Morgunblaðið - 22.01.2018, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018
Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við argent-
ínska varnarmanninn Ignacio Fideleff. Er
hann 28 ára gamall og hefur leikið með stórum
félögum eins og Parma, Maccabi Tel Aviv og
Napoli á ferlinum.
Fideleff lék á sínum tíma níu leiki fyrir U20
ára landslið Argentínu og þótti því efnilegur. Í
heimalandinu lék hann 35 leiki með Newells’s
Old Boys á árunum 2008-2011. Var hann
keyptur til Napoli og er talið að ítalska félagið
hafi borgað um 3 milljónir evra fyrir Argent-
ínumanninn.
Fideleff á að baki fjóra leiki í Seríu A, efstu
deild Ítalíu. Einn leik lék hann fyrir Parma þar
sem hann var á lánsamningi. Sjö leiki lék hann
með liði Viðars Arnar
Kjartanssonar, Maccabi Tel
Aviv, í Ísrael árið 2013.
Hann lék síðast með Club
Nacional í Paragvæ.
„Um er að ræða áræðinn,
örvfættan og baráttuglaðan
varnarmann sem hefur kar-
akter og metnað til að setja
ÍBV í fremstu röð á ný á
fimmtugasta tímabili fé-
lagsins í efstu deild,“ segir í
yfirlýsingu á heimasíðu ÍBV en Eyjamenn
urðu bikarmeistarar í fyrra og leika því í Evr-
ópukeppni næsta sumar.
Leikmaður ÍBV var áður í Napoli
Ignacio
Fideleff
Þróttur frá Neskaupstað tók á móti Aftureld-
ingu um helgina í Mizunodeild karla í blaki.
Liðin mættust tvívegis, fyrst á föstudags-
kvöldið þar sem heimamenn höfðu betur, 3:1,
og síðan á laugardaginn og þá höfðu gest-
irnir betur, 3:1, þannig að liðin skiptu með
sér stigunum eftir sviptingar þar eystra.
Leikurinn á föstudaginn var jafn, Þróttar-
ar komust í 2:0 með 25:17 og 25:21 sigri en
Afturelding svaraði fyrir sig með 25:17 sigri.
Í fjórðu hrinu höfðu heimamenn síðan betur,
25:17.
Stigahæstur í leiknum var Miguel Mateo
Castrillo hjá Norðfirðingum, en hann fékk 37
stig fyrir frammistöðu sína og hjá Aftureld-
ingu var Piotr Kempisty
með 18 stig.
Á laugardaginn vann
Afturelding fyrstu hrinu
26:24 og þá næstu 25:13 og
virtist allur vindur úr
heimamönnum. Þeim tókst
þó að rétta sinn hlut lítil-
lega með 25:20 sigri í
þriðju hrinu en gestirnir
létu það ekki slá sig út af
laginu og sigruðu 25:15 í
fjórðu hrinu. Castrillo var stigahæstur með
31 stig og Eduardo Herrero Berenguer var
með 16 hjá Aftureldingu. skuli@mbl.is
Miklar sviptingar í Neskaupstað
Miguel Mateo
Castrillo
EM
Kristján Jónsson
Sindri Sverrisson
Spútniklið Makedóníu á EM karla í
handknattleik lenti á vegg í mótinu í
gær þegar liðið glímdi við Spán.
Makedónía var í góðri stöðu í milliriðli
2 þegar að leiknum kom eftir að hafa
gert jafntefli við Þýskaland og unnið
Slóveníu í riðlakeppninni. Makedónar
áttu hins vegar ekki möguleika gegn
Spánverjum og töpuðu 20:31. Vafa-
laust hefur verið erfitt fyrir þjálfara
Makedóníu að kyngja þessu stórtapi
því hann er spænskur: Raúl González.
Danir unnu góðan sigur á Þjóð-
verjum, 26:25, og eru nú á toppnum
með 6 stig í milliriðlinum. Þjóðverjar
og Spánverjar eru jafnir með 4 stig en
Makedónar eru með 3 stig. Danir og
Þjóðverjar hafa hins vegar leikið fleiri
leiki en þeir hvíla í næstu umferð og
þá jafnast staðan út. Útlit er fyrir
mikla spennu í lokaumferðinni þegar
Þjóðverjar og Spánverjar mætast en
þá glíma Danir við Makedóna. Tékkar
eru með 2 stig í riðlinum fyrir sig-
urinn óvænta á Dönum í riðlakeppn-
inni en Slóvenar með 1 stig. Kemur
það nokkuð á óvart þar sem Slóvenía
vann til bronsverðlauna á HM í fyrra.
Töp hjá Norðurlandaþjóðum
Norðurlandaþjóðirnar Svíar og
Norðmenn töpuðu báðar í milliriðli 1 á
laugardaginn gegn erfiðum andstæð-
ingum. Frakkar lögðu Svía að velli,
23:17, þar sem varnir og markvarsla
voru í fyrirrúmi. Erfiður dagur í
sókninni hjá lærisveinum Kristjáns
Andréssonar í sænska liðinu. Ávallt
virðist hins vegar mikið vera skorað í
leikjum Norðmanna en þeir töpuðu
32:28 fyrir gestgjöfunum Króötum.
Hinir sigursælu Frakkar standa vel
að vígi með 6 stig í milliriðlinum eða
eins mörg og mögulegt er á þessum
tímapunkti. Króatar eru einnig með 6
stig en hafa leikið fleiri leiki. Það hafa
Norðmenn einnig gert en þeir eru
með 4 stig eins og Svíar. Hvíta-
Rússland og Serbía eru án stiga.
Áhugaverðar viðureignir eru fram-
undan þegar Frakkar og Króatar
takast á sem og grannarnir Svíar og
Norðmenn. Svíar standa betur að
vígi en Króatar ef liðin skyldu fá jafn
mörg stig eftir sigur í innbyrðis við-
ureign liðanna
Ofþrifnar stuttbuxur
Athygli vakti í gær að danska
handknattleikssambandið var sektað
af Handknattleikssambandi Evr-
ópu, EHF, um jafnvirði tæplega 90
þúsund íslenskra króna. Ástæðan er
liturinn á stuttbuxum sem tveir leik-
menn danska landsliðsins klæddust,
undir keppnisstuttbuxum sínum, í
leik gegn Tékkum.
Leikmennirnir sem um ræðir eru
Rasmus Lauge og Lasse Svan, en
EHF taldi þá hafa brotið reglur um
að innanundirbuxur verði að vera í
nákvæmlega sama lit og stuttbux-
urnar í keppnisbúningi viðkomandi
liðs. Þannig mátti Lauge ekki klæð-
ast gráleitum buxum undir hvítum
stuttbuxum danska liðsins. TV 2
hefur eftir Mads Mensah, leik-
manni danska liðsins, að gráleitu
buxurnar hans hafi meira að segja
upphaflega verið hvítar en einfald-
lega farið of oft í þvottavél og orðið
gráleitar!
Makedónar lentu á vegg
Spánverjar burstuðu Makedóna á EM Góður sigur Dana á Þjóðverjum
Heimsmeistarar Frakka á góðri siglingu Svíar skoruðu aðeins 17 mörk
AFP
Heimsmeistarar Frakkinn Valentin Porte í lausu lofti í leiknum gegn Svíum á laugardaginn.
Sólrún Inga Gísladóttir, 21 árs
gömul körfuboltakona úr
Hafnarfirði, gerði sér lítið fyrir
og skoraði níu þriggja stiga
körfur í 95:70-sigri Costal
Georgia á Keiser í bandaríska
háskólakörfuboltanum. Aldrei
áður hafði leikmaður skólans
skorað svo margar þriggja stiga
körfur í einum leik, en hún skor-
aði sjálf átta slíkar í leik fyrir
áramót sem var jöfnun á metinu.
„Mér líður bara vel eftir þenn-
an leik og það er gaman að allir
heima séu að fylgjast með. Það
er mikill heiður að bæta skóla-
metið. Í leiknum fyrir áramót
vissum við ekki hvað metið var,
eða vorum ekkert að pæla í því.
Við komumst að því eftir leikinn
að ég hefði
jafnað skóla-
metið. Eftir að
ég frétti það þá
var markmiðið
bara að bæta
það. Gaman að
segja frá því að
besta vinkona
mín hérna úti
jafnaði líka
skólametið rétt
eftir áramót. Þú getur rétt
ímyndað þér keppnina á milli
okkar, hver setur næsta met,“
sagði Sólrún í samtali við
mbl.is.
Sólrún er mjög hrifin af lífinu
og tilverunni í Georgíu. „Lífið
er yndislegt, mikið að gera en
samt skemmtilegt. Týpískur
dagur hjá mér er skóli til kl.
13:00, æfing og/eða vídeófundur
um kl. 13 til sirka 17, kvöldmat-
ur og síðan lærdómur,“ sagði
Sólrún m.a. en nánar er rætt við
hana á mbl.is.
johanningi@mbl.is
Mikill heiður að bæta skólametið
Sólrún Inga Gísladóttir raðar niður þriggja stiga skotunum í Bandaríkjunum
Sólrún Inga
Gísladóttir
Olísdeild kvenna
Valur – Selfoss ...................................... 30:14
Stjarnan – ÍBV ..................................... 25:27
Staðan:
Valur 13 11 2 0 371:290 24
Haukar 13 10 1 2 313:276 21
ÍBV 13 8 1 4 379:326 17
Fram 12 7 2 3 347:289 16
Stjarnan 12 5 1 6 345:310 11
Selfoss 13 2 1 10 281:366 5
Grótta 13 1 2 10 274:362 4
Fjölnir 13 1 2 10 270:361 4
Grill 66 deild kvenna
ÍR – Víkingur........................................ 38:29
Valur U – KA/Þór................................. 19:26
Staðan:
KA/Þór 9 8 1 0 262:186 17
HK 9 6 3 0 262:181 15
ÍR 10 7 0 3 280:251 14
FH 9 5 2 2 189:182 12
Víkingur 10 4 1 5 254:269 9
Afturelding 9 3 1 5 164:189 7
Fylkir 8 3 0 5 166:185 6
Fram U 10 2 0 8 214:264 4
Valur U 10 0 0 10 197:281 0
Danmörk
Ajax – Ringköbing............................... 22:27
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 2 mörk
fyrir Ajax.
Frakkland
Toulon – Le Havre............................... 29:28
Mariam Eradze lék ekki með Toulon.
Ungverjaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Erdi – DVSC Debreceni ..................... 32:21
Arna Sif Pálsdóttir skoraði 3 mörk fyrir
Debreceni.
Austurríki
Korneuburg – Hypo ............................ 20:26
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 2
mörk fyrir Hypo.
EHF-bikar kvenna
3. riðill:
Kastamonu – Byåsen .......................... 30:28
Helena Rut Örvarsdóttir skoraði ekki
fyrir Byåsen.
Staðan: Kastamonu 6 stig, Viborg 4, Byå-
sen 2, Vistal Gdynia 0.
EM karla í Króatíu
MILLIRIÐILL 1:
Svíþjóð – Frakkland............................. 17:23
Króatía – Noregur................................ 32:28
Staðan:
Frakkland 3 3 0 0 87:73 6
Króatía 4 3 0 1 120:108 6
Noregur 4 2 0 2 124:119 4
Svíþjóð 3 2 0 1 82:79 4
Hvíta-Rússland 3 0 0 3 76:90 0
Serbía 3 0 0 3 74:94 0
Leikir í dag:
17.15 Serbía – Frakkland
19.30 Svíþjóð – Hvíta-Rússland
Lokaumferðin er á miðvikudag.
MILLIRIÐLL 2:
Þýskaland – Danmörk ......................... 25:26
Makedónía – Spánn.............................. 20:31
Staðan:
Danmörk 4 3 0 1 109:103 6
Spánn 3 2 0 1 85:60 4
Þýskaland 4 1 2 1 97:95 4
Makedónía 3 1 1 1 70:80 3
Tékkland 3 1 0 2 62:81 2
Slóvenía 3 0 1 2 77:81 1
Leikir á morgun:
17.15 Slóvenía – Spánn
19.30 Makedónía – Tékkland
Lokaumferðin er á miðvikudag.
Asíumót karla í Suður-Kóreu
1. riðill:
Japan – Íran ......................................... 32:37
Dagur Sigurðsson þjálfar lið Japans.
Lokastaðan: Íran 4, Japan 2, Úsbekistan
0.
2. riðill:
Barein – Óman..................................... 30:23
Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfar lið
Barein.
Lokastaðan: Barein 4, Óman 2, Ástralía
0.
HANDBOLTI
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.