Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 4
GRÆJAN Nokia notaði tækifærið á farsímasýningunni í Barcelona um helgina til að endurlífga einn vinsæl- asta síma fyrirtækisins. Á sínum tíma þótti Nokia 8810 bera af öðrum sím- um, og fékk meira að segja nokkuð áber- andi hlutverk í fyrstu Matrix- kvikmyndinni – fyr- ir nærri tveimur áratugum! Nýi 8810 er vitaskuld fullkomnari á allan hátt, með snertiskjá, ágætri myndavél og öllum þeim örgjörvum og forritum sem nútíma-snjallsími þarf að hafa til að bera. Líkt og gamli 8810 er hann samt með spjald á framhliðinni sem renna má niður og kemur þá í ljós takkaborð. Svara má í símann með því að færa spjaldið niður, og skella á með því að ýta spjaldinu upp. Snake er líka á sínum stað. Nokia 8810 mun fást bæði í svartri og banana-gulri útfærslu og verður frekar ódýr sími. Vestanhafs á hann að kosta um 100 dali. Finnska sprotafyrir- tækið HMD Global sér um framleiðsluna enda Nokia löngu hætt að smíða síma. ai@mbl.is Nokia gerir út á fortíðarþrána 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018FRÉTTIR Við fjármögnum innflutninginn fyrir þitt fyrirtæki Nánari upplýsingar má finna á kfl.is Hulda Ragnheiður byrjaði starfsferilinn með rekstri eigin saumastofu en stýrir í dag stórri og flókinni stofnun með jafn- virði 35 milljarða króna í eignastýringu. Hún segir undanfarin átta ár hafa verið tímabil mikilla breytinga hjá Viðlaga- tryggingu Íslands og starfsemin verið löguð að nútímaleiðum í samskiptum við viðskiptavini. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Það er klárlega að tryggja að við höf- um á hverjum tíma nægilegt fjármagn til þess að takast á við þá tjónsatburði sem framtíðin ber í skauti sér. Til þess að það sé raunin þurfum við að gera allt sem í okkar valdi stendur til að þekkja áhætt- urnar og áhrifin af líklegum framtíðar- atburðum nægilega vel til að geta keypt endurtryggingar á alþjóðamarkaði í samræmi við þá áhættu sem við búum við. Mat á væntri framtíðaráhættu er því ein af grundvallarforsendum í rekstr- inum. Ávöxtun eignasafnsins er líka gríðar- lega mikilvæg. Við erum með 35 millj- arða í eignastýringu og því ljóst að hvert prósent í ávöxtun safnsins hefur mikil áhrif. Mat á heppilegu samspili ávöxt- unar og áhættu leikur því líka stórt hlut- verk í afkomunni. Hver var síðasta ráðstefnan sem þú sóttir? Síðasta ráðstefnan sem ég sótti var um áhrif #metoo á fyrirtækjamenningu. Ég tók sjálf þátt í að undirbúa ráðstefn- una með fræðslunefnd FKA. Þar voru margir frábærir fyrirlesarar sem nálg- uðust þetta vandasama viðfangsefni af fagmennsku og kveiktu von í hjarta mínu um að við vinnum í sameiningu að breyt- ingum á viðhorfum í samfélaginu um við- mið í samskiptum kynjanna. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Það er klárlega bók sem heitir Paths to Recovery sem fjallar um 12 spora leið- ina. Að öllum öðrum bókum ólöstuðum hefur ekkert sem ég hef lesið haft meiri áhrif á líf mitt og störf heldur en hún. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég á mér mentor, öflugan stjórnanda sem ég hitti reglulega til að fá hollráð og hvatningu. Ég er líka dugleg að fara á fyrirlestra og námskeið og óhrædd við að afla mér ráðgjafar og þekkingar frá mér reyndara fólki. Svo er ég mentor fyrir unga konu á uppleið og það heldur mér líka vel við efnið. Hugsarðu vel um líkamann? Með göngum úti í náttúrunni og hollu mataræði. Ég er mjög meðvituð um það að við eigum bara einn líkama og þurfum að fara vel með hann. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Ég er í draumastarfinu, en ég gæti hins vegar hugsað mér að breyta til í framtíðinni og fara meira út í stjórnar- og endurskoðunarnefndarstörf. Mér þætti líka spennandi að vinna á alþjóð- legum fjármála- eða endurtrygginga- markaði. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Ég er alltaf að reyna að hætta að bæta á mig gráðum, en það gengur ekki vel, því ég hef svo gaman af því að læra. Í vor stefni ég að því að klára nám við IRM í Bretlandi sem „Certified Risk Manager“. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Samstarfsfólkið mitt gefur mér mikla orku með góðum vinnuanda og frum- kvæði í starfi sínu. Ég tek líka þátt í starfi með Félagi kvenna í atvinnulífinu. Þar er ótrúlega mikið af konum sem eru að gera áhugaverða hluti og sannfæra mig um að það sem ég er að gera skipti máli. SVIPMYND Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar Íslands Hvert prósent í ávöxtun eignasafnsins hefur mikil áhrif Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hulda segist m.a. sækja orku og innblástur í starfið hjá Félagi kvenna í atvinnulífinu. LEIKFANGIÐ Eins gaman og það er að spana um á sæþotu, þá hefur fyrirtækið Zapata þróað tæki sem færir sæþotufjörið yfir á næsta stig. Flyride er tengt með röri við hefð- bundna sæþotu og teym- ir hana á eftir sér. Sæ- þotan dælir vatni eftir rörinu sem síðan fruss- ast út um tvær túður vinstra og hægra megin á Flyride svo að tækið svífur yfir haffletinum. Skynjarar sjá um að stýra stefnu og krafti vatnsflaumsins svo að tækið haldi jafnvægi. Þá er sérstakur takki í stýr- inu til að taka veltu, ef notandinn vill gera alls kyns kúnstir. Flyride kostar frá 6.000 dölum og getur rúmað tvo. ai@mbl.is Sæþota sem flýgur NÁM: Iðnskólinn í Reykjavík, sveinspr. í kjólasaum, 1992; EHÍ, dipl. í opinberri stjórnsýslu og stjórnun, 2001; HA, BS í við- skiptafræði með áherslu á stjórn- un, 2005; Háskólinn á Bifröst, M.Sc. í bankastjórnun, fjármálum og alþjóðaviðsk., 2008; HÍ, dipl. í góðum stjórnarháttum, 2017 STÖRF: Rekstur á saumastofu, eigandi, 1992-2002; stjórn Kirkju- miðstöðvarinnar við Vestmanns- vatn í Aðaldal, 2001-2003; fram- kvæmdastjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Norðurþings, 2005-2006; fjármálastjóri og stað- gengill bæjarstjóra Blönduós- bæjar, 2006-2007; starfsmaður í innri endurskoðun Arion banka, 2007-2009; frkvstj. Viðlagatrygg- ingar Íslands frá árinu 2010. ÁHUGAMÁL: Fjallgöngur og al- menn útivist. Hef m.a. farið hring- inn í kringum Mont Blanc í 190 km göngu á 9 dögum. FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Magn- úsi Guðjónssyni og eigum við samtals sex börn, þrjú hvort. HIN HLIÐIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.