Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018FRÉTTIR Við fjármögnum innflutninginn fyrir þitt fyrirtæki Nánari upplýsingar má finna á kfl.is Starfsemi GER innflutnings hefur dafnað vel að undanförnu en undir fyrirtækið heyra Húsgagnahöllin, Betra Bak, Ger heildsala og Dorma, sem nýlega opnaði sína fjórðu verslun. Egill Fannar stýr- ir fyrirtækinu en hann byrjaði ungur að starfa við verslunar– rekstur. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Okkar rekstur hefur stækkað töluvert undanfarin ár. Innleiðing nýrra kerfa í nýju vöruhúsi okkar að Korputorgi er það verkefni sem við erum mikið að sinna þessa dagana. Hver var síðasta ráðstefnan sem þú sóttir? Fyrirmyndarfyrirtæki Credit- info í Hörpunni um daginn. Það var gaman að upplifa jákvæðnina og kraftinn í fólki þar. Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Held mikið upp á Robin Sharma og gamla góða Dale Carnegie. Ég er mikill aðdáðandi sjálfsævisagna og var að klára sögu Sir Richard Branson sem var afar skemmtileg. Hver myndi leika þig í kvikmynd um líf þitt og afrek? Ég myndi segja Brad Pitt því hann á víst líka einhvern slatta af börnum og það hlýtur að vera eitt mesta afrek okkar beggja. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Að vinna með öflugu og krefj- andi fólki sem lætur aldrei deigan síga – það eitt fær mig til að hlakka til að koma í vinnuna og gera betur í dag en í gær. Þegar maður hættir að breytast þá er maður búinn að vera og það á sannarlega við í verslunarrekstri. Hugsarðu vel um líkamann? Já, ég hef gert það. Hef verið með einkaþjálfara í mörg ár og það er ein besta fjárfesting sem ég hef gert fyrir sjálfan mig. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Það hefur verið ákveðin stöðug- leikaþróun undanfarin misseri sem hefur verið kærkomin, en á sama tíma er rekstrarkostnaður fyrirtækja á Íslandi orðinn hár, m.a. launaþróun og vaxtastig. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Að starfa með kröftugu og skemmtilegu samstarfsfólki sem er með sérþekkingu á sínu sviði veitir mér mikinn innblástur. Einnig ferðast ég töluvert til okk- ar birgja og á sýningar, og fæ þar oft góðan innblástur. SVIPMYND Egill Fannar Reynisson framkvæmdastjóri GER innflutnings „Þegar maður hættir að breyt- ast þá er maður búinn að vera“ Morgunblaðið/Hari Egill segir það hafa verið eina af sínum bestu fjárfestingum að kaupa þjónustu einkaþjálfara. Hann heldur upp á boðskap Robin Sharma. ÁHUGAMÁLIÐ Áhugafólk um golf veit að þegar kemur að því að fullkomna höggið skiptir höfuðmáli að fætur og kylfa séu á réttum stað. Í réttri stöðu smellur kylfan einmitt þar sem ætl- ast er til og kúlan flýgur í átt að holunni frekar en út í næstu sand- gryfju eða tjörn. SQRDUP er nýtt tæki sem á að hjálpa til við að bæta fóta- og kylfustöðuna. Um er að ræða litla græju sem beinir björtum leysi- geisla í fjórar áttir. Geislarnir mynda línur á grasfletinum svo að kylfingurinn getur stillt sér upp af nákvæmni áður en hann reiðir kylf- una til höggs. Rafhlaðan á að duga í 2,5 klukkustundir og leysigeislarnir eru nógu skærir til að nota megi tækið í dagsbirtu. Safnað er fyrir framleiðslu SQRDUP á Indiegogo og geta áhugasamir tryggt sér eintak með 169 dala framlagi. ai@mbl.is Til að ná hárréttu höggi NÁM: Gagnfræðingur frá Grunnskólanum á Egilsstöðum og skóli lífsins, úr þeim síðarnefnda er ég langt frá því að vera út- skrifaður. STÖRF: Verslunarreksturinn hefur varað í tvo áratugi en ég verð fertugur í ár. ÁHUGAMÁL: Golf, renna fyrir lax, skíða og ferðast með fjöl- skyldunni eða vinum er það sem ég uni mér best við í mínum frí- tíma. Einnig hef ég mikinn áhuga á hönnun og fallegum hlutum svo ég gleymi nú ekki góðu rauðvíni. FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er kvæntur Huldu Rós Hákonardóttur og eigum við fjögur börn, tvær dætur og tvo syni sem komu öll í beit á fjórum árum. (Við vorum einmitt að ferma þá elstu um síð- ustu helgi.) HIN HLIÐIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.