Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Ekki bara fyrir eldri borgara
„Með þessari rannsókn, ásamt
þeirri sem við gerðum áður í Finnlandi
þar sem þar sem við sýndum fram á að
vel þjálfaðir langhlauparar geta náð
sömu hámarkssúrefnisupptöku í vatni
og á landi, er vonandi hægt að búa til
nákvæmar leiðbeiningar um hvernig
hægt sé að æfa í vatni. Við erum til
dæmis að búa til aðferðir við mælingar
á íþróttafólki sem hægt sé að reiða sig
á. Með réttum mælingum og réttum
æfingum á að vera hægt að ná há-
marksárangi í vatninu. Í lok júní get-
um við mögulega sýnt íþróttafólki
fram á hvernig hægt sé að nýta æfing-
ar í vatni með góðum árangri. Í Finn-
landi hef ég unnið að þessu í mörg ár
með íþróttafólki úr ýmsum greinum
eins og fótbolta og vetraríþróttum, til
dæmis gullverðlaunahöfum á Ólymp-
íuleikum. Ég hef reynt að finna leiðir
til að „selja“ þeim þessar hugmyndir
því margir líta á æfingar í vatni sem
eitthvað fyrir eldri borgara. Þau sjá
ekki fyrir sér að þetta skili árangri
fyrir afreksíþróttafólk. Enn sem kom-
ið er eru þó upplýsingarnar og leið-
beiningarnar fábrotnar en nú stendur
það til bóta,“ sagði Waller.
Eru bjartsýnir
Bretinn er eins og Ingi bjartsýnn á
að niðurstöðurnar af rannsókninni í
Kópavoginum muni sýna fram á að
jafn árangursríkt sé fyrir knatt-
spyrnufólk að byggja upp þol og styrk
í vatni eins og á landi. „Ég hef enga
ástæðu til annars miðað við það sem
ég hef séð hingað til í minni vinnu. Ef
æfingar í vatni komast á dagskrá í
meiri mæli þá gæti það einnig reynst
mikilvægt fyrir íþróttafólk sem er að
jafna sig af meiðslum. Meðan íþrótta-
fólkið er á sjúkralistanum þá er sál-
rænt mikilvægt fyrir það að geta æft
og hafa til þess fjölbreyttar leiðir. Þau
geta snúið hraðar en ella aftur til
keppni ef þau geta viðhaldið þoli á
meðan með æfingum í vatni,“ sagði
Waller og Ingi bætti við.
„Þú getur séð fyrir þér mögu-
leikana sem skapast til dæmis fyrir
handbolta- og körfuboltalið á Íslandi.
Fyrir kemur að þau keppa tvisvar í
viku yfir veturinn og þá gefst ekki
tími á milli til að vinna með líkamann
því hann er einfaldlega of aumur.
Undir lok tímabilsins þegar úrslitin
ráðast þá gætu leikmenn verið mun
betur á sig komnir ef þær æfðu í vatni
í hverri viku.“
Mikið framboð af sundlaugum
Waller bendir á að íslenskt íþrótta-
fólk sé í góðri stöðu hvað aðstöðuna
varðar því á Íslandi sé mikið aðgengi
að sundlaugum. „Á Íslandi eru miklir
möguleikar til að æfa í vatni því hér
eru margar sundlaugar. Staðan er
einnig góð í Finnlandi þótt þar séu
mun færri sundlaugar en hérlendis.
Hægt væri að hámarka notagildi
sundlauga með því að nýta þær eins
vel og hægt er bæði varðandi lýðheilsu
almennings og einnig keppnisfólk í
íþróttum fyrir utan sundíþróttina
sjálfa. Hvað almenning varðar þá
myndi ég til dæmis vilja sjá fleiri fara í
laugarnar og hreyfa sig þar ef lík-
aminn þolir illa hreyfingu á hörðu und-
irlagi,“ sagði Waller ennfremur við
Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kópavogslaug Háskólanemarnir Ella Nurmi frá Finnlandi, Gunnar Egill Benonýsson og
Guðný Erna Bjarnadóttir ásamt kennurunum Inga Þór Einarssyni og Ben Waller á æfingu
í Kópavoginum. Blikana má sjá ofan í lauginni. Á myndina vantar háskólanemana Fann-
eyju Þóru Þórsdóttur og Eyþór Erni Oddsson sem stjórnuðu æfingu á landi á sama tíma.
ar í vatni í ríkari mæli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Horft til himins Helena Sverris sækir en til varnar er Salbjörg Ragna.
Landsliðsmarkmaðurinn Hafdís
Renötudóttir mun ganga í raðir
norska handboltafélagsins Sola fyrir
næsta tímabil en félagið greindi frá
því á heimasíðu sinni í gær. Sola er
sem stendur í 7. sæti, en Hafdís leik-
ur með SønderjyskE í B-deild Dan-
merkur.
Hafdís lék með Fram og Stjörn-
unni hér á landi, áður en hún fór til
Danmerkur, og varð hún m.a bik-
armeistari með Stjörnunni á síðustu
leiktíð. Hún verður 21 árs á þessu
ári og lék hún sína fyrstu A-
landsleiki gegn Hollandi í mars á
síðasta ári.
Félagaskipti Hafdíasar eru
áhugaverð þar sem efsta deildin í
Noregi er sterk deild þótt Larvik
hafi haft þar yfirburði um langa hríð
og unnið deildina síðan 2005. Helena
Rut Örvarsdóttir, fyrrverandi liðs-
félagi hennar hjá Stjörnunni, leikur
með Byåsen í sömu deild. Er liðið í 6.
sæti, þremur stigum á undan Sola.
Hafdís mun leika
í sterkri deild
Færir sig frá Danmörku til Noregs
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breytingar Hafdís verður á nýjum
slóðum í Noregi næsta vetur.
Höttur mun leika síðustu þrjá leiki
sína í Dominos-deild karla í körfubolta
án erlends leikmanns. Þetta staðfesti
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari liðs-
ins, við vefmiðilinn karfan.is. Höttur er
þegar fallinn niður um deild og því var
hinum bandaríska Kelvin Lewis leyft
að fara til Finnlands þar sem hann
mun ljúka leiktíðinni með liði Karhu.
Lewis þekkir vel til í Finnlandi en hann
varð til að mynda finnskur meistari ár-
ið 2014 með Tampereen Pyrintö. Hött-
ur, sem vann Keflavík fyrir skömmu,
mætir Þór Þ., KR og Njarðvík í síðustu
leikjunum.
Claudio
Ranieri, þjálfari
franska knatt-
spyrnuliðsins Nan-
tes sem Kolbeinn
Sigþórsson er
samningsbundinn
hjá, segist tilbúinn
að hætta með liðið
verði honum boðið
að taka við þjálfun ítalska landsliðsins.
Ranieri, sem er 66 ára gamall og gerði
Leicester City óvænt að Englands-
meisturum 2016, er einn þeirra sem
hafa verið orðaðir við starf landsliðs-
þjálfara eftir að Gian PieroVentura lét
af störfum í kjölfar þess að Ítölum
tókst ekki að vinna sér sæti í úr-
slitakeppni HM í Rússlandi í sum-
ar.„Allir ítalskir þjálfarar myndu elska
það að stýra landsliðinu,“ sagði Rani-
eri í viðtali við Sky Sport Italia.
Knattspyrnumaðurinn Bojan Stef-
án Ljubicic er genginn til liðs við
Keflavík á ný eftir að hafa leikið með
Fjölni á síðasta tímabili. Bojan, sem er
25 ára miðjumaður, lék með Keflavík
frá unga aldri og fram á mitt sumar
2016 en hann lék seinni hluta þess
tímabils með Fram. Hann á að baki 90
leiki í efstu deild, 81 með Keflavík og
níu með Fjölni.
Haraldur Franklín Magnús náði
bestum árangri af Íslendingunum
þremur sem kepptu á PGA Catalunya
Resort-mótinu í golfi, sem fram fór í
Girona á Spáni. Mótið er hluti af Nor-
dic Golf-mótaröðinni, en Axel Bóas-
son vann mótaröðina á síðasta ári.
Haraldur lék hringina þrjá á 212 högg-
um eða tveimur höggum undir pari og
hafnaði hann í 33. sæti
ásamt nokkrum öðrum
kylfingum. Guðmundur
Kristjánsson komst ekki
í gegnum nið-
urskurðinn og lék
tvo hringi á
tveimur höggum
yfir pari. Andri
Björnsson lék
fyrstu tvo hring-
ina á níu yfir
pari.
Eitt
ogannað
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Valur ............ 18.30
Hertz-höllin: Grótta – Fram................ 19.30
1. deild karla, Grill 66 deildin:
KA-heimilið: KA – Hvíti riddarinn .......... 19
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót kvenna, úrslitaleikur:
Egilshöll: KR – Valur................................ 19
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Reykjanesh.: Njarðvík – Víkingur R.. 18.40
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Iða, Selfossi: FSu – Fjölnir.................. 19.15
Í KVÖLD!