Morgunblaðið - 01.03.2018, Page 2

Morgunblaðið - 01.03.2018, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is Minnsta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) ORIGO -1,21% 24,5 TM +3,59% 36,1 S&P 500 NASDAQ +0,25% 7.355,642 +0,17% 2.751,86 +0,48% 7.279,25 FTSE 100 NIKKEI 225 29.8.‘17 29.8.‘1728.2.‘18 28.2.‘18 1.700 702.300 2.094,85 2.149,85 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 52,0 65,84+0,80% 22.068,24 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 50 TM skilaði mestri arðsemi eigin fjár á liðnu ári af tryggingafélögunum fjór- um eða 24%. Vörður, sem er í eigu Arion banka, náði næstmestum ár- angri á því sviði eða 17%. Arðsemin var 11% hjá Sjóvá og 8% hjá VÍS. Það sem réð mestu um ólíka af- komu tryggingafélaganna var hve vel tókst til í fjárfestingum á árinu. Inn- lendur hlutabréfamarkaður var krefj- andi á liðnu ári og hækkaði hluta- bréfavísitala GAMMA einungis um 3% árið 2017. Samt sem áður hækk- uðu skráð og óskráð hlutabréf í eigu TM um 22% og 29% á árinu. Í fjár- festakynningu segir að einkum hafi verið um að ræða vel valdar og tíma- settar fjárfestingar á hlutabréfa- markaði því gengisþróun hlutabréfa hafi verið afar ólík á árinu. Stærsta hlutabréfaeign TM er óbeinn eignar- hlutur í drykkjarframleiðandanum Refresco Group sem metinn er á 2,2 milljarða króna og hefur hækkað um rúmlega 70% frá því að trygginga- félagið eignaðist hlutinn á öðrum fjórðungi síðasta árs. Til samanburðar var arðsemi fjár- festingaeigna VÍS 5% á árinu 2017. „Afkoma af fjárfestingastarfsemi er ekki nægilega góð, eins og búist var við, vegna þróunar á innlendum mörkuðum,“ segir Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, í tilkynningu. „Við höf- um hins vegar lokið vinnu við endur- skoðun fjárfestingastefnu okkar sem við væntum að muni skila sér í bættri ávöxtun fjárfestingaeigna okkar á árinu 2018.“ Í áranna rás hefur vátrygginga- starfsemi almennt verið rekin með tapi hér á landi og hagnaður fyrir- tækjanna hefur byggst á ágætri af- komu af fjárfestingum. Í ár var sam- sett hlutfall allra tryggingafélaganna undir 100%. Það er enn mikilvægara þegar fjármálamarkaðir eru krefj- andi. Samsett hlutfall segir til um hve vel tókst að láta iðgjöld mæta kostn- aði við tjón og rekstur félagsins. Þetta er því mælikvarði á grunn- rekstur tryggingafélaga. Að því sögðu benti Hermann Björnsson, for- stjóri Sjóvá, á í fjárfestakynningu að aðstæður í vátryggingarekstri hefðu verið krefjandi þar sem tjónakostn- aður eykst í takt við aukin umsvif í þjóðfélaginu. Hlutfallið var lítillega yfir 100% árið 2016 hjá Sjóvá, VÍS og Verði. Í tilfelli VÍS var þetta í fyrsta sinn í fjögur ár sem hlutfallið er undir 100%. Aftur á móti hækkaði samsetta hlutfallið á milli ára hjá TM úr 97% í 99,4%. Í fjárfestatilkynningu segir að það skýrist einkum af hærra tjóns- hlutfalli í eignatryggingum, skipa- tryggingum og ábyrgðartryggingum. Athygli vekur að eigin iðgjöld tryggingafélaganna jukust ágætlega á síðasta ári. Þau jukust um 7% hjá Sjóvá og TM, um 12% hjá VÍS en mesti vöxturinn var hjá Verði. Aukn- ing var 24% á milli ára. Tryggingafélögin sem skráð eru á hlutabréfamarkað stefna öll að því að greiða arð vegna síðasta árs. Stjórnir Sjóvá og TM leggja til að arð- greiðslan nemi 1,5 milljörðum króna og stjórn VÍS leggur til að arð- greiðslan verði 1,3 milljarðar króna. TM skilaði mestri arðsemi eigin fjár Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Samsett hlutfall allra trygg- ingafélaga landsins var undir 100% í ár. Það merkir að þau eru að ná betri tök- um á grunnrekstri sínum. Uppgjör tryggingafélaga Sjóvá TM VÍS Vörður 2017 2016 Br. 2017 2016 Br. 2017 2016 Br. 2017 2016 Br. Eigin iðgjöld 15.539 14.488 7% 14.985 14.059 7% 19.840 17.647 12% 9.727 7.856 24% Eigin tjón -11.901 -11.261 6% -11.873 -10.719 11% -14,555 -14,045 4% -7.075 -5.707 24% Fjárfestinga- tekjur 2.264,00 3.434,00 -34% 3.750 3.178 18% 1.350 1.997 -32% 1.181 924 28% Hagnaður 1.746 2.690 -35% 3.123 2.597 20% 1,326 1,459 -9% 957 637 50% Tjónahlutfall 74,20% 73,10% 79,20% 76,20% 68,20% 81,10% 73,70% 70,00% Samsett hlutfall 99,4% 100,9% 99,40% 97,00% 95,30% 101,70% 98,30% 100,50% Arðsemi eigin fjár 10,7% 15,9% 24% 22,40% 8% 9,20% 16,60% 18% Arðsemi fjár- festingaeigna 5,90% 10,10% 14,90% 13,00% 5% 5,70% 7% Í milljónum króna FJARSKIPTAMARKAÐUR Fjarskipti, móðurfélag Vodafone, hagnaðist um 1.086 milljónir króna á nýliðnu ári, samanborið við 1.007 milljónir árið 2016. Félagið birti upp- gjör sitt við lokun markaða í gær. Í rekstrartölum reikningsins má greina áhrif af rekstri 365 fyrir síð- asta mánuð ársins. Fyrirtækið sam- einaðist Fjarskiptum í byrjun des- ember. Efnahagsreikningurinn ber einnig með sér áhrif kaupanna. Tekjur Fjarskipta í fyrra reyndust 14,3 milljarðar króna, samanborið við 13,7 milljarða 2016. Sé litið til tekna Fjarskipta án áhrifa af kaup- unum á 365 drógust tekjur félagsins saman um 199 milljónir milli ára. EBITDA hagnaður ársins var 3,1 milljarður króna og jókst um 3% milli ára. Eignir fyrirtækisins jukust gríð- arlega milli ára vegna kaupanna á 365. Þannig reyndust þær 25,4 millj- arðar í árslok samanborið við 14,7 milljarða í árslok 2016. Þar af jukust birgðir um 1,2 milljarða en óefnis- legar eignir um 8,3 milljarða. Eigið fé fór úr tæpum 7 millj- örðum í ríflega 10,1 milljarð. Skuldir félagsins tvöfölduðust og fóru úr 7,7 milljörðum í 15,2 milljarða. Þannig nam eiginfjárhlutfallið 39,9% sam- anborið við 47,6% í árslok 2016. ses@mbl.is Hagnaður Fjarskipta eykst um 8% milli ára Morgunblaðið/Kristinn Stefán Sigurðsson segir sameining- una hafa jákvæð áhrif á félagið. SJÁVARÚTVEGUR Fjárfestingasjóðurinn Kjölfesta vinnur nú að undirbúningi á sölu á 30% hlut sínum í sjávarútvegs- fyrirtækinu Odda á Patreksfirði. Sjóðurinn keypti hlutinn í Odda árið 2014 en hann hafði þá verið starfandi frá árinu 2012. Mun sjóðurinn hafa ráðið Deloitte til ráðgjafar við sig í tengslum við söluferlið. Oddi er rótgróið sjávarútvegs- fyrirtæki og hefur starfað óslitið frá árinu 1967. Það er mikilvægasti burðarás atvinnulífs á Patreksfirði og hjá fyrirtækinu starfa um 70 manns. Það framleiðir frystar, ferskar og saltaðar afurðir. Sam- kvæmt úthlutuðu aflamarki er Oddi í hópi 30 stærstu fyrirtækja á sínu sviði í landinu. Það gerir út tvö skip, Núp BA-69 og Patrek BA-64. Bæði skipin eru línuskip með beitningar- vél. Auk þess leggur Vestri BA-63 upp stóran hluta af sínum afla til vinnslu hjá fyrirtækinu. Samkvæmt nýjasta ársreikningi, sem nær yfir tímabilið 1. september 2015 til 31. ágúst 2016, nam hagn- aður Odda 287 milljónum króna. Ár- ið á undan nam hagnaðurinn tæpum 303 milljónum króna. Þá nam eigið fé fyrirtækisins tæpum 1,3 millj- örðum króna og skuldir voru ríflega 2,2 milljarðar. Eigendur Kjölfestu eru 14 fagfjárfestar. Þar af eru 12 lífeyrissjóðir. Stærstu eigendurnir eru Lífeyrissjóður verslunarmanna, Birta, Stapi og Lífsverk. Aðrar fjár- festingar sjóðsins nú um stundir eru hlutur í Meniga og Íslandshótelum. ses@mbl.is Kjölfesta setur þiðjungshlut í Odda á Patreksfirði í sölu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Núpur er annað tveggja skipa sem Oddi gerir út frá Patreksfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.