Morgunblaðið - 10.03.2018, Page 5

Morgunblaðið - 10.03.2018, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2018 DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ Lögfræðingur Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir reynslu- miklum lögfræðingi til starfa á skrifstofu réttinda einstaklinga. Undir skrifstofuna heyra ýmsir málaflokkar sem varða réttindi einstak- linga, m.a. fjölskyldumál, málefni útlendinga, mannréttindamál, happdrætti, persónuvernd og málefni sýslumanna. Leitað er að einstaklingi til að sinna verkefnum tengdum málefnum og verkefnum sýslumanna, svo sem samskiptum við embættin, stjórn- sýslueftirliti og stefnumótun, þ. á m. samningu frumvarpa, reglugerða og reglna á sviðinu. Þá felast einnig í starfinu ýmis önnur tilfallandi verkefni á málefnasviði skrifstofunnar. Menntunar- og hæfniskröfur  Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi  Að lágmarki þriggja ára starfsreynsla sem lögfræðingur  Þekking og reynsla af störfum innan stjórn- sýslunnar æskileg  Þekking og reynsla af málefnasviði ráðu- neytisins æskileg  Þekking eða reynsla af stefnumótun æskileg  Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti  Mjög góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti  Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg  Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni  Mjög góð forystu- og samskiptahæfni Nánari upplýsingar veitir Berglind Bára Sigur- jónsdóttir, skrifstofustjóri í síma 545 9000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til og með 26. mars nk. Umsóknir skulu berast í gegnum vef dómsmálaráðuneytisins, www.dmr.is. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynning- arbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Um fullt starf er að ræða. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags háskóla- menntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og á mbl.is ER AUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ Upplýsingafulltrúi Dómsmálaráðuneytið óskar eftir að ráða upplýsingafulltrúa til starfa. Upplýsingafulltrúi ber ábyrgð á fjölmiðlatengslum og ritstýrir vefjum ráðuneytisins. Upplýsingafulltrúa er ætlað að vinna að kynningu á starfsemi ráðuneytisins og verkefnum hennar og vera ráðherra, ráðuneytisstjóra og öðrum starfs- mönnum til ráðgjafar um samskipti við fjölmiðla. Hann fylgist með fréttaflutningi af starfsemi ráðuneytisins og ráðherra og veitir fjölmiðlum og almenningi upplýsingar. Leitað er að drífandi einstaklingi með góða samvinnu- og samskiptahæfni sem hefur áhuga á að taka þátt í mótun nýrra vinnubragða með hópi áhugasamra starfsmanna við uppbyggingu nýs ráðuneytis. Helstu verkefni:  Umsjón með samskiptum dómsmálaráðu- neytisins við fjölmiðla, svör við fyrirspurn- um, gerð fréttatilkynninga o.fl.  Ritstjórn og efnisskrif á vefjum dómsmála- ráðuneytisins, á íslensku og ensku. Menntunar- og hæfniskröfur  Menntun sem nýtist í starfi.  Reynsla af blaða/fréttamennsku.  Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur. Færni í tölvunotkun. Kunnátta í vefumsjónar- kerfum er kostur.  Geta til að vinna hratt og vel undir álagi.  Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni.  Samvinnu og samskiptalipurð og góð fram- koma. Nánari upplýsingar veitir Haukur Guðmunds- son, ráðuneytisstjóri í síma 545 9000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til og með 26. mars nk. Umsóknir skulu berast í gegnum vef dómsmálaráðuneytisins, www.dmr.is. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynning- arbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Um fullt starf er að ræða. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags háskóla- menntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra. www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.