Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018FRÉTTIR ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Kínverski kommúnistaflokkurinn hefur greitt leiðina fyrir Xi Jin- ping, forseta landsins, að vera við völd fyrir lífstíð. Um leið hefur flokkurinn aukið völd ríkisins til að „handstýra“ næststærsta hagkerfi heims. Þau miklu völd sem Xi hafa verið veitt gefa honum tæknilega séð færi á að knýja í gegn harðsóttar umbætur sem hagsmunaöfl hafa reynt að sporna við, ekki síst í at- vinnugreinum þar sem ríkið hefur verið umsvifamikið. Stóra spurn- ingin er hvort hann hafi það í hyggju. Ekki borið á auknu frelsi Þegar Xi komst til valda í komm- únistaflokknum árið 2012 lögðu embættismenn sig fram við að full- vissa erlend fyrirtæki og diplómata um að forsetinn væri aðeins að styrkja stöðu sína til þess að geta betur komið á efnahagsumbótum. Fram til þessa hefur ekki borið mikið á auknu frelsi í efnahagslíf- inu. „Xi telur að hann sé manna hæf- astur til að tryggja pólitísk og efnahagsleg áhrif Kína á komandi áratugum, og hann er að reyna að tryggja að hann hafi þau völd sem það verkefni krefst,“ segir Andrew Collier, framkvæmdastjóri Orient Capital Research. Ráðgjafar Xi gera sér grein fyrir að landið stendur frammi fyrir því að tíma- bil hagfelldrar aldurssamsetningar vinnuafls er að renna sitt skeið á enda, og að skuldavandi landsins fer vaxandi, bætir hann við. Xi hefur lofað að útrýma fátækt og umbreyta Kína hratt og vel úr iðnaðarveldi í land sem er leiðandi á sviði hátækni, þar sem stjórnvöld í Peking fengju ítök til að móta iðnaðarþróun framtíðar- innar á heimsvísu. Samkvæmni í stefnumótun Með því að nema úr gildi reglur um hámarksfjölda kjörtímabila í forsetaembætti mætti stuðla að aukinni samkvæmni í langtíma- stefnumótun stjórnvalda, segir Ai Tangming sem skrifar pistla um efnahagsmál fyrir Sina Finance. „Það hefur hent að ekki hefur tek- ist að gera sumar tilraunir til um- bóta að veruleika. Í framtíðinni verður hægt að fylgja stefnu stjórnvalda eftir af meiri krafti. Hvað fjárfesta snertir gæti þetta þýtt meiri stöðugleika í vænt- ingum markaðarins.“ Það sem mun líklega fara minnk- andi er sú sveiflukennda aukning í útgjöldum sem hefur einkennt upp- haf hvers fimm ára kjörtímabils, þegar nýskipaðir fulltrúar sæta lagi og beina fé til þeirra verkefna sem þeir láta sig mestu varða. Í kerfi þar sem aðeins einn ein- staklingur ræður hver hlýtur fram- göngu og hver ekki, er það umfram allt hollusta við leiðtogann sem hjálpar mönnum upp virðingarstig- ann. Meira vægi ríkisfyrirtækja Líklegt er að í framtíðinni muni stefna stjórnvalda gefa fyrir- tækjum í ríkiseigu meira vægi, og veita stjórnmálamönnum í Peking meiri völd yfir atvinnulífinu. Á fyrsta kjörtímabili Xi lét hann ryðja úr vegi ýmsum hindrunum sem stöfuðu bæði af kerfinu sjálfu og klíkuskap, svo að einkageirinn gat blómstrað. Kínversk fyrirtæki í einkaeigu hlýða núna fyrirmælum um að beina peningum sínum í ríkiseignir sem skila lítilli arðsemi. Þetta endurspeglar það „hjóna- band“ sem ríkir á milli einkafjár- magns og ríkis, og sem einkenndi upphafið á valdatíma kommúnista- flokksins á sjötta áratugnum. „Efnahagslegar umbætur þýða ekki endilega aukið efnahagslegt frelsi,“ segir Amy Yuan Zhuang, markaðsgreinandi hjá Nordea Markets. Hún gerir ráð fyrir að stjórnvöld muni áfram reyna að koma böndum á of mikla fram- leiðslugetu í iðnaði og veita fjár- málaþjónustu meira frelsi. „Við búumst ekki við stórfenglegum framförum í viðskiptaumhverfinu í Kína, og teljum að framgangur fyrirtækja þar muni áfram velta á því að eiga í góðu sambandi við stjórnvöld.“ Mikil inngrip líkleg áfram Sýn Liu He, æðsta efnahags- ráðgjafa Xi, „snýst enn um að auka frelsi á mjög afmörkuðum sviðum, og að ríkið hafi áfram veigamiklu hlutverki að gegna, líkt og sást á fyrsta kjörtímabili Xi,“ segir Andrew Gilholm, sér- fræðingur í hagkerfi Kína hjá ráð- gjafarfyrirtækinu Control Risks. „Mikil inngrip munu líklega áfram verða eitt helsta einkenni hag- kerfisins,“ þrátt fyrir meira frelsi á ákveðnum sviðum til að hafa hemil á áhættu í fjármálakerfinu. „Ég sé ekkert sem bendir til þess að það muni ganga hraðar að innleiða það sem Vesturlandabúar líta á sem efnahagsumbætur, en Kínverjar líta á sem fikt í því blandaða haglíkani sem þeir hafa notast við,“ segir Richard Mc- Gregor, fræðimaður hjá Lowy Institute og höfundur bókarinnar The Party. Forsetaembættið mikilvægt Xi hefði getað hermt eftir Vla- dimír Pútín Rússlandsforseta, sem uppfyllti ákvæði laga um há- marks árafjölda í embætti með því að stjórna á bak við tjöldin, eða Mao Zedong sem bar fáa formlega titla. En það hefði lík- lega ekki fallið í kramið hjá þjóð- hollum kínverskum ríkisborg- urum að hafa lepp við stjórnvölinn. Forsetaembættið kann að vera veigaminna innan hins kommún- íska kerfis en það að ráða yfir flokknum sjálfum eða hernum, en er samt það embætti sem er sýni- legast gagnvart kínversku þjóð- inni og umheiminum. „Tíðar heim- sóknir hans til annarra landa eru til marks um að hann langar að setja sinn persónulega stimpil á útrás kínverskra áhrifa á heims- vísu,“ segir Jonathan Fenby, yfir- maður Kínarannsókna hjá TS Lombard. Lítil teymi framfylgja málum Heima fyrir notaði Xi fyrsta kjörtímabil sitt til að bræða ríkið og flokkinn saman, og gróf þannig undan margra áratuga vinnu við að koma á laggirnar stétt faglega skipaðra opinberra starfsmanna. Hann hefur stofnað nýja eftirlits- stofnun sem tvinnar saman innan- hússaga flokksins og hið almenna dómskerfi. Með því að nota „lítil teymi“ til að framfylgja stefnu- málum sínum hefur Xi stytt sér leið fram hjá skrifræði stjórnsýsl- unnar. „Það hefur tekist að koma á breytingu frá óformlegu persónu- bundnu valdi yfir í vald sem tengt er stofnanalegum hlutverkum,“ segir Susan Shirk, stjórnar- formaður 21st Century China- verkefnisins hjá Kaliforníuháskóla í San Diego. „En við sjáum að núna er byrjað að snúa þeirri þró- un við.“ Besta samlíkingin sem finna má í sögubókunum eru síðustu ár valdatíðar Mao, eftir að hann hafði notað menningarbyltinguna til að útrýma öllum valdahópum sem ógn hefði getað stafað af, segir Victor Shih, samstarfsmaður Shirk við UCSD. Dyggir stuðningsmenn for- setans með takmarkaða stjórn- unarreynslu munu komast í valda- stöður, sér í lagi ef valdatíð Xi teygir sig yfir í þriðja og fjórða kjörtímabilið. „Ákvarðanataka mun í vaxandi mæli minna á berg- málsklefa,“ segir hann. „Ef Xi tek- ur ranga ákvörðun þá mun það hafa mikil áhrif og enginn verður til staðar innan kerfisins til að and- mæla.“ Og þó svo það geti aukið sam- kvæmnina í stefnu hins opinbera til skemmri tíma litið þá myndi það auka líkurnar á óstöðugleika til lengri tíma litið, segir Shirk. „Það sem mestu máli skiptir er að búið er að varpa því fyrir róða að völdin á æðstu stöðum skipti um hendur með friðsamlegum hætti. Það var það sem allir töldu að væri lykilinn að stöðugleikanum í valdboði kínverskra stjórnvalda.“ Aukin völd gefa Xi stjórn á efnahagsumbótunum Eftir Lucy Hornby í Peking Xi Jinping hefur jafnt og þétt aukið völd sín enda telur hann sig hæfastan til að tryggja pólitísk og efnahagsleg áhrif Kína. Það getur þó skapað hættu, raði hann einungis í kringum sig dyggum stuðningsmönnum. AFP Ólíkt Mao Zedong, sem bar fáa formlega titla, hefur Xi Jinping lagt áherslu á að gera forsetaembættið sem sýnilegast gagnvart þjóð sinni og umheiminum. Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.