Morgunblaðið - 20.03.2018, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018
Tryggvi Snær Hlinason Landsliðsmaðurinn ungi hefur spilað mun meira með aðalliði Spánarmeist-
ara Valencia en hann bjóst við. Hefur bætt sig heilmikið. Spilar meira með varaliðinu til vorsins. 4
Íþróttir
mbl.is
Hamar úr Hveragerði á alla mögu-
leika á að leika til úrslita um sæti í
úrvalsdeild karla í körfuknattleik
eftir sigur á Snæfelli, 104:89, í
Stykkishólmi í gærkvöld. Hamar er
kominn í 2:0 og þarf einn sigur enn
til að vinna einvígið. Leikurinn var
jafn lengi vel en Hamar stakk af á
lokasprettinum. Larry Thomas
skoraði 31 stig fyrir Hamar og Juli-
an Nelson 22. Christian Covile lék á
ný með Snæfelli, eftir að hafa misst
af fyrsta leik liðanna. Hann gerði
24 stig fyrir Hólmara og Geir Elías
Úlfur Helgason 22. Liðin mætast í
þriðja sinn í Hveragerði á föstu-
dagskvöldið. vs@mbl.is
Hamar stefnir
í úrslitin
Handknattleiksmaðurinn Geir Guðmundsson fer
í aðgerð á ökkla öðrum hvorum megin við næstu
helgi vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æf-
ingu með Cesson-Rennes í frönsku 1. deildinni í
síðasta mánuði. „Læknirinn minn telur að ég
verði frá keppni í sex til átta mánuði eftir að-
gerðina,“ sagði Geir við Morgunblaðið í gær.
Nokkurn tíma hefur tekið að greina meiðslin
sem Geir varð fyrir á ökkla en nú er staðfest að
tvö liðbönd í ökklanum eru slitin. „Þetta er
versta mögulega niðurstaða, því miður,“ sagði
Geir sem lengi lifði í voninni um að liðböndin
hefðu aðeins tognað. Eftir ítrekaðar rannsóknir
liggur niðurstaðan fyrir og ljóst að Geir leikur í
versta falli ekki handknattleik á nýjan leik með
Cesson-Rennes fyrr en undir árslok. Hann er að
ljúka öðru keppnistímabili sínu með liðinu sem
situr í þriðja neðsta sæti frönsku 1. deildarinnar
þegar sjö umferðir eru óleiknar.
Skömmu áður en Geir meiddist hafði hann
skrifað undir nýjan tveggja ára samning við
Cesson-Rennes. Hann hefur þar með fast land
undir fótum í samningsmálum. Ragnar Ósk-
arsson er aðstoðarþjálfari liðsins.
Landið er hinsvegar tekið að rísa á ný hjá
frænda Geirs, Guðmundi Hólmari Helgasyni
sem einnig leikur með Cesson-Rennes. Guð-
mundur hefur verið frá keppni nánast allt
keppnistímabilið vegna brjóskloss. „Ég er kom-
inn á fullt við æfingar og hef fengið fínar fréttir
frá lækni og sjúkraþjálfunarteymi okkar. Auk
þess hef ég verið í hóp í tveimur síðustu leikjum
en ekkert komið við sögu. Ég spila vonandi eitt-
hvað í vikunni þegar við sækjum Tremblay
heim,“ sagði Guðmundur Hólmar við Morg-
unblaðið. iben@mbl.is
Geir úr leik í 6-8 mánuði
Fer í aðgerð á ökkla á næstu dögum Guðmundur er kominn á fulla ferð
EM 2018
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Slóvenar stóðu sig vel á HM í desember og
unnu meðal annars Frakka í riðlakeppninni.
Ljóst er að um hörkulið er að ræða,“ sagði Þórey
Rósa Stefánsdóttir, landsliðskona í handknatt-
leik, spurð um landslið Slóvena sem íslenska
landsliðið mætir í undankeppni Evrópumótsins í
Laugardalshöll annað kvöld. Flautað verður til
leiks klukkan 19.30 og er aðgangur ókeypis.
„Slóvenar léku hörkuleik við Dani í riðlinum í
haust og gerðu jafntefli við Tékka á heimavelli,“
sagði Þórey Rósa sem er þriðji leikjahæsti leik-
maður landsliðsins að þessu sinni með 83 lands-
leiki að baki.
„Tékkar eru með lið sem er langt á undan okk-
ur en ef marka má úrslit leiks Tékka og Slóvena
þá getur verið að landslið Slóvena henti okkur
vel. Ég er nokkuð vongóð svo lengi sem við náum
að stilla strengina saman fyrir leikinn á þeim
skamma tíma sem gefst til undirbúnings,“ sagði
Þórey Rósa en landsliðið kom saman til æfinga á
sunnudagskvöld. Eftir leikinn í Laugardalshöll
fer íslenska liðið ásamt Slóvenum til Slóveníu á
fimmtudagsmorgun en liðin leiða saman hesta
sína öðru sinni í Celje í Slóveníu síðdegis á
sunnudag.
Íslenska liðið er án stiga í undankeppninni eft-
ir tvo tapleiki í haust, annarsvegar fyrir Tékkum
á útivelli og hinsvegar á móti Dönum. Slóvenar
hafa eitt stig eftir tvær viðureignir.
Sigruðu Frakka á HM
Eins og Þórey Rósa kom inn þá stóð landslið
Slóvena sig nokkuð vel á heimsmeistaramótinu
sem fram fór í Danmörku í desember sl. Slóvenar
unnu Frakka með eins marks mun, 24:23, í fyrstu
umferð riðlakeppninni. Frakkar urðu síðar
heimsmeistarar eftir sigur á Noregi í úrslitaleik.
Slóvenar töpuðu fyrir Rúmenum með þriggja
marka mun, 31:28, unnu Angóla, 32:25, og Para-
gvæ, 28:22, áður en liðið tapaði fyrir Spáni, 27:22,
í lokaleik riðlakeppninnar. Slóvenar féllu úr
keppni í 16-liða úrslitum með 12 marka tapi fyrir
Svíum, 33:21.
Uppistaðan í liði landsliði Slóvena eru leik-
menn sem leika með Krim Mercator, sterkasta
félagsliði landsins. Alls voru níu leikmenn af 16 í
hópnum á HM frá Krim en einnig leika liðsmenn
með félagsliðum í Þýskalandi, Rúmeníu og
Frakklandi.
Fremsti leikmaður Slóvena er án ef skyttan
Ana Gros sem er samningsbundin hinu sterka
franska liðið Metz. Gros hefur verið mjög aðsóps-
mikil með Metz á leiktíðinni í Meistaradeild Evr-
ópu þar sem franska liðið er komið í átta liða úr-
slit. Hún hefur oftar en ekki verið markahæsti
leikmaður liðsins. Gros skoraði 43 mörk í sex
leikjum Slóvena á HM í desember, ríflega fjórð-
ung marka liðsins. Af mörkunum 43 skoraði hún
13 mörk úr vítaköstum.
„Ég hef fína tilfinningu fyrir þessum leik. Það
er ekkert um meiðsli í hópnum og leikmenn eru í
góðu formi enda keppnistímabilið á nálgast há-
punkt um þessar mundir,“ sagði Þórey Rósa sem
vonast eftir góðum stuðningi landsmanna í Laug-
ardalshöllinni annað kvöld.
„Ég vona að fólk fjölmenni í Höllina á leikinn
og styðji við bakið á okkur. Ef við vinnum þá
verðum við komnar í fína stöðu í riðlinum. Það er
frítt inn á leikinn okkar en ekki leikina í loka-
umferð Olís-deildar karla sem fer nánast fram á
sama tíma, því miður. Ekki er heldur möguleiki á
að sjá landsleik á hverjum degi,“ sagði Þórey
Rósa Stefánsdóttir.
Góð tilfinning fyrir leiknum
Ísland mætir Slóveníu í Laugardalshöll annað kvöld og aftur í Slóveníu á
sunnudag Þetta er hörkulið en við eigum möguleika, segir Þórey Rósa
Morgunblaðið/Eggert
Evrópukeppnin Þórey Rósa Stefánsdóttir og markverðirnir Guðrún Ósk Maríasdóttir og Hafdís Lilja
Renötudóttir fyrir leik Íslands og Danmerkur en liðin mættust í fyrstu umferðinni í haust.
Kylfingurinn
Ragnhildur
Kristinsdóttir
byrjar há-
skólaferilinn
með Eastern
Kentucky-
keppnisliðinu
með miklum lát-
um, en hún sigr-
aði á Pinehurst
Intercollegiate-
mótinu í Norður-Karólínu í Banda-
ríkjunum. Ragnhildur, sem er úr
Golfklúbbi Reykjavíkur, lék hring-
ina þrjá á +14 samtals (73-82-75)
eða 230 höggum. Ragnhildur var
þremur höggum betri en liðsfélagi
hennar, Elsa Moberly, sem varð
önnur á +17.
johanningi@mbl.is
Ragnhildur
byrjaði vel
Ragnhildur
Kristinsdóttir
Martin Her-
mannsson var
enn og aftur í að-
alhlutverki hjá
Chalons-Reims í
frönsku A-
deildinni í körfu-
knattleik í gær-
kvöld þegar liðið
tapaði afar
naumlega fyrir
toppliðinu Le
Mans á heimavelli, 75:76. Gestirnir
skoruðu sigurkörfuna á síðustu sek-
úndunni.
Martin var stigahæstur hjá Cha-
lons-Reims með 20 stig en hann hitti
úr átta af ellefu skotum sínum utan
af velli og úr öllum fjórum víta-
skotum sínum. Hann spilaði mest
allra í liðinu eða í tæpar 32 mínútur.
Chalons-Reims hefur unnið 10 af
24 leikjum í vetur og seig með tap-
inu niður í 14. sæti af 18 liðum en er
samt aðeins einum sigri á eftir liðinu
sem er í áttunda sæti. Tíu umferðum
er ólokið af deildinni. vs@mbl.is
Tuttugu stig
hjá Martin
gegn toppliði
Martin
Hermannsson
ÍÞRÓTTIR