Morgunblaðið - 22.01.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.01.2018, Qupperneq 1
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018 ÍÞRÓTTIR England Argentínumaðurinn Sergio „Kun“ Agüero gerði þrennu fyrir toppliðið Manchester City í ensku úr- valsdeildinni á laugardaginn en Íslendingar munu væntanlega glíma við kappann á HM í Rússlandi 8 Íþróttir mbl.is Miðherjinn Tryggvi Snær Hlinason og liðs- félagar hans í spænska körfu- boltaliðinu Val- encia höfðu bet- ur gegn Fuenlabrada á heimavelli í efstu deild þar í landi í gærkvöld, 88:72. Tryggvi spilaði sex mínútur og skoraði á þeim sex stig og tók fjög- ur fráköst. Eftir 17 leiki er Valencia í 2. sæti deildarinnar með 24 stig, átta stig- um á eftir toppliði Real Madrid. Barcelona getur jafnað Tryggva og félaga að stigum með sigri á An- dorra í kvöld. Fuenlabrada er í 4. sæti deildarinnar, en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn í gær. Tryggvi lét að sér kveða Tryggvi Snær Hlinason ÍSHOKKÍ Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Henry Kristófer Harðarson varð um helgina danskur bikarmeistari í íshokkí með liði sínu Aalborg Pirates. Íslendingurinn átti stóran þátt í titlinum með frammistöðu sinni í úrslita- leiknum gegn Rungsted. Ekki er víst að nafn Henrys, sem fæddur er í Vestmannaeyjum, sé íslensku íþróttaáhugafólki kunnugt en hann fluttist ungur að árum til Kaupmannahafnar og tók snemma þá ákvörðun að gefa ekki kost á sér í íslensk landslið, heldur aðeins dönsk. Taugarnar til Íslands eru hins vegar sterkar og í umfjöllun danska vefmiðilsins Faceoff.dk um úrslitaleikinn segir að „íslenski víkingurinn“ hafi fagnað bikarmeistaratitlinum með því að veifa íslenska fánanum. Henry hafði lítið komið við sögu með Álaborgar-liðinu í vetur, skorað 3 mörk og lagt upp 5 í 30 deildarleikjum, en hann naut sviðsljóssins í úr- slitaleiknum. Hann var færð- ur úr 4. línu upp í 2. línu vegna meiðsla í liðinu, og skoraði tvö mörk í 5:2-sigri. Hann kom Aalborg fyrst í 1:0 og sá svo um að innsigla sig- urinn með síðasta marki leiksins, við gríðarlegan fögnuð stuðningsmanna og liðsfélaga í „Boxinu“ í Herning, þar sem und- anúrslit og úrslit fóru fram. „Jú, þetta var besti leikurinn minn á tíma- bilinu, það er á hreinu. Ég hef átt svolítið erfitt uppdráttar á tímabilinu en þetta gefur manni vonandi gott sjálfstraust,“ sagði Henry við Face- off.dk. Þrátt fyrir að hafa búið í Bandaríkjunum, Svíþjóð og Danmörku segist hann líta á sig sem „hundrað prósent Íslending“. Faceoff.dk segir ljóst að hefði Henry áhuga á að spila fyrir íslenska landsliðið væri þessi 23 ára íshokkímaður án nokkurs vafa búinn að því. „En það hefur alltaf verið draumur minn að spila fyrir Danmörku,“ sagði Henry, sem auk þess að spila fyrir Aalborg hefur leikið með Rødovre, Odense og Esbjerg í Danmörku. Þegar hann var 18 ára var hann eina leiktíð hjá kana- díska liðinu Regina Pats sem leikur í WHL- deildinni, þeirri næstu fyrir neðan sjálfa NHL- deildina í Norður-Ameríku, en þaðan fór hann til Svíþjóðar og svo aftur til Danmerkur árið 2013. Aalborg Pirates eru í 2. sæti dönsku úrvals- deildarinnar með 77 stig, sjö stigum á eftir topp- liði Herning Blue Fox eftir 40 leiki af 50. Aal- borg vann einmitt Herning í undanúrslitum bikarsins á föstudag. Hetja dönsku bikarmeistaranna fagnaði með íslenska fánann í hendi  Henry Kristófer skoraði tvö mörk fyrir Aalborg í úrslitaleiknum í Boxinu Henry Kristófer Harðarson FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Fyrir ekki nema 2-3 vikum var ég mjög viss um að ég myndi fara, og vildi hreinlega fara, en nú er ég al- veg hættur við það. Nú fer ég ekki neitt,“ segir Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, við Morgunblaðið með áherslu í rödd- inni. Birkir ætlar að halda kyrru fyrir í Englandi hjá hinu sögufræga liði Aston Villa, en fyrr í þessum mánuði leit út fyrir að hann væri á förum til Ítalíu. Birkir hafði þá lítið sem ekk- ert fengið að spila hjá Villa í vetur, undir stjórn knattspyrnustjórans Steve Bruce, en Bruce hefur nýtt krafta Íslendingsins undanfarið og hrósaði honum í hástert eftir 3:1- sigur á Barnsley um helgina. Birkir lék allar 90 mínúturnar í leiknum en þetta var þriðji deildarleikur hans í byrjunarliði á tímabilinu. Umboðsmaðurinn var búinn að ræða við ítölsk félög „Ég er búinn að spila núna fjóra síðustu leiki, en fyrir það hafði ég ekki spilað í mjög langan tíma. Þetta lítur mjög vel út núna. Það hefur gengið ótrúlega vel, bæði hjá mér og liðinu, og ég er bara verulega bjart- sýnn,“ segir Birkir, en hann hafði verið orðaður við ítölsku félögin Parma og Spal. Aðspurður hvort hann hafi hreinlega verið á leiðinni í annað félag segir Birkir: „Þetta var alveg komið á ákveðinn rekspöl. Ég veit að umboðsmaðurinn var byrj- aður að ræða við ákveðin félög og undirbúa hvað við myndum gera ef af því yrði. En það að vera í Aston Villa er það besta fyrir mig. Þetta er risaklúbbur á Englandi, og það er sérstaklega gott að vera hérna þeg- ar það gengur svona vel eins og und- anfarnar vikur. Vonandi getum við farið upp í úrvalsdeildina. Það yrði alveg frábært.“ Villa hefur unnið fjóra leiki í röð í ensku B-deildinni og er nú í 4. sæti, þremur stigum á eftir Derby sem er í 2. sæti en tvö efstu liðin komast beint upp í úrvalsdeild í vor. Liðin í 3.-6. sæti leika um eitt úrvalsdeildar- sæti til viðbótar. „Við erum sennilega með besta hópinn í deildinni, en erum ekki bún- ir að sýna nægilega mikið miðað við það. Núna lítur út fyrir að við séum búnir að stilla okkur aðeins betur saman, og nú þegar það eru bara þrjú stig upp í 2. sætið þá tel ég að það séu mjög góðir möguleikar á að gera góða hluti,“ segir Birkir. Ég er ekki þannig kantmaður Birkir hefur undir stjórn Bruce aðallega leikið sem vinstri kantmað- ur, eftir að hann kom til Villa frá Ba- sel fyrir ári, en hann fékk tækifæri á miðri miðjunni og hefur gripið það fegins hendi á síðustu vikum: „Þetta hentar mér margfalt betur. Ég er náttúrlega enginn kantmaður sem er að fara að taka 3-4 varnar- menn á. Það er þannig í þessari deild að kantmennirnir eru svolítið í þessu, og þjálfararnir vilja að kant- mennirnir búi mikið til. Ég er ekki svona hreinn kantmaður, þannig séð, svo það hentar mér mun betur að vera kominn lengra inn á miðj- una,“ segir Birkir. „Nú fer ég ekki neitt“ Ljósmynd/avfc.co.uk Breytt hlutverk Birkir Bjarnason hefur leikið á vinstri kanti hjá Aston Villa en kveðst kunna afar vel við sig eftir að hafa verið færður á miðjuna.  Birkir Bjarnason hélt að hann myndi yfirgefa Aston Villa en hefur öðlast nýtt líf hjá félaginu  Fékk tækifæri á miðjunni og greip það  Bruce hæstánægður Albert Guð- mundsson gerir það gott á fót- boltavellinum þessa dagana. Skoraði nýlega þrennu fyrir A- landsliðið í vin- áttuleik í Indóne- síu og í gær lagði hann upp sig- urmark PSV Eindhoven gegn Heracles. Afar mikilvægt framlag hjá Alberti en sigurmarkið kom á þriðju mínútu uppbótartíma. PSV sigraði 2:1 en Albert hafði komið inn á sem vara- maður um tíu mínútum fyrr. PSV hefur fimm stiga forskot á toppi deildarinnar. Albert gæti fengið fleiri tækifæri á næstunni heldur en hingað til í vetur vegna sölunnar á sókn- armanninum Jürgen Locadia til Brighton á dögunum. kris@mbl.is Mikilvægt framlag Albert Guðmundsson Úrvalsdeildarlið Víkings varð fyr- ir blóðtöku á föstudagskvöldið þegar einn reyndasti leik- maður liðsins, Dofri Snorrason, sleit hásin og verður þar af leiðandi frá knattspyrnuiðk- un næstu mánuðina. Dofri meiddist í leik gegn KR á Reykjavíkur- mótinu og staðfesti við netmiðilinn Fótbolta.net að hásin hefði slitnað. Dofri verður 28 ára í sumar en hann á að baki 117 leiki í efstu deild hérlendis með KR, Selfossi og Vík- ingi. kris@mbl.is Hásin slitnaði hjá Dofra Dofri Snorrason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.