Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 1
HVER PRÓSENTAHEFUR ÁHRIFVEIKLEIKARVÉLRÆNSNÁMS
li góði Nokia 8810 síminn genginn í endurnýjun lífdaga. 4
Unnið í sa
Hugbúnaður sem byggist á vélrænu
námi er þegar hluti af daglegu lífi okkar
en tæknin hefur ákveðna veikleika. 15
VIÐSKIPTA
4
Hulda Ragnheiður Árnadóttir hjá Viðlagatryggingum
segir ljóst að hver prósenta í ávöxtun 35 millj-
arða króna eignasafnsins hafi mikil áhrif.
am
m
G
vinnu við
FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Sprenging í pakkasendingum
Pakkasendingum frá útlöndum fjölg-
aði um 55% í afgreiðslukerfi Póstsins
á síðasta ári. Er það í raun framhald
af þróun sem hófst fyrir nokkrum ár-
um og virðist aukast stöðugt. Þannig
nam aukningin 43% árið 2016 og 15%
árið 2015. Eru pakkasendingar þess-
ar fyrst og síðast raktar til aukinnar
netverslunar fólks. Er aukningin
langt umfram vöxt innlendra pakka-
sendinga en í fyrra fjölgaði þeim um
12% frá árinu 2016.
Brynjar Smári Rúnarsson, upplýs-
ingafulltrúi Póstsins, segir að fyrir-
tækið geri ráð fyrir því í sínum áætl-
unum að aukningin muni halda áfram
á þessu ári.
„Við höfum verið að mæta þessu
með því að aðlaga þjónustur í takt við
nýjar áherslur og mæta þannig
breyttum þörfum viðskiptavina. Við
leggjum allt kapp á að koma send-
ingum til skila á eins skjótan hátt og
mögulegt er.“
Segir Brynjar að aukningin sé slík
að Pósturinn hafi þurft að leita leiða
til að hraða afgreiðsluferlinu.
„Viðskiptavinirnir eru sífellt að
verða mikilvægari þátttakendur í
móttökuferli sendinga að utan.“
Innlend verslun eflist einnig
Þá segir Brynjar að þótt innlend
netverslun aukist ekki af sama krafti
og hin erlenda þá sé vöxturinn góður
og að búast megi við áframhaldandi
vexti þar.
„Íslensk fyrirtæki eru að auka
áherslu á netverslun og á sama tíma
höfum við verið að auka þjónustu við
innlenda sendendur og móttak-
endur.“
Bendir hann á að fyrirtækið bjóði
nú upp á svokallaða laugardagsdreif-
ingu á höfuðborgarsvæðinu. Hún var
tekin upp í fyrra. Þar gefst tækifæri
til að dreifa vörum sem pöntun er
lögð inn fyrir á föstudegi.
Bréfsendingarnar gefa eftir
Á sama tíma og pakkasendingum
hefur fjölgað gríðarlega heldur áfram
sú þróun að bréfsendingum fækkar.
Þannig nam samdrátturinn milli ár-
anna 2016 og 2017 um 9%. Hefur
samdrátturinn frá árinu 2007 numið
56%. Metur Pósturinn stöðuna svo að
þessi þróun muni ekki snúast við á
næstunni og að bréfum fækki meira á
komandi árum. Þar ráði breyttar
þarfir fólks og samskiptamátar.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Gríðarleg aukning hefur
orðið í pakkasendingum
erlendis frá og jókst um-
fang þeirra í fyrra um 55%
hjá Póstinum sem segir allt
stefna í enn meiri aukningu.
Ljósmynd/Hörður Ásbjörnsson
Handagangur er í öskjunni þegar kemur að erlendum pakkasendingum.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
29.8.‘17
29.8.‘17
28.2.‘18
28.2.‘18
1.682,49
1.782,54
130
125
120
115
110
125,6
123,55
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri
Landsbankans, hefur áhyggjur af því
að verið sé að þrýsta útlánum út fyrir
hið eftirlitsskylda kerfi, meðal annars
með mikilli aukningu lána lífeyris-
sjóða til íbúðakaupa. Hún bendir á að
það geti komið upp áföll sem hafi
áhrif á útlán, eins og dæmin sanni, og
að bankanir hafi kerfi til að halda ut-
an um slíkt og taka á slíku.
Lilja telur að annaðhvort eigi að
hafa alla undir eftirliti eða setja meiri
skyldur á þá sem eru í þessari starf-
semi. „Maður vill keppa á sama
markaði. Ég skil vel að fólk taki
lífeyrissjóðslán, það eru góð kjör á
þeim sem er gott mál fyrir neyt-
endur. En það er eitthvað skakkt við
það að geta ekki veitt sömu kjör á
sama markaði vegna þess að annar
aðilinn er með meiri kvaðir á sér,“
segir Lilja í ítarlegu viðtali við
ViðskiptaMoggann í mið-
opnu í dag.
Þrýst út fyrir eftirlitsskylt kerfi
Morgunblaðið/Eggert
Lilja bendir á að bankanir hafi kerfi
til að taka á áföllum í útlánum.
Bankastjóri Landsbankans
telur að setja ætti meiri
skyldur á þá sem veita út-
lán, eins og lífeyrissjóði.
8
Forstjóri Airbnb heimagist-
ingarvefsíðunnar segir að
félagið þurfi að bjóða upp á
kynngimagnaðar
upplifanir.
Takmarkalaus
metnaður Airbnb
11
Vélmenni með leysigeisla
koma í stað heils herskara af
fólki hjá Levi Strauss galla-
buxnaframleiðand-
anum.
Róbótar fram-
kalla götótt útlit
11