Morgunblaðið - 10.03.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 10.03.2018, Síða 2
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikil fjölgun ferðamanna sem koma til landsins og heimsækja áhugaverða staði í náttúru Íslands þýðir að mun meiri kröfur eru gerðar nú en áður til landvarða sem standa vaktina á friðlýstum svæðum, í þjóðgörð- um og víð- ar. Fólki sem sinnir landvörslu, sem í vax- andi mæli er heils- ársstarf, fjölgar og kemur þar til að nú er fólk á ferðinni um landið allt árið, en ekki bara yfir sumartímann. Þetta segir Jón Björnsson, þjóð- garðsvörður á Snæfellsnesi, sem lengi hefur haft umsjón með árlegum landvarðanám- skeiðum Umhverfisstofnun- ar. Námskeiði þessa árs lauk um síðastliðna helgi þar sem 42 nemendur voru braut- skráðir, fólk sem margt fer til starfa úti á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum. „Áhugi fólks á landvörslu- störfum er mikill og námið í stöðugri þróun. Lenging þess og meiri kröfur eru sennilegar í framtíðinni,“ segir Jón Björnsson. Í nám- inu eru teknir fyrir bóklegir sem verklegir þættir, svo sem regluverk þjóðgarða og friðlýstra svæða og á nátt- úrufræði almennt, sjálf- bærni, samskipti, öryggismál og svo framvegis. Einnig taka nemendur vettvangs- nám á Gufuskálum á Snæ- fellsnesi. Mikil breidd Fjöldi leiðbeinenda sinnir kennslu á námskeiðinu, bæði fólk með sérþekkingu og reynslu af landvörslustörf- um. „Fræðsla til ferðamanna verður æ stærri þáttur í öllu starfi landvarða, sem er ann- ars mjög fjölbreytt. Góður landvörður þarf að vera mjög lausnamiðaður, greið- vikinn, hafa góða almenna þekkingu en fyrst og síðast ástríðu fyrir starfi sínu,“ segir Jón Björnsson og held- ur áfram: „Mér fannst sérstaklega ánægjulegt að sjá hvað breiddin í hópi þátttakenda er mikil. Jafnt háskólafólk sem iðnaðarmenn, björgun- arsveitafólk, áhugafólk um útivist, listafólk, kennarar og fleiri sækja í námið og glæða það af reynslu sinni og þekk- ingu, allt fólk sem er fengur að fá í sveit vörslumanna landsins.“ Námið er í stöðugri þróun  42 nýir landverðir voru braut- skráðir  Kröfur í starfi aukast Nám Á landvarðanámskeiði um sl. helgi þegar nemar fóru út á Gróttu á Seltjarnarnesinu, lásu í landið og öfluðu sér fróðleiks. Jón Björnsson MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 Elsta starfandi fasteignasala landsins óskar eftir að ráða öflugan aðila í 100% starf. Um er að ræða fjölbreytt starf í lifandi umhverfi. ÓSKUM EFTIR STARFSMANNI Í SKJALAVINNSLU HELSTU VERKEFNI • Skjalavinnsla, útvegun skjala og gagna • Undirbúningur fyrir kaupsamningsgerð og uppgjör • Samskipti við viðskiptavini • Önnur tilfallandi verkefni HÆFNISKRÖFUR • Haldbær reynsla af sambærilegum störfum • Geta unnið undir álagi • Skipulagshæfileikar • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund • Góð tölvufærni • Hreint sakavottorð Umsóknir óskast sendar til jenny@eignamidlun.is Umsóknarfrestur er til og með 20. mars. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Skemmtileg sumarstörf fyrir 18 ára og eldri Við leitum að fólki í afleysingar við sundlaugarnar, leikskólana, vinnuskóla, garðrækt, umönnun fatlaðra, á bæjarskrifstofurnar, í upplýsingatæknideild bæjarins og fleiri skemmtileg störf. Umsóknartímabil er frá 9. febrúar til 18. mars. Sæktu um á vef Kópavogsbæjar, kopavogur.is. Þar færðu líka nánari upplýsingar um störfin sem eru í boði. Hlökkum til að sjá þig í sumar! kopavogur.is Fjölbreytt og spennandi sumarstörf Gleðilegt sumar í Kópavogi Pi pa r\ TB W A \ S ÍA „Við eigum að fá ferðamenn til liðs við okkur við vernd náttúrunnar. Með fræðslu og leiðbeiningum er það meðal annars hlutverk landvarða að fá gesti okkar með í þá vegferð,“ segir Guðrún Tryggvadóttir myndlistarmaður. Hún hefur starfað sem landvörður á Þing- völlum síðustu misserin en segir að námið hafi verið yfirgripsmikið og gefið sér alveg nýja innsýn í starfið. Guðrún heldur úti vefsetrinu natturan.is þar sem finna má ýmsar upplýsingar um umhverfismál. „Mér fannst landvarðanámskeiðið mjög upplýsandi. Sér- staklega þótti mér gaman að kynnast því sem nefnt er náttúrutúlkun; að flétta fróðleik um náttúru, sögu og menningu saman í eina frásögn, til dæmis í skipulögðum fræðslugöngum eins og landverðir hafa með höndum. Og skemmtilegast er auðvitað að geta brætt rit- og myndlist saman,“ segir Guðrún. Flétta fróðleik í frásögn NÁMIÐ GAF NÝJA INNSÝN Í VIÐFANGSEFNIN Guðrún Arndís Tryggvadóttir Ákveðið hefur verið að vatnsgjald Veitna lækki. Lækkunin verður 10% í stærstu veitunum, í Reykja- vík og á Akranesi, og svo veltur hlutfallið á afkomu hverrar vatnsveitu Veitna. Vatnsgjald er lagt á í upphafi hvers árs og greiðslum dreift á níu mán- uði. Lækkunin sem ákveðin hefur verið gildir fyrir álagningu ársins 2017 og gildir því allt frá síðustu áramótum. Ákvörðunin nú nær ekki til annarra liða gjaldskrár Veitna en vatns- gjaldsins. Á næstu dögum verður endurálagningin reiknuð út. Greiðsluseðlar fyrir apríl verða skv. eldri álagningu en það sem eftir lifir ársins tekur mið af lækkuninni. Veitur dreifa vatni í Reykjavík, á Álftanesi, í Stykkishólmi, Grundarfirði, Akranesi, Borgarfirði og í Úthlíð í Biskupstungum. Einnig selja Veitur Mos- fellsbæ og Seltjarnarnesi vatn í heildsölu. sbs@mbl.is Vatnsgjald Veitna verður lækkað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.