Morgunblaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2018 7 Útboð Umhverfissvið Mosfellsbæjar auglýsir eftir þátttakendum í forvali fyrir alútboð vegna byggingar á fjölnota íþróttahúsi við Varmá í Mosfellsbæ. Stærð hússins verður um 3.850 m² (74 x 52 m) auk anddyrisbyggingar. Í húsinu verður knattspyrnuvöllur lagður gervigrasi og hlaupabraut við hlið vallarins ásamt gangbraut umhverfis völlinn. Gert er ráð fyrir að húsið verði byggt úr tvöföldum PVC dúk á stálgrind en undirstöður verði steinsteyptar og einnig verði hluti útveggja steinsteyptir. Skila skal fullbúnu húsi að utan og innan, með fullfrágenginni lóð. Almennt gildir að fastabúnaður er innifalinn en lausabúnaður ekki. Heiti verkefnisins er: Fjölnota íþróttahús við Varmá Helstu verkþættir eru: • Jarðvinna Uppsteypa húss • Reising stálgrindar og klæðning • Frágangur innanhúss þ.m.t lagnakerfa • Frágangur á gervigrasi, hlaupa- og göngubrauta • Frágangur lóðar Forvalsgögn verða send í tölvupósti þeim sem óska eftir að taka þátt í forvali frá og með þriðjudeginum 30. janúar 2018. Óskir um forvalsgögn skal senda á netfangið gk@verkis.is, með upplýsingum um nafn fyrirtækis, nafn tengiliðar ásamt tölvupóst- fangi og símanúmeri. Skila skal útfylltum forvalsgögnum í lokuðu umslagi merktu á eftirfarandi hátt til afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð, eigi síðar en þriðjudaginn 13. febrúar 2018, klukkan 16:00. Umhverfissvið Mosfellsbæjar Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 og Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 Kópavogsgöng Stofnbraut milli Reykjanesbrautar og Kringlumýrarbrautar Horfið frá fyrirhuguðum göngum Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti þann 28. júní 2017 að kynna drög að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, varðandi tillögu um að fella Kópavogsgöng út. Skipulagsráð Kópavogs samþykkti þann 19. júní 2017 að kynna drög að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024, varðandi tillögu að fella Kópavogsgöng út. Drög að breytingartillögum ofangreindra skipulags- áætlana ásamt umhverfisskýrslum sbr. lög nr. 105/2006, voru í framhaldinu send til skilgreindra hagsmunaaðila. Í tillögum felst að horfið er frá byggingu Kópavogs- ganga. Í Reykjavík er gert ráð fyrir þeim í Fossvogs- dal. Göngin, gangamunni og mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut eru felld út úr skipulagi. Jafnframt er gert ráð fyrir að miðsvæði í Suður-Mjódd stækki til austurs þar sem áður var helgunarsvæði fyrir umrædd gatnamannvirki. Í Kópavogi er gert ráð fyrir að göngin, gangamunni og mislæg gatnamót við Reykjanesbraut verði felld út úr aðalskipulagi. Samhliða er tillaga um að breyta landnotkun við Dalveg 30, þar sem áður var gangamunni og opið svæði, og það svæði verði verslunar- og þjónustus- væði. Forsendur breytinga eru þær að samkvæmt umferðar- greiningu og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er ekki þörf á Kópavogsgöngum í umferðarkerfi höfuðborgarinnar. Í umhverfisskýrslum skipulags- breytinganna er gerð grein fyrir áhrifum þess að hverfa frá byggingu Kópavogsganga. Drög að breytingartillögum, ásamt umhverfisskýrslum, hafa verið aðgengileg á adalskipulag.is og kopavogur.is undanfarnar vikur. Verkefnastjóri verður til svars um tillögurnar sem hér segir: - Þriðjudaginn 30. janúar kl. 15:00-16:00 í þjónustuveri að Digranesvegi 1 í Kópavogi - Fimmtudaginn 1. febrúar kl. 15:00-16:00 í þjónustuveri að Borgartúni 12-14 í Reykjavík Áformað er að samþykkja að tillögurnar fari í lögformlega kynningu með 6 vikna athugasemda- fresti á næstunni. Þeir sem óska frekari upplýsinga um málið geta snúið sér til umhverfis- og skipulags- sviðs Reykjavíkurborgar og skipulags- og byggingar- deildar Kópavogs. Ábendingum og athugasemdum við drögin má koma á framfæri á netfangið skipulag@reykjavik.is og skipulag@kopavogur.is. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og Skipulags- og byggingardeild Kópavogs Útboð Húsfélögin Álftamýri 2, 4 og 6 í Reykja- vík, óska hér með eftir tilboðum í endurnýjun þakklæðningar húsa sinna með tilheyrandi. Helstu magntölur eru: Endurnýjun þakjárns: 738 m² Útboðsgögn má panta hjá Hannarr ehf. á net- fanginu mor.sg@simnet.is og verða þau þá send viðkomandi á það netfang sem hann gefur upp. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 6. febrúar 2018, kl. 11,00. Verklok 1. september 2018 Síðumúla 1, 108 Reykjavík, sími: 533 3900 www.hannarr.com hannarr@hannarr.com Reykjavíkurborg Innkaupadeild Borgartún 12-14, 105 Reykjavík Sími 411 1042 / 411 1043 Bréfsími 411 1048 Netfang: utbod@reykjavik.is Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Skóli, menningarhús, bókasafn og sundlaug áfangi 4. og 5. Uppsteypa og utanhússfrágangur EES útboð nr. 14085. • Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar 2018, hverfi 1, 2 og 3 Útboð nr. 14139. • Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar 2018, hverfi 4 og 5 Útboð nr. 14140. • Tennisvellir Víkings - Tennis-gervigras, Útboð nr. 14145. • Rammasamningur um drykkjar-, mat- og þurrvöru EES útboð nr. 14142. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod ÚTBOÐ Við gætum verið með næsta starfsmann mánaðarins á skrá www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.