daníel Griffin 2, Róbert Aron Hos-
tert 2, Dagur Arnarsson 2, Grétar
Þór Eyþórsson 1, Ágúst Emil Grét-
arsson 1.
Varin skot: Stephen Nielsen 14.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Aftureldingar: Árni Bragi Eyj-
ólfsson 9/4, Einar Ingi Hrafnsson
4, Elvar Ásgeirsson 4, Kristinn
Hrannar Bjarkason 3, Gunnar
Kristinn Þórsson 2, Böðvar Páll Ás-
geirsson 1, Ernir Hrafn Arnarson 1,
Mikk Pinnonen 1.
Varin skot: Kolbeinn Aron Ingi-
bjargarson 23.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Bjarni Viggósson og Jón
Karl Björnsson.
Áhorfendur: 450.
ÍBV – Afturelding 19:25
Austurberg, Olísdeild karla, fimmtu-
dag 30. nóvember 2017.
Gangur leiksins: 3:2, 6:5, 9:8, 10:10,
12:11, 15:13, 15:15, 18:17, 19:17,
20:19, 21:21, 24:23.
Mörk ÍR: Bergvin Þór Gíslason 6,
Sveinn Andri Sveinsson 5, Daníel
Ingi Guðmundsson 4/3, Sturla Ás-
geirsson 3, Elías Bóasson 3, Kristján
Orri Jóhannsson 2, Úlfur Kjartansson
1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson
15.
Utan vallar: 12 mínútur
Mörk Hauka: Hákon Daði Styrm-
isson 4/2, Pétur Pálsson 4, Daníel
Þór Ingason 3, Atli Már Báruson 3,
Leonharð Þorgeir Harðarson 3,
Adam Haukur Baumruk 2, Halldór
Ingi Jónasson 2, Heimir Óli Heim-
isson 1, Brynjólfur Snær Brynjólfsson
1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson
11.
Utan vallar: 12 mínútur
Dómarar: Ramunas Mikalonis og
Þorleifur Árni Björnsson.
Áhorfendur: 280.
ÍR – Haukar 24:23
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Næstsigursælasti kylfingur allra
tíma, Tiger Woods, þarf ekki að sanna
fyrir heiminum að hann kunni sitt
hvað fyrir sér í golfi en hann virðist
nú vera kominn með hvatningu sem
er ný af nálinni.
Eftir að hafa fjórtán sinnum fagnað
sigrum á risamótum á árabilinu 1997-
2008 þá hafa síðustu ár verið lituð af
meiðslum hjá Woods sem er fertugur
að aldri. Hefur hann farið í fjórar að-
gerðir vegna bakmeiðsla og hafði áð-
ur farið í aðgerð vegna hnémeiðsla.
Fer þeim fækkandi sem telja að Wo-
ods hafi líkamlega burði til þess að
keppa við bestu kylfinga heims á nýj-
an leik eftir allt sem á undan er geng-
ið.
Litlar eða engar minningar
Skemmtileg ummæli voru höfð eftir
Woods í tímaritinu Gold Digest á dög-
unum. Hann benti á að börnin hans
tvö væru 10 og 8 ára. Þau eiga því
engar eða litlar minningar um föður
sinn fara á kostum á golfvellinum.
Síðast sigraði Woods á golfmóti árið
2013 og þá voru þau 6 og 4 ára.
„Ég held að börnin mín geri sér
ekki grein fyrir því hvers ég er megn-
ugur á golfvellinum því þau líta á mig
sem Youtube-kylfinginn. Þau hafa í
raun aldrei séð mig keppa þegar ég er
upp á mitt besta,“ sagði Woods.
Þess má einnig geta að tveir af
snjöllustu kylfingum Bandaríkjanna,
Jordan Spieth og Justin Thomas, eru
Þekkja föðurinn sem
afreksmann vegna Youtube
AFP
Endurkoma Tiger Woods er við keppni á Bahamaeyjum sem stendur.