Morgunblaðið - 27.03.2018, Qupperneq 2
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta
skipað leikmönnum 20 ára og yngri
náði athyglisverðum árangri um síð-
ustu helgi. Liðið vann sér inn keppn-
isrétt í lokakeppni HM í Ungverja-
landi í júní á næsta ári.
Fá fordæmi eru fyrir slíkum ár-
angri í íslenskum yngri landsliðum
kvenna í handbolta. Eftir því sem
Morgunblaðið kemst næst er þetta í
fjórða skipti sem eitthvert yngri
landsliða kvenna kemst á stórmót í
handboltanum. Gerðist það síðast fyr-
ir áratug eða svo.
Í liðinu eru leikmenn sem hand-
boltaunnendur kannast við úr Olís-
deildinni og þar má nefna þær Andreu
Jacobsen úr Fjölni, Söndru Erlings-
dóttur úr ÍBV, Berta Rut Harðar-
dóttir úr Haukum og Lovísu Thomp-
son úr Gróttu. „Fyrst þegar við
heyrðum að aðeins kæmist eitt lið
áfram úr riðlinum þá var maður ekki
viss um hvort það væri raunhæft. En
þegar Eyjaálfa hætti við þátttöku og
ljóst varð að okkar riðill fékk þeirra
sæti og þá urðu væntingarnar meiri
hjá okkur. Mikil uppbygging hefur átt
sér stað varðandi okkar lið. Við byrj-
uðum illa fyrir nokkrum árum þegar
við urðum fyrsta íslenska landsliðið til
að tapa fyrir Færeyjum í mótsleik.
Eftir þriggja ára uppbyggingu erum
við komnar með sæti á HM sem segir
mikið um hversu langt við höfum náð
á stuttum tíma,“ sagði Lovísa í sam-
tali við Morgunblaðið og þegar upp
var staðið fannst henni frammistaða
liðsins vera mjög góð.
Jafn leikur gegn Þjóðverjum
Ísland vann örugga sigra á Litháen
og Makedóníu. Handboltinn nýtur
vinsælda í Makedóníu og Litháar eiga
mjög frambærilegar handboltakonur
eins og glögglega hefur sést í Olís-
deildinni. Slíkir sigrar lofa því mjög
góðu en það sem mesta athygli vakti
var hnífjafn leikur á milli Þýskalands
og Íslands. Þótt hann tapaðist bendir
frammistaðan til þess að íslenska liðið
sé býsna sterkt því þýsku kvenna-
landsliðin hafa verið í fremstu röð.
Stefán Arnarson, sem stýrði liðinu
ásamt Hrafnhildi Skúladóttur, hafði
orð á þessu í Morgunblaðinu á mánu-
daginn.
„Þýskaland er með eitt af fimm
bestu liðum heims í þessum aldurs-
flokki og sá leikur var bara stöngin út.
Það sýnir hvað við erum með efnilegt
lið. Leikurinn ætti að vera vítamín
fyrir þessar stelpur til að gera betur,“
sagði Stefán og Lovísa tók í sama
streng.
„Já, það var mjög sterkt og kom
okkur á vissan hátt á óvart hversu vel
við stóðum í þeim. Stebbi og Hrabba
höfðu lagt áherslu á okkar leik og
minna um andstæðinginn. Þau hafa
skipt sköpum varðandi sjálfstraust
leikmanna og við hefðum vel getað
unnið Þjóðverja. Smávægilegur
klaufaskapur undir lok leiksins kom í
veg fyrir það. Sá leikur sýnir hversu
öflugar við erum,“ benti Lovísa á.
Líkamlegir burðir til staðar
Axel Stefánsson, þjálfari A-
landsliðs kvenna, hefur lagt áherslu á
að bæta þurfi líkamlegt atgervi ís-
lenskra handboltakvenna til þess að
landsliðin geti komist í fremstu röð.
Morgunblaðið hafði samband við Axel
eftir þessi tíðindi og hann sagði mjög
jákvæð teikn vera á lofti varðandi
U-20 ára liðið.
„Þetta er frábær árangur. Við vit-
um að í þessu liði eru margir góðir
leikmenn og til dæmis tvær sem spil-
að hafa A-landsleiki. Þessar stelpur
hafa æft gríðarlega og ég sá leikinn
gegn Þjóðverjum á netinu. Þar sá ég
að þær eru komnar með þá líkamlegu
burði sem til þarf og voru ekki síðri en
þær þýsku hvað það varðar. Er það
eitthvað sem yljar mínum hjartarót-
um,“ sagði Axel og bætti við. „Mér
finnst ótrúlega flott að sjá hversu vel
þessar stelpur eru þjálfaðar og þá
standast þær bestu liðunum snúning.
Þýskaland hefur gert það gott í þess-
um aldurslokki. Þeirra lið hefur verið
mjög sterkt. Okkar stelpur fá ómet-
anlega reynslu við það að keppa á
lokamóti og það mun nýtast okkur í
framtíðinni,“ sagði Axel Stefánsson.
Uppbyggingin
virðist vera að
skila árangri
Morgunblaðið/Eggert
Sterk Lovísa Thompson skoraði 14 mörk í leikjunum þremur.
Atgervi þeirra íslensku yljaði lands-
liðsþjálfaranum um hjartarætur
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018
Íslandsvinurinn Pyry Soiri skoraði eitt mark Finnlands í
5:0 sigri gegn Möltu í vináttulandsleik í knattspyrnu sem
fram fór í Tyrklandi í gær.
Soiri, sem varð að hálfgerðri þjóðhetju á Íslandi í fyrra
þegar hann tryggði Finnum jafntefli á móti Króatíu í und-
ankeppni HM sem gerði það að verkum að Ísland vann rið-
ilinn, skoraði fimmta mark Finna í leiknum á 88. mínútu
eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 62. mínútu
leiksins.
Finnar gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik en staðan eft-
ir hann var 3:0.
Teemu Pukki, samherji Hjartar Hermannssonar hjá
danska liðinu Brøndby, skoraði tvö af mörkum Finna í leiknum. Finnar gerðu
markalaust jafntefli við Makedóníumenn í vináttulandsleik í Skopje á laug-
ardaginn. Í þeim leik fór Soiri af leikvelli á 68. mínútu eftir tilþrifalítinn leik.
sport@mbl.is
Íslandsvinur á skotskónum
Pyry
Soiri
„Það var viðbúið að varalið okkar myndi tapa með 20 til 30
marka mun,“ sagði Nikolaj Jaocobsen, þjálfari þýska meist-
araliðsins Rhein-Neckar Löwen eftir að hann fregnaði af 24
marka tapi varaliðs Löwen fyrir Kilce frá Póllandi í fyrri
viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evr-
ópu í handknattleik um liðna helgi. Forráðamenn RN-
Löwen ákváðu að senda varalið sitt í leikinn þar sem Hand-
knattleikssamband Evrópu, EHF, ákvað að setja viðureign
liðsins nánast á sama leiktíma og liðið átti að mæta Kiel í
þýsku 1. deildinni.
„Þegar ljóst varð að forráðamenn EHF ætluðu að sitja
við sinn keip þá væri endir bundinn um leið á þátttöku okk-
ar í Meistaradeildinni,“ sagði Jacobsen ennfremur. Síðari viðureign Löwen og
Kielce fer fram í SAP-Arena í Mannheim á sunnudaginn.
Hvorki Guðjón Valur Sigurðsson né Alexander Petersson fóru með Löwen
til Póllands. iben@mbl.is
Úrslitin komu ekki á óvart
Nikolaj
Jacobsen
EM U 21 árs liða karla
N-Írland – Ísland ......................................0:0
Staðan: Spánn 15 stig, Norður-Írland 11,
Slóvakía 9, Ísland 8, Albanía 6, Eistland 1.
Íslenska liðið á fjóra leiki eftir í keppninni.
Vináttulandsleikir
Kína – Tékkland ........................................1:4
Wales – Úrúgvæ........................................0:1
Búlgaría – Kasakstan ...............................2:1
Finnland – Malta.......................................5:0
Albanía – Noregur ....................................0:1
Portúgal – Holland....................................0:3
KNATTSPYRNA
Dominos-deild karla
8-liða úrslit karla, fjórði leikur:
Keflavík – Haukar.................................75:72
Staðan er jöfn, 2:2. Oddaleikur fer fram
annað kvöld á Ásvöllum.
NBA-deildin
Brooklyn – Cleveland....................... 114:121
Milwaukee – San Antonio ................ 106:103
Indiana – Miami ................................113:107
Eftir framlengingu.
Toronto – LA Clippers..................... 106:117
Washington – New York.................... 97:101
Sacramento – Boston .........................93:104
Oklahoma – Portland .......................105:108
Houston – Atlanta .............................. 118:99
Golden State – Utah ...........................91:110
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Grill 66-deild karla:
Selfoss: Mílan – ÍBV U .........................19.30
Í KVÖLD!
Íslenska U21 árs landslið karla í
knattspyrnu tapaði tveimur dýr-
mætum stigum í undankeppni Evr-
ópumótsins í gærkvöld þegar það
gerði markalaust jafntefli við Norð-
ur-Írland á The Showgrounds í Sligo.
N-Írar höfðu undirtökin í leiknum
og áttu 21 marktilraun á móti aðeins
4 frá Íslendingum og þeir fengu 12
hornspyrnur á móti einni frá íslenska
liðinu.
„Þetta var leikur sem við hefðum
alveg getað unnið. N-Írarnir voru
meira með boltann en við fengum
hættulegri færi í leiknum,“ sagði
Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálf-
ari íslenska U-21 árs liðsins, í samtali
við Morgunblaðið.
„Við áttum nokkrar mjög góðar
skyndisóknir og opin færi sem við
náðum að skapa okkur og hefðum átt
að nýta eitthvað af þeim. En svona
heilt yfir þá held að ég verði að segja
að jafntefli hafi verið sanngjörn nið-
urstaða,“ sagði Tómas Ingi.
Íslendingar eru áfram í fjórða sæti
riðilsins eftir þessi úrslit. Spánverjar
eru með 15 stig í efsta sæti en þeir
hafa unnið alla sína fimm leiki. N-
Írar eru með 11 stig eftir sjö leiki,
Slóvakar eru með 9 stig eftir sex
leiki, Íslendingar 8 stig eftir sex
leiki, Albanar eru með 6 stig eftir sex
leiki og Eistar reka lestina með 1
stig.
Næsti leikur Íslendinga í riðlinum
er heimaleikur á móti Eistum 6.
september.
Töpuð stig en sann-
gjörn niðurstaða
Morgunblaðið/Golli
Snjall Albert Guðmundsson (10) er fyrirliði U21 árs landsliðs í knattspyrnu.
Gylfi Þór Sigurðsson stefnir á að
koma sterkari til baka og í betra
formi þegar hann snýr til baka
eftir hnémeiðslin sem hann varð
fyrir í leik með Everton gegn
Brighton í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu fyrr í þessum mán-
uði.
Vonir standa til að Gylfi geti
náð að spila síðustu leiki Everton
á leiktíðinni en aðalmálið fyrir
okkur Íslendinga er að hann
verði búinn að ná sér að fullu áð-
ur en flautað verður til leiks á
HM í Rússlandi í sumar.
Gylfi hefur verið í meðferð hjá
sjúkraþjálfurum eftir meiðslin og
er í stöðugri framför. Hann er
farinn að geta gengið næstum
eðlilega. Fram kemur á vef Ever-
ton að Gylfi muni í næstu viku
hitta sérfræðing en hann hefur
verið í góðum höndum frá því
hann meiddist á hnénu.
„Þetta hefur bara gengið vel
og ég sé framfarir með hverjum
deginum. Það hefur ekki komið
neitt bakslag. Ég er búinn að losa
mig við hækjurnar, spelkuna á
hnénu og get gengið næstum eðli-
lega. Ég hef farið í gegnum
margar æfingar með sjúkraþjálf-
urum, í tólum og tækjum og þá
hef ég verið í sundlauginni og í
tækjasalnum,“ segir Gylfi í viðtali
við vef Everton.
Gylfi segist
vera á góðri
leið til bata
AFP
Styttist Það styttist í að Gylfi Sig-
urðsson mæti á völlinn á nýjan leik.