Morgunblaðið - 12.02.2018, Side 8

Morgunblaðið - 12.02.2018, Side 8
8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018 Nú þegar Vetur konungur ræður ríkjum hér á norðurhjara veraldar og veldur því að mörg- um kappleikjum helgarinnar hér heima var frestað leiðir bakvörðurinn hugann að fyrri leik Östersund og Arsenal í 32 liða úrslitum Evópudeildar karla í knattspyrnu sem háður verður í skíðabænum Öster- sund á fimmtudaginn kemur. Östersund hefur skotist hratt upp metorðastigann bæði í sænskum fótbolta og nú evr- ópskum undir stjórn Englend- ingsins Grahams Potters und- anfarin ár. Östersund hefur frá stofnun árið 1996 mestmegnis leikið í þriðju efstu deild í Sví- þjóð, en árið 2013 tryggði liðið sér sæti í næstefstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins og þreytti siðan frumraun sína í efstu deild árið 2016. Þær aðstæður sem leikið verður við á Jämtkraft Arena, heimavelli Östersund, eru nokkuð frábrugðnar því sem leikmenn og forráðamenn Ars- enal eiga að venjast. Jämtkraft Arena er gervigrasvöllur og stúkan sem umlykur gervigras- ið tekur um það bil 9.000 manns í sæti. Þá greindi Haraldur Björns- son, núverandi markvörður Stjörnunnar, sem var á mála hjá Östersund á árunum 2014 til 2016, frá því í skemmtilegu spjalli í þættinum fotbolti.net á X-inu á laugardaginn að frostið færi allt niður í 30 gráður á þessum tíma árs. Bakvörður dagins er hrif- inn af öskubuskuævintýrum og það er einlæg von hans að Pot- ter sveifli töfrasprotanum og nái að galdra fram óvænt úrslit í fyrri leik liðanna og skapa spennu fyrir seinni viðureign- ina. BAKVÖRÐUR Hjörvar Ólafsson hjorvaro@mbl.is ENSKI BOLTINN Hjörvar Ólafsson hjorvaro@mbl.is Manchester City færðist nær því að tryggja sér enska meistaratitilinn í knattspyrnu karla eftir leiki helg- arinnar í deildinni. Sergio Agüero héldu engin bönd þegar liðið lagði Leicester City að velli, 5:1, og þegar upp var staðið hafði hann skorað fjögur mörk í þriðja skipti í ensku úrvalsdeildinni. Engum öðrum leikmanni hefur tekist að skora jafn oft fjögur mörk í deild- arleik síðan enska úrvalsdeildinn var sett á laggirnar. Kevin De Bruyne lagði upp þrjú marka Manchester City í leiknum, en hann er stoðsendingahæsti leik- maður deildarinnar á yfirstandandi leiktíð með 14 stoðsendingar. Til að setja jarðarberið á kökuna fyrir fylgismenn Manchester City tapaði Manchester United með einu marki gegn engu þegar liðið mætti Newcastle United í gær. José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, lét hafa það eftir í samtali við breska blaðamenn í síð- ustu viku að hann teldi enga þörf á að bæta við sóknarmönnum til félagsins næsta sumar. Það er spurning hvort Mourinho hafi snúist hugur hvað það varðar eftir leikinn í gær. Þung sókn liðsins bar ekki árangur í leiknum og sókn- armönnum liðsins voru mislagðir fætur þegar þeir komust framhjá vel skipulagðri vörn Newcastle United sem Rafael Benitez hafði skipulagt. Chris Smalling færði Newcastle United síðan aukapspyrnu um mið- bik seinni hálfleiks með kjánalegri dýfu á miðjum vellinum. Eftir auka- spyrnuna barst boltinn til Matts Ritchies sem skoraði sigurmark leiksins. Fyrir aftan þétta vörn Newcastle United stóð slóvakíski markvörð- urinn Martin Dúbravka, sem gekk til liðs við liðið undir lok janúar- gluggans, sig afar vel. Dúbravka, sem var að leika sinn fyrsta leik fyrir Newcastle United, varði nokkrum sinnum meistaralega í leiknum og stuðningsmenn liðsins hafa hugsað hlýlega til hans á leið heim frá St. James’ Park. Stuðningsmenn New- castle United hafa ekki gengið með hlýju í hjarta frá St. James’ Park sið- an í október á síðasta ári, en það var þá sem síðasti heimasigur liðsins í deildinni kom. Tottenham gerði Arsenal grikk Tottenham Hotspur hafði betur gegn nágrönnum sínum og erkifjend- um, Arsenal, 1:0, þegar liðin mættust á Wembley á laugardaginn. Það var Harry Kane sem skoraði sigurmark Tottenham Hotspur, en Kane er markahæsti leikmaður deildarinnar með 23 mörk. Von Arsenal um að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð er orðin ansi fjarlæg eftir úr- slit helgarinnar. Arsenal er sjö stig- um á eftir Tottenham Hotspur sem vermir fjórða sæti deildarinnar eins og sakir standa. Liverpool endurheimti svo þriðja sæti deildarinnar og færði sig nær Manchester United sem situr í þriðja sæti deildarinnar með 2:0-sigri sínum gegn Southampton í gær. Liverpool er nú tveimur stigum á undan Totten- ham Hotspur og tveimur stigum á eftir Manchester United. Chelsea getur svo skotist upp í fjórða sæti deildarinnar með sigri gegn, WBA, þegar liðin mætast í kvöld. Sergio Agüero reimaði á sig skotskóna í hálfleik  Forskot Manchester City jókst  Arsenal fjarlægist Meistaradeild Evrópu AFP Markanef Agüero skorar eitt fjögurra marka sinna í sigri Manchester City gegn Leicester City á laugardaginn. Einherjar töpuðu naumlega fyrir Carinthian Lions frá Austurríki, 14:19, þegar liðin mættust í ruðningi, eða amerískum fótbolta, í Kórnum í Kópavogi á laugar- dagskvöld. Austurríska liðið komst í 19:7 en Einherjar minnk- uðu muninn og áttu möguleika á að tryggja sér sig- urinn á lokamínútunni en leikmenn Carinthian vörðust vel og héldu fengnum hlut. Morgunblaðið/Hari Barátta Hart barist í viðureign Einherja og Carinthean Lions í Kórnum. Naumt tap hjá liði Einherja KA lagði Stjörnuna tvívegis í Miz- unodeild karla í blaki um helgina og er liðið í mjög vænlegri stöðu hvað varðar deildarmeistaratitilinn. HK fór á Norðfjörð og tapaði fyrri leikn- um en vann þann síðari. Um næstu helgi fer HK til Akureyrar og mætir KA í tvígang. KA vann Stjörnuna 3:0 á laug- ardaginn (25:22, 25:15 og 25:23) og 3:1 í gær (28:30, 25:13, 25:18 og 25:19) Á Norðfirði vann Þróttur lið HK, sem er í öðru sæti deildarinnar, 3:1 á laugardaginn (25:22, 14:25, 25:21 og 26:24) og í gær þurfti oddahrinu til að knýja fram úrslit og þar hafði HK betur 15:13. Annars lauk hrinunum 24:26, 25:20, 25:22 og 25:27. KA er sex stigum á undan HK og leikirnir á Akureyri um næstu helgi því mikilvægir. Tveir leikir voru í Mizunodeild kvenna og lauk þeim báðum með 3:0- sigri heimaliðsins. Völsungar lögðu Stjörnuna 3:0 og í toppslag Þróttar og Aftureldingar í Neskaupstað höfðu heimakonur betur 3:0. Leikurinn á Norðfirði var vægast sagt sveiflukenndur en hrinurnar enduðu 25:11, 34:32 og 25:18. Með sigrinum eru Þróttarar komnir með aðra höndina á deildarmeist- aratitilinn, en hann er þó ekki al- veg í höfn. Þróttur vann fyrstu hrinuna næsta auðveldlega og í þeirri næstu var liðið komið í 20:12. Afturelding jafnaði 24:24 en Þróttur hafði síðan betur á spennandi lokaspretti, 34:32. Í þriðju hrinu komst Afturelding í 10:4 og 17:11 en þá komu tólf stig í röð hjá heimakonum og staðan 23:17 og lauk hrinunni 25:18 og 3:0-sigur í höfn. Stigahæst hjá Þrótti var Paula Del Olmo Gomez með 15 stig og hjá Aftur- eldingu Fjóla Rut Svavarsdóttir með 11. Á Húsavík hefndu heimakonur fyr- ir tapið gegn Stjörnunni á föstudaginn en þá vann Garðabæjarliðið 3:1. Á laugardaginn vann Völsungur 3:0, 27:25, 25:21 og 25:16. Stigahæst í leiknum var Erla Rán Eiríksdóttir úr Stjörnunni með 18 stig. Camilla Joh- ansson var með 13 stig hjá Völs- ungum. KA styrkti stöðu sína á toppnum  Hjá konunum stendur Þróttur vel Erla Rán Eiríksdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.