Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 13
BÓKIN
Í dag ræður tæknin miklu um það
hvað við sjáum og heyrum. YouTube
fræðir okkur og skemmtir og reynir
að giska á hvaða nýja efni höfðar
mest til okkar. Face-
book gerir það sama,
og getur í leiðinni óaf-
vitandi ráðið því hvaða
nýju vini við eignumst
eða hvaða ættingja við
fjarlægjumst. Leit á
Google virðist veita hið
endanlega svar við öll-
um lífsins spurningum,
og því skiptir ekki litlu
máli að leitarniður-
stöðurnar gefi raun-
sanna mynd af heim-
inum.
Safiya Umoja Noble er hrædd um
að algrímin sem áttu að gera inter-
netið betra gætu verið að valda
ómældu tjóni.
Noble er höfundur bókarinnar
Algorithms of Oppression: How
Search Engines Reinforce Racism.
Eins og titillinn gefur til kynna er
Noble einkum hugleikið hvernig
gölluð algrím geta endurspeglað
ljótari hliðar samfélagsins, eins og
kynþáttafordóma og klámvæðingu,
en efni bókarinnar varðar ekki síður
hvernig risar internetsins geta mót-
að viðhorf okkar og heimssýn til hins
verra eða til hins betra. Vill hún
vekja lesandann til umhugsunar um
að vefsíður eins og
Google og Facebook,
sem við reiðum okkur
á sem gátt að upplýs-
ingum, menningu,
hugmyndum og öðru
fólki, eru fyrst og
fremst auglýsinga-
fyrirtæki og því hætt
við að það sem við
sjáum þjóni ekki bara
okkar hagsmunum
heldur líka hags-
munum auglýsinga-
kaupenda og annarra
áhrifavalda.
Hún bendir líka á hvernig t.d. leit-
arniðurstöður á Google geti haldið
að okkur ranghugmyndum og
staðalmyndum sem algrímin hafa
bitið í sig. Það segir sína sögu að ef
gerð er myndaleit á Google að
„læknum“ birtist mikill flaumur af
hvítu fólki í læknasloppum og
sárafáar myndir af læknum af öðr-
um kynþáttum. ai@mbl.is
Þegar algrímin beina
okkur á ranga braut
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 13SJÓNARHÓLL
Samkeppnislög nr. 44/2005 mæla fyrir um eftirlit sam-keppnisyfirvalda með sameiningum fyrirtækja.Með samruna í skilningi laganna er ýmist átt við að
tvö eða fleiri fyrirtæki, sem áður störfuðu sjálfstætt, sam-
einist þannig að úr verði nýr lögaðili eða að eitt fyrirtæki
taki yfir annað fyrirtæki, hvort sem félögin „renna saman“ í
kjölfarið eða ekki. Hugtakið samruni í samkeppnisrétti tek-
ur raunar til allra kringumstæðna þar sem yfirráð yfir fyrir-
tæki, í heild eða að hluta, breytast til frambúðar, hvernig
sem slík yfirráðabreyting er tilkomin. Með yfirráðum er átt
við þann möguleika eins aðila (eða fleiri aðila sameiginlega)
að ráða mikilvægum atriðum í rekstri fyrirtækis, eins og
skipan stjórnar, ráðningu lykil-
starfsmanna, rekstrar- og fjárfest-
ingaráætlunum o.þ.h.
Ef samruni í skilningi sam-
keppnislaga á sér stað þarf að til-
kynna hann til Samkeppnis-
eftirlitsins ef samrunafyrirtækin ná
tilteknum veltumörkum. Sé sam-
runi tilkynningarskyldur er óheim-
ilt að láta samrunann koma til
framkvæmda fyrr en Samkeppnis-
eftirlitið hefur lokið sinni skoðun á
honum og eftir atvikum samþykkt
hann eða a.m.k. ekki lagst gegn
honum.
Í 17. gr. c. í samkeppnislögum er ákvæði sem felur í sér að
telji Samkeppniseftirlitið að samruni hindri virka sam-
keppni með því að markaðsráðandi staða eins eða fleiri
fyrirtækja verði til eða styrkist, eða verði til þess að sam-
keppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti, geti
stofnunin ógilt samruna eða sett honum skilyrði. Þessi regla
felur því í sér grundvöllinn fyrir íþyngjandi afskiptum
Samkeppniseftirlitsins af samruna. Hyggist Samkeppnis-
eftirlitið beita íþyngjandi íhlutun í samruna, í formi ógild-
ingar eða skilyrða, verður eftirlitið að sýna fram á að skil-
yrði þessa ákvæðis séu uppfyllt.
Reglan er í raun tvíþætt. Annars vegar má ógilda sam-
runa, eða setja honum skilyrði, ef samruni verður til þess að
markaðsráðandi staða verður til eða slík staða styrkist. Við
mat á því hvort ástæða sé til að ætla að samruni hafi þetta í
för með sér mun Samkeppniseftirlitið kanna markaðs-
hlutdeild samrunafyrirtækjanna og samþjöppun á þeim
markaði sem samruninn tekur til. Ef markaðshlutdeild er
umtalsverð (yfirleitt um eða yfir 50%) eða samþjöppun telst
veruleg á markaði (fá og stór fyrirtæki á markaði) gefur það
tilefni til ítarlegri skoðunar á líklegum áhrifum samruna.
Meta þarf þá hvort markaður telst opinn eða lokaður fyrir
nýrri samkeppni, hvort viðskiptavinir samrunafyrirtækj-
anna búa yfir því sem kallað er kaupendastyrkur o.fl., allt í
því skyni að finna útúr því hvort samruninn verður til þess
að markaðsráðandi staða verði til eða slík staða styrkist.
Hins vegar getur Samkeppnis-
eftirlitið ógilt samruna eða sett
honum skilyrði ef sannað þykir að
hann raski samkeppni að öðru
leyti. Við fyrstu sýn mætti ætla að
þessi heimild væri galopin til þess
að beita megi íþyngjandi íhlutun
bara ef Samkeppniseftirlitið telur
að samruni raski samkeppni á ein-
hvern hátt. Svo er þó ekki. Þessi
hluti ákvæðisins á rót að rekja til
sambærilegrar reglu í samkeppnis-
rétti Evrópusambandsins, eins og
reyndar flestar reglur íslensku
samkeppnislaganna. Reglunni er
ætlað að ná til þeirra kringumstæðna þegar samruni hvorki
skapar né styrkir markaðsráðandi stöðu en hann þykir hins
vegar breyta samkeppnisskilyrðum á markaði til hins verra,
einkum í átt til fákeppnismarkaðar. Samkvæmt þessu getur
Samkeppniseftirlitið beitt íþyngjandi afskiptum af samruna,
sem þó hvorki skapar né styrkir markaðsráðandi stöðu, ef
hann verður til þess að markaðsgerð þess markaðar sem
samruni tekur til færist í átt til fákeppnismarkaðar og rök-
stutt er að þetta valdi umtalsverðri röskun á samkeppni. Því
fer hins vegar fjarri að hvers kyns aðrar kringumstæður,
sem Samkeppniseftirlitið telur eftir atvikum óheppilegar í
tengslum við samruna og áhrif þeirra á samkeppni, geti
réttlætt ógildingu samruna á grundvelli 17. gr. c. í sam-
keppnislögum eða setningu skilyrða gagnvart honum.
Hvenær mega fyrirtæki
sameinast og hvenær ekki?
LÖGFRÆÐI
Heimir Örn Herbertsson
lögmaður og sérfræðingur við lagadeild HR
”
Við fyrstu sýn mætti
ætla að þessi heimild
væri galopin til þess að
beita megi íþyngjandi
íhlutun bara ef Sam-
keppniseftirlitið telur að
samruni raski sam-
keppni á einhvern hátt.
Svo er þó ekki.
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar