Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 1
SÝNINGARNARVEITA INNBLÁSTUR
Handmálaðir postulínsheftarar sem gleðja augað. 5
Unnið í samvinnu við
Algalíf ræktar örþörunga sem framleiða
öflugt fæðubótarefni sem gagnast við
að jafna sig eftir erfiðar æfingar. 14
VIÐSKIPTA
Egill Fannar Reynisson, framkvæmdastjóri GER
innflutnings, segist fá innblástur í starfi
ferðast til birgja og að fara á sýningar.
ÖFLUGIRÖRÞÖRUNGAR
af því að
4
FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Straumhvörf í arðseminni
Að sögn Þorsteins Arnar Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Meet in Reykjavík, eru straumhvörf
að verða í arðsemi fyrirtækja í
ferðaþjónustu. „Ef eitthvað þarf að
vera áberandi umræðuefni í sam-
félaginu þá er það þetta, enda stend-
ur ferðaþjónustan undir 43% af okk-
ar útflutningstekjum,“ segir
Þorsteinn í samtali við Viðskipta-
Moggann.
Hann segir að eitt af því sem
hægt sé að gera til að spyrna við fót-
um sé að auka vægi svokallaðra
MICE-ferðamanna til landsins en
það eru ferðamenn sem koma til að
taka þátt í ráðstefnum, fundum,
hvataferðum eða sýningum. „Þeir
geta haft töluvert vægi í því að auka
arðsemi í íslenskri ferðaþjónustu.“
Þorsteinn bendir á að ef hlutfall
MICE-ferðamanna ykist um eitt
prósentustig miðað við 2,5 milljón
ferðamenn, eins og spár gera ráð
fyrir árið 2018, þýddi það 3,5 millj-
arða í auknum útflutningstekjum.
Undanfarin ár hefur, að sögn Þor-
steins, gengið vel að fjölga MICE-
ferðamönnum hér á landi eða um
15,1% að meðaltali á ári á tímabilinu
2011-2016. „Hlutfall MICE-
ferðamanna er rúmlega 6% af heild-
arfjölda ferðamanna hér á landi en í
þeim löndum sem mestum árangri
hafa náð er algengt að hlutfallið sé á
bilinu 15-20%,“ segir Þorsteinn.
Hann segir að verðmætin í þess-
ari tegund ferðamanna felist einnig í
bættri nýtingu innviða, svo sem
hótelum, funda- og ráðstefnurým-
um, og jákvæðum árstíðahalla en
80% MICE-gesta komi til landsins
utan skilgreinds háannatíma.
Þorsteinn segir að það sama sé að
gerast hér á landi og gerðist í Kosta
Ríka og Nýja Sjálandi þar sem
tekjuaukning af ferðamennsku fór
minnkandi á sama tíma og ferða-
mönnum fjölgaði. „Þróunin hefur
verið í ranga átt.“
Davos jafnréttisins
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Icelandair
Hotels, tekur í sama streng og Þor-
steinn og segir að það skipti gríð-
arlega miklu máli að horfa til
MICE-ferðamanna. „Í þessu sam-
hengi skiptir líka máli að skapa okk-
ur sérstöðu,“ segir Magnea og nefn-
ir velheppnaða Arctic Circle
ráðstefnu í haust og Heimsþing
kvenleiðtoga sem haldið verður í
Hörpu í Reykjavík árlega í nóv-
ember frá árinu 2018 til ársins 2021.
„Þar höfum við markað okkur sess
sem jafnréttisland. Það skiptir máli
að það sé stefnumarkandi hvað
áfangastaðurinn stendur fyrir. Við
gætum orðið fyrir jafnréttismál það
sem Davos í Sviss er fyrir viðskipti.“
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Engin umræða er mikil-
vægari nú um stundir en
umræðan um arðsemina
í ferðaþjónustunni, að
mati framkvæmdastjóra
Meet in Reykjavik.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meet in Reykjavík var stofnað árið 2012 af Reykjavíkurborg, Icelandair
Group og Hörpu ásamt nokkrum hagsmunaaðila í ferðaþjónustu.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
15.9.‘17
15.9.‘17
14.3.‘18
14.3.‘18
1.659,23
1.759,99
130
125
120
115
110
127,15
122,95
Eva Cederbalk, stjórnarformaður
Arion banka, telur að það væri æski-
legt fyrir framtíð Valitor að fjölga í
eigendahópi eða breyta eignarhaldi
með einhverjum hætti. „Valitor hef-
ur vaxið mikið erlendis á undan-
förnum árum, m.a. með yfirtöku
fyrirtækja, og eru nú um 70% tekna
félagsins vegna starfsemi erlendis.
Áform eru um frekari vöxt erlendis
en slíkt kallar á umtalsverða fjár-
festingu sem ekki er án áhættu. Ég
myndi telja æskilegt fyrir framtíð
þess félags að t.d. fjölga í eigenda-
hópi eða breyta eignarhaldi með ein-
hverjum hætti. Við erum að skoða
þessi mál og meta kosti og galla.“
Aðalfundur Arion banka fer fram í
dag og verður fækkað í stjórn úr
átta í sjö þegar fulltrúi Bankasýsl-
unnar fer úr stjórninni. Herdís
Dröfn Fjeldsted kemur ný inn í
stjórn í stað Þóru Hall-
grímsdóttur.
Breytt eignarhald á Valitor æskilegt
Morgunblaðið/Hari
Eva Cederbalk segir stjórina meta
kosti og galla eignarhalds á Valitor.
Vöxtur Valitor erlendis
kallar á áhættusamar fjár-
festingar, að mati stjórnar-
formanns Arion banka.
8
Hugsanlega mun næsta rík-
isstjórn Ítalíu spilla hug-
myndum Frakka og Þjóðverja
um umbætur á
evrusvæðinu.
Ítalía skekur
evrusvæðið
10
Líklegt er að ef verðið á
bitcoin lækkar undir 6.600 dali
muni ágóði fjölmargra raf-
myntanáma verða
að engu.
Lex: Dýrt að grafa
eftir rafmyntum
11