Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 16

Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 16
VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Katrín felld í stjórnarkjöri Icelandair Slapp undan flugskeytaárás fyrir ... Hætta að fljúga til Prag Gísli Hauksson hættir hjá Gamma „Vekur það eingöngu reiði ...“ Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Heiða Kristín Helgadóttir, fram- kvæmdastjóri Efnis, sem nú er stödd á sjávarútvegssýningunni í Boston, segir að unnið hafi verið að stofnun Niceland Seafood síðan á síðasta ári. „Niceland Seafood gengur út á að markaðssetja íslenskan fisk og skapa sterkt nýtt vörumerki. Við erum að þróa aðferðir til að gera viðskipta- vinum okkar kleift að sjá hvaðan fisk- urinn kemur, allt frá því hvar hann er veiddur, hvar hann kemur á land, og þar til hann er kominn á diskinn hjá neytandanum,“ segir Heiða í samtali við ViðskiptaMoggann. Hún segir að fyrirtækið hafi hannað sérstakan hugbúnað í þessu tilliti. „Við erum að safna saman öllum fáanlegum upplýs- ingum um fiskinn á einn stað og birta þær á einfaldan og skiljanlegan hátt. Einnig bætast við uppskriftir og ann- ar fróðleikur sem hjálpar til við að auka verðmæti vörunnar og segja við- skiptavinum söguna. Þetta gæti til dæmis gagnast fólkinu sem vinnur í fiskborði stórmarkaðanna, til að upp- lýsa viðskiptavini um vöruna.“ Sala hefst með sumrinu Heiða segir að sambærileg upplýs- ingagjöf hafi ekki verið áberandi hjá öðrum íslenskum fiskútflytjendum. Hún segir að viðtökurnar í Boston hafi verið vonum framar. „Við vorum að hitta samstarfsaðila okkar hér í Bandaríkjunum og líka fá tilfinningu fyrir því að við værum á réttri leið. Við munum hefja sölu á vörunni með sumrinu.“ Meðeigandi Heiðu í Efni er sam- félagsmiðlasérfræðingurinn Oliver Lucket, en áhugi hans á því að segja sögur, skapa vörumerki og upplifanir kemur að góðum notum í Niceland Seafood að sögn Heiðu. „Svo vorum við líka virkilega heppinn að fyrir- tækið Nastar kom inn í þetta með okkur, en þeir hafa verið í þessum bransa í marga áratugi. Fjárfestarnir okkar hjá Eyri hafa líka veit okkur ómetanlegan stuðning og deilt innsæi sínu á afar uppbyggilegan hátt.“ Heiða Kristín telur að Ísland geti náð meira virði út úr sjávarútveginum. Niceland býð- ur rekjanleika Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Samfélagsmiðlasfræðing- urinn Oliver Lucket leggur nýju fisksölufyrirtæki lið þar sem kaupendur geta rakið uppruna fisksins. Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Það er alþekkt að hagvöxtur áVesturlöndum á 21. öldinni verður knúinn áfram af hugviti. Við Íslendingar getum ekki treyst ein- vörðungu á náttúruauðlindirnar, sem voru mikil lyftistöng á 20. öld- inni. Á þeim vettvangi munum viðmæta harðri samkeppni frá glæsilegum fyrirtækjum víða um heim. Til að standast öðrum löndum snúning þurfum við meðal annars vel menntað starfsfólk og frjóan jarðveg til nýsköpunar. Í skýrslu Samtaka iðnaðarins, Ísland í fremstu röð – eflum sam- keppnishæfnina, sem birt var fyrir viku, kemur fram að minnsta kosti þrennt sem er umhugsunarvert í þeim efnum: 1. Íslendingar verja hlutfallslegalitlum fjármunum til háskóla- náms. 2.Hlutfallslega fáir eru skráðir ístærðfræði, raunvísindi, verk- fræði og tæknifög í háskólum hér á landi. Hlutfallið er með því lægsta innan OECD-ríkjanna. Skýrsluhöf- undar sögðu að þessi mælikvarði væri oft notaður til að meta tækifæri landa til nýsköpunar. 3.Umsóknum sem Einkaleyfa-stofunni bárust frá íslenskum aðilum vegna tæknilegra uppfinn- inga fækkaði um 40% frá árinu 2007 til ársins 2017 sem er ekki í takt við alþjóðlega þróun. Það ætti að vera kappsmál að Ísland sé framarlega í nýsköp- un og því þarf að leita leiða hvernig gera megi betur á þessum sviðum. Vandi ný- sköpunar Á Íslandi blómstrar skapandistarfsemi af öllum toga, þrátt fyrir að listamönnunum sjálfum gangi misjafnlega að selja afurð- irnar. Auðveldast er að benda þeim á hið augljósa, að skapa þá það sem fellur að smekk fjöldans. Vörurnar myndu seljast og allir gengju sáttir frá borði. Kvikmyndagerðarmenn gerðu bara myndir eins og Fast and Furious, dansarar dönsuðu gömlu dansana, hljómsveitir léku bara Eurovisionlög, og myndlistarmenn máluðu myndir af Esjunni í öllum regnbogans litum. Nú er Hönnunarmars hafinn í tí-unda sinn og þegar blaðað er í gegnum bækling hátíðarinnar er ljóst að hér iðar allt og kraumar af áhugaverðri nútímalegri hönnun. En það er eins og með hinar skapandi greinarnar; fé vantar til að koma hönnuninni betur á framfæri og fyr- ir sjónir væntanlegra kaupenda, hér á landi og erlendis. Til að vekja athygli á þessu málitók Eyjólfur Pálsson, forstjóri Epals, sig til og safnaði saman tölum um tekjur af 12 hlutum eftir íslenska hönnuði sem seldir eru í verslun hans í Skeifunni 6. Hann sagði frá þessum tölum við opnun hönnunar- sýningar í versluninni í gær, og það er óhætt að segja að þegar bein- harðir peningar eru komnir í spilið sjá menn í skarpara ljósi hverjir möguleikar íslenskrar hönnunar geta verið. Sagði hann að tekjurnar hefðu verið mjög góðar í verslunum Epal og um allan heim, og reiknaðist honum til að þær næmu um sjö millj- örðum króna síðastliðin tvö til þrjú ár. Getur verið að það búi meiri fjár- festingartækifæri í hinum skapandi geira en menn átta sig á? Íslensk hönnun er milljarðabissness Ljósmynd/Árni Þórður Jónsson. Eyjólfur og Þórdís Kolbrún. Leikfangakeðjan Toys R Us þarf að loka öllum eitt hundrað verslunum sínum í Bretlandi. Toys R Us lokar í Bretlandi 1 2 3 4 5 Settu starfsfólkið í fyrsta sæti WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn í vélina. Innifalið er hraðferð um borð,máltíð, forfallavernd og sömuleiðis BigSeat, eða besta sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur einu sinni til tvisvar á dag til allra helstu viðskiptaborga Evrópu og Ameríku. WOW Biz kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða. WOW Biz Sumir þurfa einfaldlega meira WOW en aðrir. BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS er

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.