Morgunblaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.01.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2018 Útboð í veiði í Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá í Skagafirði Veiðifélagið Kolka óskar hér með eftir tilboði í lax- og silungsveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin 2018–2020, að öllum árum meðtöldum. Veiðifélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Útboðsgögn eru hjá umsjónarmanni útboðsins, Guðríði Magnúsdóttur, Viðvík, 551 Sauðárkróki. Sími Guðríðar er 893 5004 og tölvupóstur vidvik@mi.is. Gögnin verða afhent í tölvupósti. Frestur til að skila tilboði rennur út fimmtudaginn 15. febrúar 2018. Tilboðin verða opnuð í veiðihúsi félagsins að Efra Ási þriðjudaginn 20. febrúar 2018 kl. 13:00 í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Tilboðum skal skila til: Guðríðar Magnúsdóttur Viðvík, 551 Sauðárkróki. Útboð nr. 20268 Fljótsdalsstöð Umhirða vega og svæða Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í umhirðu vega og svæða Fljótsdalsstöðvar í samræmi við útboðsgögn nr. 20268. Verkið felst í að sinna hefðbundinni við- haldsvinnu á rekstrarsvæði Fljótsdalsstöðvar, opna vegi og slóða að vori, lagfæra úrrennsli og hreinsa snjó frá mannvirkjum. Yfirfara og laga upplýsinga- og umferðarmerki, snjó- stikur, vegræsi, vegrið, hellulögn og hleðslu- veggi. Gera við slitlög, hreinsa og lagfæra grjótvarnargirðingu utan í Kárahnjúk, gerð bakkavarna ásamt því að sinna öðrum tilfall- andi verkefnum. Helstu magntölur eru: Tímavinna verkamanna 400 klst Tímavinna vinnuvéla 2450 klst Tímavinna vörubifreiða 1350 klst Vélaflutningar 5000 km Vinnusvæðið er að mestu í um 600 til 800 metra hæð yfir sjávarmáli. Gert er ráð fyrir að verk geti hafist í byrjun maí 2018. Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Landsvirkjunar, http://utbod.lv.is Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir klukkan 12:00 þriðjudaginn 20. febrúar 2018 þar sem þau verða opnuð kl. 14:00 sama dag og lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tryggingastofnun ríkisins - leiguhúsnæði 20703 – Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði á höfuðborgar- svæðinu fyrir Tryggingastofnun ríkisins. Umsjónaraðili er Framkvæmdasýsla ríkisins. Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 25 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um góða stað- setningu á höfuðborgarsvæðinu, gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og næg bílastæði. Tryggingastofnun er þjónustu- stofnun fyrir almenning og því skiptir staðsetning stofnunar, þ.e. nálægð við helstu stofnbrautir og almenningssamgöngur, miklu máli við staðarval. Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 2.600 fermetrar. Húsnæðið er hefðbundið skrifstofu- og þjónustuhúsnæði. Miða skal við að húsnæðið geti verið allt að þrjár hæðir. Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á heima- síðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is þriðjudaginn, 30. janúar 2018. Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingar- tíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum. Fyrirspurnir varðandi verkefni 20703 skulu sendar á netfangið utbod@rikiskaup.is og verða svör birt á vef Ríkiskaupa. Fyrirspurnarfrestur rennur út miðvikudaginn 21. febrúar en svarfrestur er til og með 26. febrúar 2018. Leigutilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 15:00 fimmtu- daginn 1. mars 2018. Merkja skal tilboðin; nr. 20703 – Trygginga- stofnun ríkisins - Leiguhúsnæði. Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undan- skilin lögum um opinber innkaup nr. 20/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 6a. gr. Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að inni- halda eftirfarandi upplýsingar:  Afhendingartíma húsnæðis  Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og tillöguteikningar  Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu  Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð  Húsgjöld  Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og aðlægra lóða  Tilvísun í gildandi aðalskipulag  Áskilinn er réttur til að óska eftir því við leigusala að hann leggi fram úttektarskýrslu, frá óháðum aðila, um að húsnæðið sé laust við myglu. Það skal gert áður en skrifað er undir leigusamning. ÓSKAST TIL LEIGU Raðauglýsingar 569 1100 Tilboð/útboð Til leigu Veiði *20684 Tæki fyrir þvottahús Landspítala. Ríkiskaup fh. Landspítala óska eftir tilboðum í tæki fyrir þvottahús Landspítala (Machinery and Equipment for Washroom Operation in four different Parts). Nánari upplýsingar í útboðs- gögnum sem eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is. Opnun tilboða 6. mars 2018 kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum. *20666 Viðbygging Grunnskólans í Borgar- nesi og endurbætur. Ríkiskaup, fh. Borgar- byggðar, óska eftir tilboðum vegna bygginga- framkvæmda við Grunnskólann í Borgarnesi. Um er að ræða nýbyggingu upp á tvær hæðir við Grunnskóla Borgarness um 1000 m2 að stærð, þar sem verður mötuneytissalur og eldhús. Einnig er um að ræða verulega endurnýjun á eldra húsnæði skólans. Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is. Opnun tilboða 6. mars 2018 kl. 14:00 hjá Ríkiskaupum. *20687 Ýmis lyf 40 - Innrennslislyf og skolvökvar. Ríkiskaup fh. Landspítala og ýmissa annarra heilbrigðisstofnana auglýsa eftir tilboðum í innrennslislyf og skolvökva í ýmsum ATC flokkum. Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is. Opnun tilboða 7. mars 2018 kl. 11:00 hjá Ríkiskaupum. Tilkynningar Lóð með tækifæri til ferðaþjónustu við Árnes Skeiða– og Gnúpverjahreppur auglýsir viðskipta- og þjónustu- lóð í þéttbýliskjarnanum við Árnes. Lóðin er 3.359 m2 að stærð með rúmgóðum byggingarreit. Hún er staðsett á fallegum stað á bökkum Kálfár við hlið sundlaugar og tjaldsvæðis, steinsnar frá félagsheimilinu Árnesi. Á lóðinni stendur gistiheimili 167 m2 sem þarfnast lagfæringar. Lóðin býður upp á mikla möguleika til dæmis til hótelbygg- ingar. Áhugasamir sendi inn greinargóðar hugmyndir um nýtingu lóðarinnar á netfangið kristofer@skeidgnup.is fyrir 15. febrúar næstkomandi Nánari upplýsingar veitir Kristófer Tómasson sveitarstjóri í síma 486-6100. Auglýsing um tillögu að Svæðisskipulagi Dala, Reykhóla og Stranda 2018-2030 Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhóla- hrepps og Strandabyggðar samþykkti þann 18. janúar 2018 að auglýsa tillögu að svæðisskipulagi sveitarfélaganna þriggja, skv. 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tilheyrandi umhverfisskýrslu, skv. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Í svæðisskipulagstillögunni er sett fram sameigin- leg framtíðarsýn á þróun landbúnaðar, sjávar- nytja og ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja atvinnulíf og byggð. Greind eru tækifæri sem búa í auðlindum og sérkennum svæðisins og á grunni þess sett fram stefna í atvinnumálum, samfélags- málum og umhverfismálum og síðan skipulags- stefna sem styður við hana. Svæðisskipulagstillagan, ásamt umhverfisskýrslu, liggur frammi til sýnis á skrifstofum Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar og hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b í Reykjavík, frá og með föstudeginum 26. janúar 2018 til og með mánudagsins 12. mars 2018. Tillagan er einnig til sýnis á vefsíðum sveitarfélaganna og á vefnum samtakamattur.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við svæðisskipulagstillöguna og umhverfisskýrslu. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út í lok mánudagsins 12. mars 2018. Senda skal skriflegar athugasemdir til Ingibjargar Emilsdóttur formanns svæðisskipulagsnefndar, skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða með tölvupósti til ingaemils@strandabyggd.is. Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.