Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 8
en til skráningar kemur, og hvort til standi að
fækka dótturfélögum eða minnka eigið fé, vill
hún ekki staðfesta neinar ákvarðanir í þá veru.
„Ég held að það sé eðlilegt fyrir bankann, rétt
eins og önnur fyrirtæki, að taka skipulag sitt til
endurskoðunar og gera breytingar sem þörf er
á og myndu vera æskilegar fyrir framtíð bank-
ans. En eins og Arion banki er núna tel ég hann
vera tilbúinn fyrir skráningu.“
Hún segir að bankinn sé vissulega ríflega
fjármagnaður. „Eiginfjárhlutföll okkar eru
mjög há og einhverjir gætu litið á það sem
ókost. En það eru möguleikar á því að minnka
eiginfjárhlutfallið t.d. með arðgreiðslum, og það
gæti vel verið inni í myndinni.“
En hvað með dótturfélag eins og Valitor, sem
sækir einkum á aðra markaði? „Það er öflugt
fyrirtæki en meirihluti af starfsemi þess er al-
þjóðlegur. Valitor hefur vaxið mikið erlendis á
undanförnum árum, m.a. með yfirtöku fyrir-
tækja, og eru nú um 70% tekna félagsins vegna
starfsemi erlendis. Áform eru um frekari vöxt
erlendis en slíkt kallar á umtalsverða fjárfest-
ingu sem ekki er án áhættu. Ég myndi telja
æskilegt fyrir framtíð þess félags að t.d. fjölga í
eigendahópi eða breyta eignarhaldi með ein-
hverjum hætti. Við erum að skoða þessi mál og
meta kosti og galla.“
Vill sjá innlenda og alþjóðlega fjárfesta
Rætt hefur verið um skráningu Arion banka í
erlendri kauphöll en fyrirrennari bankans,
Kaupþing banki, var skráður í kauphöllinni í
Stokkhólmi. Cederbalk telur að hægt væri að
auka veltu viðskipta með bréf Arion banka við
erlenda skráningu. „Það hefur ekki verið tekin
ákvörðun varðandi skráningu bankans á mark-
að hér á landi eða erlendis en skráning er vissu-
lega einn af þeim kostum sem við erum að
skoða. Ef af verður þá á ég ekki von á öðru en að
Arion banka verði vel tekið á markaðnum sem
áhugaverðu fjárfestingartækifæri. Reynist það
rétt ályktun eru góðir möguleikar á umtals-
verðum viðskiptum með bréfin. Því að sjálf-
sögðu er það afar mikilvægt fyrir fjárfesta að
það sé virkur markaður og auðvelt að eiga við-
skipti með hlutabréfin. Ég held að erlend
skráning auki möguleikann á því að það verði
góð velta.“
Cederbalk leggur áherslu á að fá breiðan
flokk eigenda á bak við bankann. „Ég myndi
vilja sjá fjölbreytilegan hóp fjárfesta koma inn í
hluthafahópinn, og þá bæði innlenda fjárfesta
en einnig alþjóðlega. Ég myndi telja æskilegt
að fá alþjóðlega fjárfesta til dæmis frá Norður-
löndunum, Bretlandseyjum og öðrum mörk-
uðum. Að því sögðu tel ég að það sé einnig afar
mikilvægt að hafa umtalsverðan hluta hluthafa-
hópsins innlendan.“
Spurð að því hvort hún telji þá erlendu vog-
unarsjóði sem nú eru stærstu hluthafar bank-
ans muni verða í hópi langtímaeigenda, segir
hún ekki rétt að hún sé að tjá sig um það eða
leggja mat á eigendur. „En þegar ég tala um
fjölbreytilegan hóp fjárfesta, felur það í sér að
vogunarsjóðir geti vel verið mikilvægur hluti af
hluthafahópnum til framtíðar. En fyrst og
fremst myndi ég vilja sjá fjölbreyttari hóp en nú
er og það tel ég að verði gott fyrir bankann.“
Bankaskatturinn lagður á sparnað
Eins og fram hefur komið hefur Cederbalk
töluverða reynslu af stjórnarstörfum í fjármála-
stofnunum í mismunandi löndum, ekki síst í Sví-
Töluverðar sviptingar hafa verið í kringum Arion
banka undanfarna mánuði og ár. Nýlega seldi rík-
issjóður 13% hlut sinn í bankanum á grundvelli
kaupréttarákvæðis í hluthafasamkomulagi við
Kaupskil frá árinu 2009. Eignarhald Arion banka
hefur mætt nokkurri tortryggni í samfélaginu og
um allangt skeið hefur legið í loftinu að stór hlut-
ur verði boðinn fjárfestum til kaups í tengslum
við skráningu í innlenda og erlenda kauphöll.
Eva Cederbalk frá Svíþjóð tók við stjórnar-
formennsku í Arion banka nokkuð óvænt um mitt
síðasta ár eftir að landa hennar Monica Caneman
lét af formennsku í maí, tveimur mánuðum eftir
að hafa verið endurkjörin í stjórnina og eftir að
hafa gegnt stjórnarformennsku um sjö ára skeið.
Hvernig kom það til að leitað var til Cederbalk?
„Ég hef viðamikla reynslu af því að starfa hjá
fjármálafyrirtækjum og þá einkum bönkum. Ég
hef gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum
þ.m.t. starfi framkvæmdastjóra og forstjóra og
hef umtalsverða reynslu af stjórnarsetu og
stjórnarformennsku. Ég hef verið það lánsöm að
starfa bæði hjá fyrirtækjum á Norðurlöndum,
svo sem hjá Skandinaviska Enskilda Banken um
árabil, og hjá alþjóðlegum fyrirtækjum. Ætli
þessi reynsla sem ég bý að hafi ekki verið meg-
inástæða þess að ég var beðin um að taka að mér
stjórnarformennsku hjá Arion banka fyrir um
ári.“
Eitt að meginverkefnum stjórnar hefur verið
undirbúningur í tengslum við væntanlega sölu
Arion banka og skráningu á hlutabréfamarkað.
Cederbalk telur að þrátt fyrir að Arion banki sé
smár í alþjóðlegum samanburði og starfi á litlum
markaði, þá muni hann vekja áhuga alþjóðlegra
fjárfesta. „Það er rétt að sala á hlut Kaupskila
hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið og
einn af þeim kostum sem í skoðun eru er almennt
hlutafjárútboð og skráning. Við höfum orðið vör
við áhuga frá fjárfestum á bankanum en í dag er
líklega meiri þekking meðal alþjóðlegra fjárfesta
á Íslandi og íslensku efnahags- og fjármálakerfi
en áður. Íslenskt efnahagslíf stendur sterkum
fótum eftir efnahagsbatann undanfarin ár og
sama er hægt að segja um íslensk fjármálafyr-
irtæki.“ Hún telur það styrkleika að Arion banki
sé alhliða íslenskur banki, sem starfi eingöngu á
Íslandi og hafi sterka stöðu á þeim mörkuðum
sem hann starfar á. „Margir fjárfestar líta á það
sem kost að fyrirtæki séu ekki alþjóðleg heldur
njóti sterkrar stöðu á sínum markaði sem þau
þekkja vel. Fjárfestingar ganga að miklu leyti út
á áhættudreifingu. Hjá mörgum felur fjárfesting
á Íslandi í sér áhættudreifingu og því jákvætt að
bankinn sé aðeins starfandi á Íslandi og mik-
ilvægur hlekkur í íslensku efnahagslífi.“
En sé efnahagslegur uppgangur á Íslandi
ástæða fyrir áhuga erlendra fjárfesta, munu þá
ekki spár um minni hagvöxt á komandi árum og
aukin hætta á innlendum kostnaðar- og launa-
hækkunum fæla fjárfesta frá? „Það er eðlilegt að
vöxtur í efnahagslífinu taki breytingum,“ segir
Cederbalk. „Vöxturinn undanfarin ár var á tíma-
bili í það mesta og stundum getur slíkt endað illa.
En nú hefur hægt aðeins á vextinum og útlit fyrir
mjúka lendingu sem er afar jákvætt. Ég held að
almennt líti fjárfestar á þróunina á Íslandi með
jákvæðum hætti og þessi þróun nú ætti ekki að
hafa neikvæð áhrif á fjárfesta sem horfa til Ís-
lands með langtíma fjárfestingu í huga.“
Æskilegt að fjölga eigendum Valitor
Þegar borið er undir Cederbalk hvort sam-
stæða Arion banka muni taka breytingum áður
„Margir fjárfestar líta á það sem kost að
fyrirtæki séu ekki alþjóðleg heldur njóti
sterkrar stöðu á sínum markaði sem þau
þekkja vel, “ segir Eva Cederbalk.
Best að vera hugmyndarík
Sigurður Nordal
sn@mbl.is
Eva Cederbalk tók við formennsku í stjórn Arion banka í júní síðast-
liðnum. Hún vonar að bankaskatturinn verði lagður niður enda felist í
honum skattlagning á sparnað. Hann skekki samkeppnisstöðu og dragi
úr arðsemi, og geti þannig haft áhrif á áhuga fjárfesta á bankanum.
Cederbalk segir að ekki dugi fyrir fjármálafyrirtæki að láta regluverkið fara
í taugarnar á sér heldur þurfi að einblína á hvað gera megi betur í þjónust-
unni. Að hennar mati væri æskilegt fyrir framtíð Valitor að fjölga í eigenda-
hópi félagsins eða breyta eignarhaldi þess með einhverjum hætti.
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018VIÐTAL
Eva Cederbalk á að baki langan feril á fjármálamarkaði. Hún hóf sinn starfsferil hjá Skandinav-
iska Enskilda-bankanum á árunum 1975 til 1998. Hún starfaði svo hjá tryggingafélögum um
skeið en varð forstjóri Netgiro Systems 2002 og gegndi svo forstjórastarfi hjá SBAB Bank frá
2004 til 2011.
Cederbalk stýrir nú eigin fyrirtæki, Cederbalk Consulting, en hún hefur setið í fjölmörgum
stjórnum. Hún var meðal annars stjórnarformaður Klarna 2009-2016 og sat í stjórn Gimi AB
2016-2017 og Íslandsbanka 2015-2016. Auk þess að vera stjórnarformaður Arion banka situr
Eva nú í stjórn Bilia, Svolder, Ikano Group og National Bank of Greece Group, stærstu banka-
samstæðu Grikklands.
Cederbalk hefur í gegnum stjórnarstörfin fylgst vel með þróun efnahagsmála á Grikklandi og
segist hún telja landið komið yfir erfiðasta hjallann. „Ástandið er á réttri leið. Það gerist ekki
sérlega hratt en stefnir hiklaust í rétta átt. Undirstöðurnar líta nokkuð vel út þótt hagkerfið sé
enn fremur veikburða, fjárfestingarstigið lágt og markaðir enn tiltölulega daufir. En ég er sann-
færð um að ástandið mun batna eftir því sem á líður.“
Eva Cederbalk segir það afar áhugavert að sitja í stjórnum banka í sitthvoru horni Evrópu
sem glímt hafi við áföll. „Það lá nú í sjálfu sér ekki fyrir að ég myndi taka stjórnarsæti í íslensk-
um banka. En það er lærdómsríkt að fylgjast svona samhliða með því hvernig íslenski og gríski
fjármálamarkaðirnir eru að þróast, og sjá hverju má áorka ef rétt er á spilunum haldið og fólk
leggur hart að sér, eins og reyndin hefur verið á Íslandi. Það má færa þá reynslu og þekkingu yfir
á stærra markaðskerfi eins og Grikkland.“
Hún segir krafta grísku bankanna fara að miklu leyti í að glíma við vandræðalán en að það sé
mikilvægt að þeir sinni jafnframt þeim viðskiptavinum sem ekki eru að glíma við fjárhags-
erfiðleika. „Jafnvel þótt efnahagskreppur þessara tveggja landa hafi verið eðlisólíkar, þar sem í
Grikklandi var vandinn hjá ríkinu ólíkur því sem var á Íslandi, þá er áhugavert að sjá hverju hægt
er að áorka eftir að fjármálakerfið hefur nánast hrunið til grunna.
Ísland og íslensk fjármálafyrirtæki hafa góða sögu að segja varðandi þau ótrúlega efnahags-
legu umskipti sem hér hafa átt sér stað á undanförnum árum. Ísland er gott dæmi um hvernig er
hægt að takast á við og leysa risavaxin vandamál og áskoranir. Grikkland er enn að kljást við
erfiðleikana en ég tel þó að þar hafi botninum verið náð,“ segir Eva Cederbalk.
Lærdómsríkt að bera saman íslenska og gríska markaðinn