Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 9VIÐTAL þurfa ekki að standa straum af.“ Lífeyrissjóðirnir hafa í vaxandi mæli kosið að veita lán beint í staðinn fyrir að kaupa í útlána- söfnum bankanna. „Þeir hafa verið kaupendur að sértryggðum bréfum sem við höfum gefið út og eru tryggð með íbúðalánum. Nú kaupa þeir þessi bréf í minna mæli. Allir bankarnir hafa fundið fyrir því að heildareftirspurn hefur minnkað á þessum markaði. Fáir nýir kaup- endur eru að þessum bréfum, m.a. vegna tak- markana sem stjórnvöld setja á slík viðskipti.“ Lilja bendir á að það geti komið upp áföll sem hafi áhrif á útlán, eins og dæmin sanna. „Það hefur þurft að gera leiðréttingar, til dæmis vegna kvaða í lánasamningum sem dómstólar hafa síðan snúið við. Við höfum þurft að gera stórar leiðréttingar, því þó svo að menn reyni að vanda sig þá geta slík atvik komið upp. Við erum með kerfi til að halda utan um slíkt og taka á slíku. Auðvitað hef ég áhyggjur af því að það sé verið að þrýsta útlánum út fyrir hið eftirlits- skylda kerfi.“ Lilja telur að annaðhvort eigi að hafa alla und- ir eftirliti eða setja meiri skyldur á þá sem eru í þessari starfsemi. „Maður vill keppa á sama markaði. Ég skil vel að fólk taki lífeyrissjóðslán, það eru góð kjör á þeim sem er gott mál fyrir neytendur. En það er eitthvað skakkt við það að geta ekki veitt sömu kjör á sama markaði vegna þess að annar aðilinn er með meiri kvaðir á sér.“ En þýðir þetta að eftir sitji áhættumeiri íbúðalán í bönkunum? „Hjá okkur er náttúrlega ungt fólk og fólk sem er að feta sín fyrstu skref inn á húsnæðsmarkaðinn. Við erum með þá sem þurfa hærri lán en ég er ekki viss um að þau séu áhættumeiri. Það þarf alls ekki að vera.“ Munar bankaskatti í erlendri samkeppni Landsbankinn hefur í gegnum tíðina verið öfl- ugur á fyrirtækjamarkaði en hann hefur eins og aðrir íslenskir bankar þurft að horfa á eftir mörgum stórum viðskiptavinum til erlendra banka. „Sum stærstu fyrirtækin hér á landi eru með alþjóðlegan rekstur og við of lítil til þess að leiða fyrir þau fjármögnun. Þá getur verið gott að vera samferða erlendum bönkum, þannig að fyrirtækið sé með banka í hópnum sem þekkir það vel, jafnvel til áratuga.“ Hún segir hins veg- ar að kjörin séu þannig, að það sé ekki fyrr en nýverið sem Landsbankinn hafi getað réttlætt það að vera þátttakandi í slíkum lánveitingum út frá eigin fjármögnunarkostnaði. „Við erum búin að sjá hluta af sjávarútveg- inum fara úr landi, einkum til norskra banka. Okkur þykir mjög vænt um sjávarútveginn enda skapar hann góð störf og er máttarstólpi at- vinnulífs víða um land. Mörg af okkar öflugustu fyrirtækjum eru sjávarútvegsfyrirtæki og við höldum afar góðu sambandi við þessi fyrirtæki. Það hefur því verið sárt að sjá þau fara úr landi á kjörum sem við höfum ekki getað keppt við. En við erum að nálgast þau. Með okkar nýjustu lán- tökum í erlendum myntum munar ekki miklu, í raun munar þar fyrst og fremst bankaskatt- inum. Á móti kemur að nýr atvinnuvegur, ferða- þjónustan, hefur náð að vaxa og dafna. Ferða- þjónustan er nýr máttarstólpi sem bankinn leggur mikla áherslu á að þjóna.“ Í ljósi þeirra miklu breytinga sem eru að verða á fjármálamarkaðnum, hvernig sér Lilja Landsbankann fyrir sér á eftir 5 til 10 ár? „Það verður áfram virði í því eftir 5 og 10 ár að þekkja fyrirtæki afskaplega vel. Öll fyrirtæki kannast við það að ef eitthvað kemur upp á viltu tala við þann sem þekkir þig. Það er heilmikið virði í því að vinna með góðum samstarfsbanka eins og Landsbankinn er. Ég held að mjög persónuleg fyrirtækjaþjónusta haldi áfram en samhliða munum við kappkosta að veita fyrirtækjum skil- virkari bankaþjónustu. Við þurfum að gæta þess að fyrirtækin fái mjög öfluga sjálfvirka þjónustu þannig að við getum einbeitt okkur að því að að- stoða þau og þekkja þau, hjálpa til við umbreyt- ingar og fylgja þeim í þeirra ferðalagi. Á einstaklingsmarkaði munu viðskiptavinir væntanlega skipta sér í nokkra hópa. Þar verður meðal annars hópur sem mun einkum horfa á samanburðarsíður og verða mjög kvikur. Það þarf hins vegar að gefa sér tíma til þess að bera saman kjörin. Ef gervigreind þróast hins vegar þannig að það dragi úr tímanum sem þetta krefst, gæti þessi hópur stækkað verulega. Við ætlum áfram að bjóða upp á mjög góð og samkeppnishæf kjör og þess vegna er mikilvægt að ná fram aukinni skilvirkni í bankanum. Svo verður annar hópur sem vill persónulega og góða þjónustu, auk góðra kjara. Hann vill setj- ast niður og ræða við einhvern um stórar ákvarðanir, t.d. húsnæðislánin sín. Við þurfum að átta okkur á hvernig við getum veitt hana og í því skyni höfum við verið að einbeita okkar að því að búa til hóp fjármálaráðgjafa inni í útibúa- kerfinu út um allt land.“ Bankinn afar söluvænlegur Landsbankinn er nánast að fullu í eigu ríkis- ins en þó liggur fyrir heimild til þess að selja allt að 30% í bankanum. Hvernig vill Lilja sjá eignarhaldinu háttað þegar fram líða stundir? „Ég myndi vilja sjá hann í dreifðu eignarhaldi. Okkar stefna er mjög skýr: við erum að þjóna fyrirtækjum og einstaklingum á Íslandi. Þegar þú fjárfestir í Landsbankanum þá ertu að fjár- festa í þverskurðinum af Íslandi, sama hvort litið er til aldursdreifingar viðskiptavina, fyrirtækja, byggðar eða atvinnuvega. Auk þess erum við sterkur banki sem leggur áherslu á stöðugleika í rekstri.“ Lilja segist virða eigendastefnu ríkisins og engin vandkvæði að vinna undir henni, enda samrýmist hún þeirri þjónustu sem bankinn veiti og því sem hann standi fyrir. „En það er eðlilegt að ríkið losi um eignarhlutinn. Þetta er stór eign fyrir ríkissjóð og ríkið getur ráðstafað peningunum vel í aðra málaflokka heldur en að vera stofnfjárfestir í banka. Við höfum reynt að gera okkar í að gera bank- ann að arðbærari fjárfestingu með því að greiða arð og draga þar með úr eigin fé. Við erum enn að greiða 60-80% hagnaðar í arð, erum þegar bú- in að greiða yfir 100 milljarða, og munum vænt- anlega halda því áfram.“ Lilja segir bankann líta gríðarlega vel út fyrir fjárfesta um þessar mundir sé litið á þróun rekstrarins í gegnum síðustu uppgjör og fram- tíðarsýn. „Ég held að þetta sé mjög góður tími til þess að selja þessa hluti sem ríkið ætlar sér að selja, sé litið bara á staðreyndirnar. Uppgjör bankans fyrir árið 2017 var mjög gott, rekstrar- kostnaður stendur nánast í stað, kostnaðarhlut- fallið lækkaði og hagnaður jókst. Bankinn er því afar söluvænlegur. En ég virði það auðvitað að hlutirnir verða að hafa sinn gang og eigandinn hagar sér eftir því hvernig hann telur hags- munum sínum best borgið. En bankinn er á góð- um stað, heilmikið hefur áorkast og hann á mikið inni.“ Morgunblaðið/Eggert sig vita hvað muni gerast ” En það er eitthvað skakkt við það að geta ekki veitt sömu kjör á sama markaði vegna þess að annar aðilinn er með meiri kvaðir á sér. Landsbankinn kynnti í liðinni viku að bankinn hygðist semja við Arkþing og C.F. Møller um hönnun og þróun á nýjum höfuðstöðvum við Austurbakka 2. „Fyrir starf- semina er stóri ávinningurinn sá, að við getum fært okk- ur úr um 20 þúsund fermetrum, sem felast að miklu leyti í stigum, göngum og rangölum, í 10 þúsund fermetra í nýju húsi. Þetta er hægt með því að nýta vel fáar hæðir og allt pláss miklu betur,“ segir Lilja. „Í öllum fyrir- tækjarekstri er vaxandi krafa um að starfsfólk vinni saman, deili hugmyndum fljótt og geri hugmyndir hratt að vörum og þjónustu. Núverandi húsnæði er hamlandi og gerir okkur erfitt um vik við að vera sveigjanleg og kvik.“ Að sögn Lilju voru margir möguleikar skoðaðir, meðal annars að byggja annars staðar. „Við áætlum að við get- um sparað um 500 milljónir árlega með því að flytja und- ir eitt þak í nýtt hús. Við áttum þessa góðu lóð og getum byggt þarna hús sem verður verðmæt eign fyrir bank- ann. Mér finnst hönnunin smekkleg en mín áhersla er á vinnurýmin og það að við getum minnkað sóun á plássi og tíma með því að þétta raðirnar.“ Lilja segir að húsið verði blandað verslunar- og skrif- stofuhúsnæði. „Verslanir verða á fyrstu hæð en við verð- um með skrifstofur á efri hæðum. Þar verður töluvert af umframfermetrum sem við ætlum að leigja út eða selja.“ Framtíð gömlu höfuðstöðvanna til skoðunar En hvað verður um hinar gömlu og virðulegu höfuð- stöðvar bankans? „Við skulum segja að við séum með það í vandlegri skoðun hvaða möguleikar eru í boði með friðað hús. Það er líka samofið öðrum húsum sem við erum með í rekstri og við þurfum að greiða úr þeirri flækju. Við gerum ekki ráð fyrir því í okkar áætlunum að vera með húsið á okkar bókum áfram en það eru enn nokkur ár í að við flytjum. Eina sem ég get sagt á þessari stundu er að við erum með málið í skoðun en við viljum stuðla að því að fólk geti notið hússins til framtíðar.“ Áhersla lögð á vinnurýmin í nýjum höfuðstöðvum og að draga úr sóun á plássi Hér getur að líta frumtillögu að innra rými höfuðstöðva Landsbankans sem tekið getur breytingum á hönnunarstigi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.