Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 16
Settu starfsfólkið í fyrsta sæti WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn í vélina. Innifalið er hraðferð um borð,máltíð, forfallavernd og sömuleiðis BigSeat, eða besta sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur einu sinni til tvisvar á dag til allra helstu viðskiptaborga Evrópu og Ameríku. WOW Biz kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða. WOW Biz Sumir þurfa einfaldlega meira WOW en aðrir. BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS er VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Átta nýir stjórnendur hjá Icelandair Gagnaver rís á Korputorgi Flytur inn fyrsta bitcoin-hraðbanka Ný Hótel Örk opnuð í maí Húsafell á heimslista Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Ný „smella og sækja“ verslun Lindex á Íslandi verður formlega tekin í notkun í dag, en að sögn Alberts Þórs Magnússonar, umboðsaðila Lindex, er um heimsfrumsýningu á þessari tegund Lindex-verslunar að ræða. Verslunin er byggð upp samkvæmt nýrri hugmyndafræði Lindex og er til húsa á Laugavegi 7, sem áður hýsti undirfataverslun fyrirtækisins. Elísabeth Peregi, forstjóri Lindex, verður viðstödd opnunina. Albert segir í samtali við Viðskipta- Moggann að Íslendingar hafi ekki verið eins fljótir til þegar kemur að kaupum á fatnaði og skóm á netinu og hin norrænu löndin, en í Danmörku er hlutfallið 25% af heildarverslun. „Við Íslendingar náum ekki ennþá tveggja stafa tölu þótt vöxturinn á netinu sé mikill. Tískufyrirtæki eru mikið að horfa í þessa átt, en þetta skref sem við erum að taka er mjög nýstárlegt,“ segir Albert. Þrír valmöguleikar Viðskiptavinir geta með þessu nýja fyrirkomulagi verslað á þrennskonar hátt. Í fyrsta lagi er hægt að mæta í búðina og versla með hefðbundum hætti. Í öðru lagi er hægt að mæta í búðina, máta föt, finna réttar stærðir og ganga svo að tveimur 70 tommu risaspjaldtölvum og velja þar úr öllu vöruúrvali netverslunarinnar og ganga frá greiðslu. Í þriðja lagi er svo hægt að panta heima í stofu og koma svo í búðina og sækja. Ef pantað er fyrir kl. 15 er hægt að sækja vöruna þann sama dag. „Heimurinn er að verða eitt markaðssvæði og þetta eru viðbrögð við því. Nú geta menn versl- að á netinu á lindex.is og í nýju versl- un okkar hér og fengið vöruna af- henta samdægurs,“ segir Albert að lokum. Viðskiptavinur framan við annan af tveimur 70 tommu risaflatskjám í Lindex á Laugavegi 7 þar sem hægt er að skoða allar vörur, panta og greiða fyrir. Verslað á 70 tommu skjá Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Ný „smella og sækja“ verslun Lindex á Lauga- veginum er fyrsta Lindex- búðin í heiminum sem býð- ur upp á slíka þjónustu. Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Stafræna byltingin sem nú er ífullum gangi, aukin sjálfvirkni- væðing, betri nýting á gagna- grunnum, skilvirk úrvinnsla og sífellt betra viðmót í tölvum og tækj- um auðvelda okkur lífið. Það er göldrum líkast hvað fjármálaþjón- usta er að taka miklum framförum. Í appi er á augabragði hægt að af- greiða sig sjálfur um neyslulán, hækkun eða lækkun yfirdráttar- heimilda, breytingar á kreditkorta- heimildum, sparnað, afgreiðslur bíla- og íbúðalána, ofl., ofl. Ég hugsa með hryllingi til baka, til langra biða í síma eftir hinum og þessum fulltrú- um, og í kjölfarið að ýta á eftir afgreiðslu sem gekk hægt eða alls ekki. Og áfram má benda á dæmi úrsamtímanum. TM auglýsir slysabætur afgreiddar á 60 sek- úndum! Strætó gerði mér loksins kleift að nota vagnana þeirra, þegar þeir leyfðu mér að kaupa miða í appi. Í gær fór ég inn á vef Land-spítalans og þar má núna sjá ná- kvæma stöðu á spítalanum: „9 eru á bráðamóttöku barna, 8 eru á Hjarta- gátt, 2 börn hafa fæðst í dag, 21 hef- ur lagst inn í dag, 2.620 eru við vinnu þessa stundina, 9 hafa útskrifast“. Rétt eins og aðgerðirnar hér á und- an geta þessar, að því er virðast, ein- földu upplýsingar gagnast mörgum og gert fólki kleift að skipuleggja tíma sinn betur burt séð frá því hvort fólki þykir þjónustan góð eða slæm. Aukin skilvirkni þýðir aðeins eitt– maður fær meiri tíma til að gera skemmtilegri hluti. Og þetta er bara toppurinn á ísjakanum. Léttara líf Í gær ákváðu aðildarfélög Alþýðu-sambandsins að framlengja kjara- samninga til áramóta jafnvel þótt af- staða forsvarsmanna þess væri sú að forsendur samninganna væru brostnar. Sú niðurstaða var happa- fengur fyrir hagkerfið og allan al- menning um leið því allt bendir til þess að staða þjóðarbúsins sé við- kvæm um þessar mundir. Sú staða er ekki síst komin til vegna þeirra gríð- arlegu launahækkana sem samið hef- ur verið um á síðustu árum og skilað hafa sér í mikilli kaupmáttaraukningu fólks. Mikilvægt er að varðveita þannárangur sem náðst hefur við uppbyggingu kaupmáttarins síðustu árin og forseti ASÍ gerir sér grein fyr- ir að það verður ekki hægt með því að efna til upplausnar á vinnumarkaði. En þrátt fyrir þá staðreynd þurfti reikningskúnstir til að tryggja nið- urstöðuna sem fékkst. Þar sem ljóst var að stærsta félagið vildi segja upp samningum og að allt var farið á taug- um í næststærsta félaginu vegna hall- arbyltingar sem nú hangir eins og skuggi yfir félaginu, varð að tryggja að minnihlutinn teldist meirihluti á formannafundinum. Og þessar kúnstir forystu ASÍskiluðu niðurstöðu sem enginn bjóst við að yrði ofan á. Markaðurinn hafði allur búist við uppsögn samninga og kom það vel fram í Kauphöll Ís- lands. Þar stefndi hlutabréfaverðið niður á við, allt þar til fréttin barst um að samningar héldu. Um klukkan tvö síðdegis snerist taflið við og miðl- ararnir tóku gleði sína á ný. Kaup- höllin lokaði og líktist hún þá helst hlíðinni sem Gunnar vildi ekki yfirgefa um árið, svo iðagræn sem hún var. Nú gefst forystumönnum á vett-vangi atvinnulífsins tækifæri til þess að stilla saman strengi fram að áramótum. Þá væri óskandi að þeim tækist að láta samning taka við af samningi. Slíkt hefur reynst fátíð sjón á íslenskum vinnumarkaði í gegnum tíðina. Á sama tíma verða stjórnvöld að taka til í sínum ranni og tryggja að ákvarðanir á vettvangi þess geti ekki reynst upplausnarliðinu tylliástæða til að tendra upp í púðurtunnunni í upp- hafi árs 2019. Skynsemin bar upplausn- artalið ofurliði að sinni Matvælatæknifyrir- tækið Skaginn 3X skýt- ur rótum í Noregi í byrj- un mars, en þá opnar það útibú í Bodø. Skaginn 3X opnar í Noregi 1 2 3 4 5

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.