Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 14

Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018FÓLK SPROTAR Aton Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir hefur gengið til liðs við Aton. Bryndís Ísfold hefur verið búsett í New York og Seattle í Bandaríkjunum síðustu fimm ár þar sem hún hefur unnið við kosningabar- áttu ýmissa framboða, meðal annars fyrir borgarstjórann í New York, Bill de Blasio. Á síðasta ári starfaði hún sem ráðgjafi fyrir forsetaframbjóðanda í Frakklandi, fyrir regnhlífarsamtök evr- ópskra jafnaðarmanna, UN Women í New York og nú síðast fyrir sænsku verkalýðshreyfinguna. Bryndís Ísfold gengur til liðs við Aton Advania Kristján H. Hákonarson er tekinn við sem for- stöðumaður ör- yggis- og persónu- verndarmála hjá Advania. Hann gegnir nú nýrri stöðu persónuverndarfulltrúa og mun tryggja að evrópsk reglu- gerð um persónuvernd verði inn- leidd hjá fyrirtækinu. Hann fer auk þess fyrir raunlægu öryggi og upplýsingaöryggi fyrirtæk- isins. Kristján er menntaður kerf- isfræðingur frá háskólanum í Skövde. Kristján með öryggis- og persónuverndarmálin VISTASKIPTI og búa til mikinn lífmassa og tekur um það bil viku. Því næst hefst fjögurra daga ferli þar sem við breytum að- stæðum þörunganna svo að frum- urnar hætta að skipta sér og byrja að stækka og þyngjast. Í lokastiginu breytum við umhverfinu enn eina ferðina til að valda álagi á þörunginn og örva framleiðslu astaxanthíns sem þörungurinn notar til að verja sig gegn fjandsamlegu umhverfi.“ Þá er tappað af rörunum og vökv- inn settur í skilvindu til að aðgreina örþörungana, sem síðan eru þurrkaðir og sendir til Þýskalands í útdrátt þar sem astaxanthín-rík olía er aðgreind frá þörungamjölinu. Olían er síðan send aftur til Íslands þar sem henni er m.a. pakkað í perluhylki og er til sölu í heilsuhillum verslana um allan heim. Horfurnar virðast góðar á astax- anthín-markaðinum. Orri segir að á tímabili hafi framboðið farið fram úr eftirspurn, en sú þróun hafi snúist við Eiga mikið inni á markaði Sá þörungur sem Algalíf ræktar í dag er notaður til að framleiða efnið astaxanthin sem þykir öflugt fæðu- bótarefni, með sterka andoxunareig- inleika og gagnast m.a. íþróttamönn- um við að jafna sig eftir erfiðar æfingar. „Markaðurinn fyrir astax- anthín hefur vaxið mjög hratt und- anfarinn áratug og á enn mikið inni,“ útskýrir Orri. „Í dag veltir astax- anthín-markaðurinn um hálfum millj- arði dollara á heimsvísu en hafa verð- ur í huga að á stöðum eins og Bandaríkjunum, sem eru okkar stærsti markaður, vita aðeins um 8% neytenda hvað astaxanthín er og hvaða áhrif efnið hefur. Varan er góð, og enginn vafi á að hún virkar, og hægt að bera vaxtarmöguleikana saman við omega-3 fitusýrur sem allir þekkja í dag og sækjast eftir. Vaxtar- tækifærin eru því mikil, og skortir Starfsemi örþörungaverksmiðjunnar Algalífs á Ásbrú hefur gengið vel að undanförnu. Stefnir í að fyrirtækið verði rekið réttum megin við núllið á þessu ári og útlit fyrir góðan hagnað á því næsta. Orri Björnsson, fram- kvæmdastjóri Algalífs, segir að til standi að efla starfsemina enn frekar og renna fleiri stoðum undir rekst- urinn. „Við erum þegar byrjuð að þróa ræktun á öðrum tegundum þör- unga og viljum ekki eiga allt undir einu efni. Næstu árin og áratugina viljum við halda áfram að leita að nýj- um efnum til að framleiða og selja, og hér á Ásbrú höfum við gott svigrúm til að stækka, með laust land í kring- um verksmiðjuna.“ Upphaf Algalífs má rekja til áhuga norsks frumkvöðuls sem hóf tilraunir með ræktun örþörunga árið 2012. Hann seldi ræktunina árið 2013 til norskra aðila en Íslendingar hafa verið viðriðnir Algalíf frá upphafi og segir Orri að alltaf hafi staðið til að flytja starfsemina til Íslands vegna hreinleika vatnsins, tiltölulega hag- stæðs raforkuverðs og launakostn- aðar sem þá var lágur í samanburð við Noreg. Í dag starfa 35 manns hjá Algalífi, þar af þrír á söluskrifstofu í Noregi en hinir á Ásbrú. Tæpur helmingur starfsmanna sinnir ræktun og fram- leiðslu og fást aðrir starfsmenn við rannsóknir og vöruþróun. ekki laust pláss á markaðinum.“ Þörungarnir eru ræktaðir í gler- rörum og er díóðulýsing notuð við ljóstillífunina í rörunum. „Glerröra- kerfið er um 300 km að lengd og not- um við ljós, koltvísýring og áburðar- efni við ræktunina,“ útskýrir Orri. Algalíf er ekki með einkaleyfi á framleiðsluaðferðinni en Orri segir fyrirtækið beita sérstakri ræktunar- aðferð sem tryggi mun meiri fram- leiðni en hjá öðrum örþörungarækt- endum. „Við erum sennilega með bestu framleiðnina af öllum þeim sem rækta þörunga í glerrörum, og með margfalt betri nýtingu en t.d. þeir sem rækta þörunga í opnum tjörnum og eru háðir sólarljósi, veðri og vind- um með uppskeruna.“ Hárnákvæm ræktun Örþörungaræktun Algalífs skiptist í þrjá fasa: „Fyrsti fasinn snýst um að ná fram sem örustum frumuskiptum og þurfa starfsmenn Algalífs núna að hafa sig alla við til að afgreiða pant- anir. „Það gerir okkur samkeppnishæf að vera með lágan framleiðslukostnað miðað við flesta keppinautana, þökk sé mjög skilvirku ræktunarkerfi og góðu starfsfólki sem tryggir að aðeins 1% af ræktunargetu glatast vegna þrifa og viðgerða.“ Krónan flækir reksturinn Helsta vandamál fyrirtækisins, að sögn Orra, er styrking og sveiflur ís- lensku krónunnar. „Krónan er óþægi- leg mynt fyrir fyrirtæki eins og okkur sem flytur nær alla sína framleiðslu úr landi, og gerir okkur erfitt að gera langtímaáætlanir. Síðastliðin ár hafa gengisbreytingar orði þess valdandi að allir kostnaðarliðir innanlands hafa hækkað um tugi prósenta gagnvart bæði evru og dollar, og um ríflega 100% mælt í norskum krónum.“ Segir Orri að það hafi hjálpað Alga- lífi að ráða við styrkingu krónunnar að fyrirtækið er í eigu öflugra aðila. „Við vorum líka mjög heppin með að endurhönnun ljósakerfisins okkar lukkaðist vel svo við náðum að tvö- falda framleiðnina. Ef það hefði ekki tekist þá hefðum við lent í töluverðum vandræðum bara út af gengisþróun- inni.“ Eins og fyrr var getið er stefnt að því að stækka framleiðslu Algalífs enn frekar, og vinna efni úr fleiri teg- undum þörunga. Orri segir líka fyrir- hugað að koma upp framleiðslulínu í kringum efnaútdrátt úr þörungunum, sem fer í dag fram í Þýskalandi eins og fyrr var nefnt. „Framleiðslumagnið er það mikið að það myndi borga sig fyrir okkur, og einnig stytta vinnslu- tímann og minnka birgðahald,“ út- skýrir hann. „Við höldum líka áfram að þróa nýjar vörur, erum opin fyrir samstarfi við alla sem hafa á því áhuga, og reiknum með að á næsta ári komi á markað nýjar fæðubótaefna- vörur með astaxanthín.“ Víkurfréttir / Hilmar Bragi „Við vorum mjög heppin með að endurhönnun ljósakerfisins okkar lukkaðist vel svo við náðum að tvöfalda fram- leiðnina. Ef það hefði ekki tekist þá hefðum við lent í töluverðum vandræðum bara út af gengisþróuninni,“ segir Orri. Markaðurinn og þörungarnir vaxa hratt Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Til stendur að stækka starfsemi Algalífs og rækta fleiri tegundir örþörunga. Styrking krónunnar og sveiflur í gengi hafa gert þessum norsk-íslenska sprota erfitt fyrir en núna virðist framtíðin björt. Mörkin lögmannsstofa Hákon Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri alþjóðamarkaða hjá Creditinfo Group, er genginn til liðs við Mörkina lögmannsstofu þar sem hann verður einn af eigendum. Hákon starfaði áður hjá Creditinfo í 11 ár þar sem hann gegndi ýmsum stjórnunarstörfum, þar á meðal starfi fram- kvæmdastjóra lögfræðisviðs og starfi aðstoðarforstjóra. Áður starfaði hann meðal annars hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur og sem bæjarlögmaður hjá Akureyrarbæ. Hákon hefur gegnt stjórnarformennsku í fjölmörgum félögum á Íslandi og erlendis. Hann mun samhliða starfi sínu hjá Mörkinni taka sæti í stjórn Creditinfo. Hákon útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1998 og öðlaðist héraðsdómslögmannsréttindi 1999. Hákon verður einn af eigendum á Mörkinni Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.