Morgunblaðið - 20.03.2018, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018
Ég kvíði einu varðandi heims-
meistarakeppnina í fótbolta í
Rússlandi í sumar. Ég kvíði engu
varðandi íslenska landsliðið. Það
mun örugglega standa fyrir sínu
og vekja athygli – sama hvernig
allt saman fer inni á vellinum.
En það er sú ákvörðun FIFA að
taka upp myndbandsdómgæslu
á HM sem setur í mig skrekk.
Eftir að hafa séð þetta tefja
leiki og skemma stemningu þar
sem það hefur verið prófað á
undanförnum mánuðum tel ég
að það sé alltof, alltof snemmt
að fara að nota fyrirbærið á
stærsta og mikilvægasta svið-
inu, lokakeppni HM.
Síst af öllu viljum við vand-
ræðalegar uppákomur þar sem
áhorfendur og leikmenn bíða eft-
ir því að dómarar komi sér sam-
an um niðurstöðuna. Var þetta
mark? Var þetta brot? Var þetta
rangstaða?
Ef þetta á virkilega að vera
þannig að sannreyna þurfi hvert
einasta mark og hvert einasta
atvik þar sem einhver vafi getur
verið, þá er ég smeykur um að
stemningin og glansinn af því að
fara á völlinn muni dofna.
Stemning augnabliksins þegar
mark er skorað verður eyðilögð
því við tekur bið eftir úrskurði
um hvort markið hafi virkilega
veri löglegt.
Helst vildi ég að öllu sem
þessari myndbandadómgæslu
viðkemur væri pakkað inn, sett í
harðlæstan peningaskáp og
sökkt í Kyrrahafið þar sem það
er dýpst.
Kallið mig bara gamlan aft-
urhaldssegg sem sé á móti því
að nýta tæknina til góðs. En ég
óttast að þetta sé enn eitt skref-
ið í að færa íþróttina frá fólkinu
– og það sem verra er, fæla fólk-
ið frá íþróttinni.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Ég bjóst við að spila mun meira
með B-liðinu en hef fengið þessi
tækifæri með aðalliðinu og bara
elska það,“ segir Tryggvi Snær
Hlinason, landsliðsmiðherjinn ungi í
körfubolta, um sitt fyrsta tímabil
sem atvinnumaður.
Tryggvi er á mála hjá einu af betri
liðum Evrópu, Valencia á Spáni, og
hefur getað sogið í sig þekkingu frá,
æft og spilað með frábærum leik-
mönnum í allan vetur. Upphaflega
stóð til að þessi tvítugi Bárðdæl-
ingur, sem byrjaði fyrst að æfa
körfubolta fyrir um fjórum árum,
myndi aðallega leika með varaliði
Spánarmeistaranna en í staðinn hef-
ur hann til að mynda leikið 10 leiki í
Euroleague, þar sem sterkustu lið
Evrópu mætast.
Tryggvi hefur að meðaltali leikið 7
mínútur í leik í Euroleague, skorað
2,5 stig og tekið 1,5 fráköst. Und-
anfarið hefur Valencia hins vegar
endurheimt leikmenn úr meiðslum
og Tryggvi dottið út úr aðalliðs-
hópnum, svo hann hefur leikið með
varaliðinu í D-deild í síðustu leikjum
þess. Þar fær hann lykilhlutverk og
skoraði til að mynda tvöfalda
tvennu, 14 stig og 11 fráköst, í sig-
urleik fyrir rúmri viku.
„Í rauninni átti veturinn allur að
vera svona, en svo heppilega fór, fyr-
ir mig, að ég hef verið mun meira í
aðalliðinu. Það ætti að minnka eða
hætta núna það sem eftir er leik-
tíðar, myndi maður halda, en það er
aldrei að vita,“ segir Tryggvi, og
hugsanlegt er að hann verði í hópn-
um sem mætir Real Madrid í Evr-
ópukeppninni í kvöld.
Tryggvi hefur komið við sögu í 10
leikjum í efstu deild Spánar, þar sem
Valencia er í 3. sæti, en bendir á að
einnig hafi margt annað en að taka
þátt í leikjum liðsins á svo háu getu-
stigi, þó að það sé vissulega kær-
komið, hjálpað sér í vetur að verða
betri körfuboltamaður:
„Maður er búinn að vera fárán-
lega heppinn að fá öll þessi tækifæri
– að geta spilað í Euroleague og
spænsku deildinni. Það er bara tær
snilld. Maður lærir alls konar hluti
af þessu, með því að sjá hvernig
þessir menn haga sér innan og utan
vallar, og hvernig þetta líf er. Maður
kynnist þessum sérstaka anda sem
er hjá liði á þessu getustigi, þar sem
allir eru með rosalegt atvinnu-
mannahugarfar,“ segir Tryggvi, en
hann tekur undir að það geti verið
flókið að spila fyrir bæði aðal- og
varalið Valencia:
Æfing með aðalliðinu, upp í
rútu og í leik með varaliðinu
„Þetta hefur verið mjög mismun-
andi frá degi til dags hjá mér. Ég
mæti á flestar æfingar með aðallið-
inu, nema léttar æfingar daginn fyr-
ir leik, og ef aðalliðið æfir í hádeginu
þá æfi ég með varaliðinu um kvöldið,
og tek líka einkaæfingar. Ég hef því
í vetur aðallega verið með aðalliðinu,
en fengið að fara í leiki með vara-
liðinu ef það passaði. Ég hef til að
mynda alveg lent í því að taka harða
æfingu með aðalliðinu í hádeginu og
fara svo fimm tímum síðar í leik með
varaliðinu. Eitt skiptið, sem var
kannski furðulegast, var ég í hópn-
um í leik með aðalliðinu, en spilaði
þó ekki neitt, fór svo heim í tvo tíma
og mætti aftur í upphitun fyrir leik
með B-liðinu. Annað skipti var þann-
ig að eftir æfingu með aðalliðinu
hoppaði ég beint upp í rútu, ferðað-
ist í fjóra tíma og tók leik með vara-
liðinu. Þetta hefur því verið talsvert
púsl, þó að A-liðið sé alltaf í for-
gangi. Núna er aðeins meiri regla á
þessu,“ segir Tryggvi, en hann hefur
leikið síðustu tvo leiki varaliðsins.
Liðið er í 3. sæti í E-riðli 4. deildar,
og á leið í nokkuð flókna úr-
slitakeppni. Fyrst spila efstu fimm
liðin í E-riðlinum tvöfalda umferð,
og svo fara þrjú þeirra í úr-
slitakeppni þar sem leikið er í fjór-
um riðlum og sigurvegari hvers rið-
ils kemst upp um deild.
Hef bætt mig helling
„Það er alltaf gaman að fá að spila,
og núna er úrslitakeppnin að renna
upp. Liðið komst í fjögurra liða úr-
slitariðil um að komast upp um deild
í fyrra, en tapaði öllum leikjunum
þar. Draumurinn nú er að komast
upp,“ segir Tryggvi. Hvernig sem
fer á lokakafla leiktíðarinnar segir
Tryggvi ljóst að fyrsti veturinn í at-
vinnumennsku hafi gert sér afar
gott:
„Ég hef bætt mig alveg helling.
Leikskilningurinn er alltaf að batna,
og hæfileikarnir verða sífellt meiri
þó að maður taki minna eftir því frá
degi til dags. Varnarleikurinn er það
sem mig hefur helst vantað upp á, og
þar er ég alltaf að verða betri. Eina
sem mig kannski skortir er lík-
amlegur styrkur, en Spánverjar eru
ekki alveg eins „ræktaróðir“ og Ís-
lendingar. Aðrar æfingar eru það
erfiðar að það er erfitt að bæta
ræktinni við,“ segir Tryggvi.
Óljóst hvað verður í haust
Eftir að hafa komið til Valencia
frá Þór Akureyri síðasta sumar
skrifaði Tryggvi undir svokallaðan
2+2 samning við spænska félagið,
það er að segja samning til tveggja
ára með möguleika á tveggja ára
framlengingu. Hann segir þó ekki
ljóst hvað taki við hjá sér eftir sum-
arið, en vangaveltur hafa verið uppi
um að Tryggvi verði jafnvel valinn í
nýliðavali NBA-deildarinnar í sum-
ar.
„Ég hef í raun ekki hugmynd [um
hvað tekur við næsta tímabil]. Það
veltur á ýmsu. Akkúrat núna veit ég
bara að ég verð með landsliðinu í
byrjun sumars, tek svo stutt frí, og
fer svo til Bandaríkjanna í sérstakar
æfingabúðir sem eru fyrir íþrótta-
fólk úr ýmsum greinum. Þetta er
víst mjög tæknilegt allt saman og
þarna er hver vöðvi mældur til og
mjög vel skipulagt hvernig maður
þarf að æfa og jafna líkamsstyrkinn
út,“ segir Tryggvi, en hann tekur
undir að vissulega sé draumurinn að
komast í NBA einhvern daginn:
„Það er eitthvað sem maður von-
ast eftir í framtíðinni. Markmiðið er
alltaf að fara hærra, og í dag er NBA
toppurinn sem maður reynir að
komast á.“
Með báðum
liðum sama
daginn
Tækifærin hjá aðalliði Spánarmeist-
aranna mun fleiri en Tryggvi bjóst við
Spilar líklega meira með B-liðinu í
úrslitakeppni fram til sumars
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öflugur Tryggvi Snær Hlinason lét talsvert til sín taka í sigurleiknum gegn
Tékkum í undankeppni heimsmeistaramótsins á dögunum.
KA náði í gærkvöld undirtökum á ný
í einvíginu við Aftureldingu í undan-
úrslitum Íslandsmóts karla í blaki
með því að vinna þriðja leik liðanna í
KA-heimilinu á Akureyri, 3:1.
Staðan er þá 2:1, KA-mönnum í
hag, en nú eru liðin komin í langt
páskafrí því fjórði leikur þeirra sem
fram fer í Mosfellsbæ er ekki á dag-
skránni fyrr en miðvikudaginn 4.
apríl.
KA vann fyrstu hrinuna 25:22 en
Mosfellingar jöfnuðu í þeirri næstu
með sigri, 25:18. KA náði yfirhönd-
inni á ný, vann 25:17, og loks fjórðu
hrinuna 25:21.
Quentin Moore var með 18 stig
fyrir KA-menn, Ævarr Freyr Birg-
isson 14 og Mason Casner 13. Hjá
Aftureldingu voru Kjartan Fannar
Grétarsson og Radoslaw Rybak með
14 stig hvor og þjálfarinn og fyrrver-
andi KA-maðurinn Piotr Kempisty
var með 12 stig.
HK er þegar komið í úrslit eftir
3:0 sigur í hinu undanúrslitaeinvíg-
inu við Þrótt frá Neskaupstað.
vs@mbl.is
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Aðalhlutverk Quentin Moore skoraði mest fyrir KA gegn Aftureldingu.
KA er einum sigri frá
úrslitaeinvíginu
Mexíkóar hafa
vegna meiðsla
misst þrjá leik-
menn út úr leik-
mannahópi sínum
fyrir vin-
áttulandsleikinn í
fótbolta gegn Ís-
landi í San Franc-
isco í Bandaríkj-
unum aðfaranótt
laugardags.
Þeirra á meðal er miðjumaðurinn
Jonathan dos Santos, leikmaður LA
Galaxy í Bandaríkjunum, sem áður
lék með Villarreal og Barcelona. Áð-
ur var ljóst að eldri bróðir hans,
Giovani dos Santos sem einnig var á
sínum tíma hjá Barcelona sem og
Tottenham, yrði ekki með vegna
meiðsla.
Kantmennirnir Javier Aquino og
Jurgen Damm, sem báðir leika með
Tigres í heimalandinu, verða ekki
heldur með gegn Íslandi en ná hugs-
anlega leik Mexíkóa við Króata að-
faranótt miðvikudags. Hins vegar
hefur varnarmanninum Oswaldo Al-
anis verið bætt í hópinn.
Þekktustu leikmenn Mexíkó hér á
landi eru líklega Javier Hernández,
framherji West Ham, og Carlos Vela
sem lék með Arsenal en er nú leik-
maður Los Angeles. Helmingur leik-
mannahópsins er á mála hjá evr-
ópskum félagsliðum. sindris@mbl.is
Bræðurnir
missa báðir
af Íslandi
Jonathan
dos Santos