Morgunblaðið - 10.02.2018, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018
Starf fangavarðar felst m.a. í leiðsögn og aðstoð við
skjólstæðinga, eftirliti, verkstjórn og þátttöku í allri
daglegri starfsemi fangelsa.
Leitað er eftir starfsmönnum sem:
- Hafa gott viðmót og samskiptahæfileika
- Hafa áhuga á að vinna með mjög breytilegum
einstaklingum
- Eru þolinmóðir, agaðir og eiga auðvelt með að fylgja
vinnureglum
- Geta brugðist skjótt við breytilegum aðstæðum
- Eru færir í íslensku
- Hafa góða enskukunnáttu
- Hafa góða tölvufærni
Benda má á að starf í fangelsi er sérstaklega gefandi
viðbót við nám þeirra er hyggja á framtíðarstörf við að
liðsinna fólki s.s. sálfræðinga, guðfræðinga, félags-
ráðgjafa og hjúkrunarfræðinga svo dæmi séu nefnd.
Frekari upplýsingar um starfið
Um skilyrði þess að vera ráðinn fangavörður fer
skv. ákvæðum reglugerðar nr. 347/2007.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjár-
mála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag
í almannaþjónustu hafa gert.
Þar sem um er að ræða störf á mismunandi land-
svæðum þá skal sækja um störfin merkt „Afleysingar
í störf fangavarða á Hólmsheiði” eða „Afleysingar í
störf fangavarða á Litla Hrauni og Sogni“ eða
„Afleysingar í störf fangavarða á Akureyri“ á heima-
síðu Fangelsismálastofnunar www.fangelsi.is eða
www.starfatorg.is. Konur jafnt sem karlar eru hvött til
þess að sækja um.
Stofnunin áskilur sér rétt til þess að óska eftir saka-
vottorði ef kemur að ráðningu.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til og með 26.02.2018.
Nánari upplýsingar veitir
Fangelsið að Hólmsheiði – Guðmundur Gíslason
– gudmundur@fangelsi.is – S. 520 5063
Fangelsið að Litla Hraun og Sogni – Halldór Valur
Pálsson – halldorvalur@fangelsi.is – S. 480 9023
Fangelsið á Akureyri – Gestur Ragnar Davíðsson
– gestur@fangelsi.is – S. 462 6365
fangelsumSumarstörf í
Fangelsismálastofnun leitar eftir áhugasömu starfsfólki
til starfa við fangavörslu sumarið 2018
Gerðaskóli í Garði
Staða skólastjóra
Staða skólastjóra við grunnskólann Gerðaskóla í Sveitarfélaginu Garði er laus til umsóknar.
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til starfa í góðum skóla, með
góðan skólabrag og gera enn betri með metnaði, virðingu og leikgleði í fyrirrúmi.
Helstu verkefni:
• Skólastjóri ber faglega og rekstrarlega ábyrgð á
starfsemi skólans, samkvæmt lögum og stefnu
sveitarfélagsins hverju sinni. Vinna að gerð
fjárhagsáætlana og ábyrgð á eftirfylgni þeirra.
• Að vera faglegur leiðtogi og fyrirmynd með
umhyggju fyrir nemendum og starfsfólki.
• Að vinna að eflingu mannauðs og annast
ráðningar starfsfólks skólans.
• Stuðla að framþróun skólastarfsins með reynslu
og þekkingu á að leiða skólasamfélagið út
frá skólastefnu sveitarfélagsins og vinna að
samstarfsverkefnum/samningum sem skólinn
hefur gert.
Menntun, geta og færni:
• Grunnskólakennaramenntun og önnur reynsla
samkvæmt lögum nr. 87/2008, 12. gr.
• Framhaldsmenntun í stjórnun menntastofnana
eða sambærileg viðbótarmenntun.
• Menntun og reynsla af stjórnun og rekstri er
kostur.
• Áhugi og færni í samskiptum.
• Áhugi og reynsla til að leiða þróunarstarf og að
ná árangri í kennslu og námi.
• Leiðtogafærni í teymisvinnu og geta til
ákvarðanatöku.
Í Sveitarfélaginu Garði eru um 1.600 íbúar.
Sveitarfélagið er á nyrsta odda Reykjaness. Í Garði
er blómlegt tómstunda, íþrótta- og menningarlíf.
Lögð er áhersla á að allir aldurshópar íbúanna
fái notið sín í fjölbreyttu félagslífi. Góð aðstaða
er til íþróttaiðkunar í vel búinni Íþróttamiðstöð.
Nánari upplýsingar um sveitarfélagið er að finna á
vefsíðunni svgardur.is.
Um 220 nemendur stunda nám við Gerðaskóla og
býr skólinn við mjög góðan aðbúnað og aðstöðu.
Einkunnarorð skólasamfélagsins í Garði eru:
Árangur, virðing, gleði, leikur, sköpun og ábyrgð.
Umsókn skal fylgja ferilskrá um menntun, störf og
stjórnunarreynslu. Einnig er óskað eftir hugmyndum
umsækjanda um starfsemi og þróun skólastarfs
undir hans stjórn. Umsóknir skulu sendar bæjar-
stjóra á Sveitarfélagið Garður, Sunnubraut
4, 250 Garður, eða á tölvupóstfangið
magnusstefansson@svgardur.is
Nánari upplýsingar veitir Jónína Magnúsdóttir
formaður Skólanefndar (jm@mss.is)
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2018.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2018
Síminn hlaut í vikunni For-
varnarverðlaun VÍS sem veitt
voru við athöfn á ráðstefnu
sem VÍS hélt á Hilton Nordica
hótelinu. Þetta er í níunda
sinn sem VÍS verðlaunar fyr-
irtæki fyrir góða frammistöðu
í baráttunni gegn vinnuslys-
um.
Kerfi og kynningar
Að mati dómnefndar er
Síminn fyrirmyndarfyrirtæki
í forvörnum og öryggismálum.
Sem dæmi um það starfar
Síminn samkvæmt vottuðu ör-
yggisstjórnunarkerfi og held-
ur reglulega kynningar fyrir
starfsmenn þar sem skerpt er
á þessum mikilvægu málum.
Reykjalundur og Endur-
vinnslan fengu einnig viður-
kenningar fyrir góðan árang-
ur í öryggis- og
forvarnarmálum
„Viðurkenningin hefur
mikla þýðingu fyrir okkur, því
hún staðfestir að Síminn sinn-
ir forvörnum afar vel og er
ábyrgt fyrirtæki. Við náum
aldrei endapunkti þegar kem-
ur að forvörnum, heldur þurf-
um stöðugt að vera á verði,
fyrirbyggja slysin, uppfæra
áhættumat og búnað og
tryggja öryggi bæði starfs-
manna okkar og viðskipta-
vina. Góður aðbúnaður starfs-
fólks skilar sér í betri
þjónustu og ánægðari við-
skiptavinum. Þannig auðveld-
um við þeim þá ákvörðun að
treysta okkur til að halda utan
um dagleg samskipti sín. Öfl-
ugar forvarnir og ýtrasta ör-
yggi eru því allra hagur,“
sagði Orri Hauksson, forstjóri
Símans, þegar hann veitti
verðlaununum viðtöku.
sbs@mbl.is
Öruggur Sími
VÍS veitir forvarnaverðlaun
Öryggi Frá vinstri Gísli Níls Einarsson og Auður Björk Guð-
mundsdóttir frá VÍS, Orri Hauksson forstjóri Símans, Helgi
Lárusson framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar, Helgi Krist-
jónsson hjá Reykjalundi og Helgi Bjarnason forstjóri VÍS.
Nemendum í grunnskólum
Hafnarfjarðar sem þar eru í
hádegismat hefur fjölgað í
vetur. Að jafnaði 75,5%
nemenda í skólunum borða
þar í hádeginu, þar af 73% í
fastri áskrift. Alls eru fram-
reiddar rúmlega 2.600 mál-
tíðir á dag fyrir grunnskóla-
nemendur í þeim sjö
grunnskólum sem kaupa
mat frá Skólamat ehf. í
Reykjanesbæ og rúmlega
3.500 nemendur sækja.
Einn skóli, Áslandsskóli,
er utan þessara talna þar
sem þar er maturinn eld-
aður í skólanum sjálfum.
Þátttaka nemenda í hádeg-
ismat þar er einnig góð.
Þetta er veruleg fjölgun
frá fyrri vetri en þá var að-
eins um helmingur nema í
Hafnarfjarðarskólum í há-
degismat. Í kjölfar aðgerða
sem bæjaryfirvöld stóðu að
er að matarkaupin voru
færð til annars fyrirtækis og
jókst þátttaka aftur í fyrra
horf.
Á vettvangi fræðsluráðs í
Hafnarfirði stendur nú til að
stofna starfshóp til að fara
yfir framkvæmd á matar-
málum í grunnskólum. Það
er í þeim tilgangi að skoða
frekari möguleika á því að
einstaka skólar geti valið
eigin leiðir í matarmálum,
svo sem aukið fjölbreytni á
matseðli og boðið upp á
grænmetisfæði í ríkari mæli
en nú er. sbs@mbl.is
Fleiri mæta í
hádegismatinn
75% í áskrift Vegan í skoðun
Hádegið Kristinn Guð-
laugsson í Hvaleyrarskóla í
mat með nemendum.
Náms- og starfsráðgjöf Há-
skóla Íslands er með dagskrá
á Framtíðardögum 12.-16.
febrúar, sem ætlað er að að-
stoða stúdenta og aðra
áhugasama. Sérfræðingar
innan HÍ og fulltrúar úr at-
vinnulífinu taka þátt, segir í
tilkynningu.
Dagskrá Framtíðardaga
verður í anda starfsferils-
skrár þar sem áhersla er á
einstaklinginn. Hún hefst
mánudaginn 12. febrúar kl.
11 með ávarpi Jóns Atla
Benediktssonar rektors en í
framhaldinu mun Jóhanna
Ella Jónsdóttir, mannauðs-
stjóri verkfræði- og náttúru-
vísindasviðs Háskóla Íslands,
fjalla um ánægju í starfi og
þau Sigurlaug Jónsdóttir og
Andri Hrafn Sigurðsson frá
Capacent ræða um lykilatriði
við atvinnuleit.
Dagskrá verður alla daga
vikunnar milli kl. 11 og 13 á
Háskólatorgi.
Fjölbreytni á Framtíðardögum HÍ