Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 11

Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 11FRÉTTIR Af síðum Það má græða á bitcoin með tvennum hætti: með heppni eða með erfiðismunum. Því miður fyrir þá sem misstu af lestinni þegar rafmyntin rauk upp í verði þá er erfiða leiðin, námugröfur, farin að verða býsna kostnaðarsöm. Dag hvern verða til 1.800 nýjar bitcoin-myntir. Sú umb- un sem kerfið veitir fyrir að búa til nýjan „bálk“ í bálkakeðjunni (12,5 bitcoin-myntir eins og stendur) með því að láta tölvu gera annars algjörlega tilgangslausa útreikninga, fer lækkandi eftir því sem mynt- um í umferð fjölgar. Því meiri reiknigetu sem beitt er til að búa til bit- coin, því erfiðara verður að hljóta umbun. Sá mikli vöxtur sem orðið hefur í rafmyntanámugrefti hefur valdið því að fjöldi örgjörvaaðgerða á sekúndu sem notaður er til að framleiða bitcoin hefur tvöfaldast síðan í desember. Framlegð af rekstri rafmyntanáma ræðst bæði af verði rafmynt- anna sem þau fá að launum og verði raforkunnar sem þau kaupa til að keyra og kæla örgjörvana sína. Fjárfestingarbankinn Jeffries segir að það kosti rafmyntafyrirtækið Atlas Cloud 902 dali í rafmagni að fram- leiða eina bitcoin-mynt. Miðað við að bitcoin kostar 9.500 dali um þess- ar mundir, þá jafngildir það um 90% framlegð. En þá er ekki búið að telja með kostnaðinn við að komast yfir vél- búnaðinn sem þarf í námastarfsemina. Japanska samsteypan GMO Internet vill auka bitcoin-reiknigetu sína, að hluta til að geta leigt út til aðila sem vilja framleiða rafmyntir sjálfir, um sem nemur einum átt- unda af allri núverandi bitcoin-reiknigetu heimsins. Væri það 38 millj- arða jena (356 milljóna dala) fjárfesting. Það þýðir að hver bitcoin- mynt myndi kosta 5.700 dali að meðtöldum rafmagnskostnaði og er þá miðað við að reiknigetan á heimsvísu haldist að öðru leyti óbreytt. Þetta gætu virst vera góð viðskipti. En ört vaxandi reiknigeta mun fara illa með svona plön. Rafmagnskostnaður Atlas Cloud er ekki hærri vegna þess að fyrirtækið nýtur góðs af því að vera nálægt Grand Coulee stíflunni í Washington-ríki sem framleiðir ódýra vatnsafls- raforku. Markaðsverð bitcoin þyrfti að vera 11.000 dalir ef fyrirtæki sem borgar tvöfalt meira fyrir rafmagnið ætti að ná sambærilegum hagnaði. Ef verð rafmyntarinnar lækkar undir 6.600 dali þá ágóðinn að engu. Jákvæða fylgnin á milli virkrar reiknigetu bitcoin-hagkerfisins og verðs bitcoin hefur þegar hrunið. Sífellt fleiri rafmyntanámur keppa hver við aðra og verð bitcoin er helmingi lægra nú en þegar það var hæst. Lukkan er á þrotum hjá mörgum sem keyptu bitcoin og veðjuðu á hækkandi verð. Núna virðist lukkan líka á þrotum hjá rafmyntanámunum. LEX AFP Bitcoin: Rafgröftur Vogunarsjóðir hafa tekið skortstöðu í stærstu auglýsingastofum heims fyrir meira en 3 milljarða dala. Þetta gera þeir með það fyrir augum að hagnast á því að auglýsingabransinn sé að ganga í gegnum sársaukafullar breytingar og glími við hægari vöxt. Sjóðir á borð við Marshall Wallace í Bretlandi auk Lone Pine og Maver- ick Capital í Bandaríkjunum hafa tekið skortstöðu í hlutabréfum frönsku auglýsingastofunnar Public- is fyrir samtals 280 milljónir evra, að því er fram kemur í kauphallar- tilkynningum. Byggist það á því að hlutabréf fyrirtækisins hafa enn haldið verðgildi sínu á meðan gengi hlutabréfa keppinauta þess hefur hríðfallið. Hafa hagnast á verðfalli WPP Þannig féll gengi hlutabréfa í WPP í síðustu viku og er nú lægra en það hefur verið í þrjú ár. Hefur það lækkað um 10% frá ársbyrjun. Vog- unarsjóðir sem hafa fengið að láni hlutabréf í félaginu fyrir andvirði 920 milljóna punda til að skortselja þau og hafa náð að hagnast vel, ef marka má gögn frá Markit. WPP birti á dögunum uppgjör síðasta rekstrar- árs, sem forstjóri félagsins lýsti sem „bylmingshöggi“, og lækkuðu hluta- bréfin við það enn frekar í verði. Vogunarsjóðir hafa líka tekið skortstöðu fyrir 2,2 milljarða dala í Omnicom sem jafngildir 13% af öllu hlutafé fyrirtækisins, samkvæmt gögnum Markit, og veðjað 426 millj- örðum dala á að hlutabréf Inter- public lækki í verði. Eiga undir högg að sækja Hlutabréf auglýsinga- og birtinga- stofa hafa hríðfallið í ljósi þess að við- skiptamódel þeirra á undir högg að sækja og alþjóðafyrirtækin sem skipta við stofurnar vilja lækka hjá sér útgjöldin. Þá hjálpar svo ekki að Facebook og Google hafi ráðandi stöðu á netauglýsingamarkaði. Stóru neytendavöruframleiðend- urnir, sem eru mikilvægir viðskipta- vinir fyrir auglýsingageirann, finna fyrir vaxandi þrýstingi frá aðgerða- sinnuðum fjárfestum um að hífa upp framlegðina á sama tíma og margir þeirra glíma við hægari tekjuvöxt og aukna samkeppni við ný vörumerki. Það undirstrikaði enn frekar vandamál auglýsingageirans að fyrr í þessum mánuði sagði yfirmaður vörumerkjastjórnunar hjá Procter & Gamble, stærsta auglýsingakaup- anda heims, að fyrirtækið myndi „taka aftur stjórnina“ á eigin mark- aðsstarfi með því að vinna meira af því innanhúss. Gagnrýndi aðgerðasjóði Rannsókn sem Citi birti í síðustu viku bendir til að a.m.k. 0,7% af heild- artekjum Omnicom og WWP séu í hættu vegna væntanlegra árangurs- matsfunda hjá viðskiptavinum þeirra. Martin Sorrell, forstjóri WWP, beindi spjótum sínum í fyrra að aðgerðasinnuðum vogunarsjóðum fyrir að þrýsta á viðskiptavini auglýs- ingastofunnar að „snarminnka fjár- festingu í markaðsstarfi þegar þau ættu í raun að fjárfesta meira,“ og hélt því fram að þetta væri ástæðan fyrir því að sölutekjur fara lækkandi í greininni. Aðgerðasinnaði sjóðurinn Trian Partners í New York, sem Nelson Peltz stýrir, tryggði sér sæti í stjórn P&G á síðasta ári eftir harða baráttu um áhrif í fyrirtækinu. Ekki veðja allir gegn stofunum Þó svo að vogunarsjóðir hafi hagn- ast vel á því að skortselja hlutabréf auglýsingastofa þá hafa sumir fjár- festar veðjað á hið gagnstæða og telja að vandinn við viðskiptamódel stofanna sé ekki eins alvarlegur og markaðurinn heldur. David Herro, fjárfestingastjóri hjá Harris Associates, hélt á 766 milljóna punda hlut í WPP við lokun markaða á föstudag og 755 milljóna evra hlut í Publicis. Herro hefur sagt að hann telji núverandi hluta- bréfaverð WPP ekki endurspegla raunverulegt virði fyrirtæk- isins. Vogunarsjóðir taka stöðu gegn auglýsingarisum Eftir Miles Johnson í London Auglýsingageirinn gengur um þessar mundir í gegn- um breytingartíma og hafa vogunarsjóðir séð sér leik á borði og tekið stórar skortstöður gagnvart stærstu fyrirtækjunum. AFP Martin Sorrell forstjóri WPP, stærsta auglýsingafyrirtækis veraldar, hefur gagnrýnt aðgerðasinnaða vogunarsjóði fyrir að þrýsta á stórfyrirtæki að minnka fjárfestingu í markaðsstarfi þegar þau ættu í raun að fjárfesta meira. Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.