Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 3
sæti deildarkeppninar skipti engu
máli. Leikmenn beggja liða munu
mæta með brjóstkassann þaninn og
tilbúnir til stríðs en það sem að lok-
um mun skilja liðin að er hvort
þeirra er tilbúið að leggja á sig þá
litlu auka hluti sem þarf til sigurs.
Þrautreyndur Friðrik
„Mínir menn léku vel að þessu
sinni,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson,
hinn þrautreyndi þjálfari Keflavíkur,
en hann hefur svo sannarlega oft ver-
ið í þeirri stöðu að takast á við odda-
leik í úrslitakeppni. „Í oddaleik verða
menn að þora að vera til,“ sagði Frið-
rik Ingi íbygginn á svip í samtali við
Morgunblaðið í leikslok í TM-höllinni
í Keflavík. Spennandi verður að sjá
hvort liðið þorir annað kvöld.
Keflavík náði í oddaleik
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Barátta Guðmundur Jónsson, fyrirliði Keflavíkur, stóð í ströngu í gær. Hér er hann umkringdur leikmönnum Hauka,
Paul Anthony Jones, Finni Atla Magnússyni og Hauki Óskarssyni. Kári Jónsson fylgist með úr fjarlægð.
Hnífjafn og æsilega spennandi viðureign þar sem heimamenn höfðu betur
Haukar hafa oft hitt betur úr sínum skotum Langur stigalaus kafli
Í KEFLAVÍK
Skúli B. Sigurðsson
skulibsig@mbl.is
Keflvíkingar sluppu með skrekkinn í
gærkvöldi á ögurstundu þegar þeir
lögðu Hauka. Með bakið uppvið
vegginn fræga máttu Keflvíkingar
alls ekki misstíga sig og lögðu þeir
allt í sölurnar og uppskáru eftir því
góðan sigur, 75:72, eftir einn allra
magnaðasta leik vetrarins sem réðst
á lokamínútunni. Staðan er þar með
jöfn í einvígi liðanna eftir tvo sigur-
leiki Keflavíkur í röð. Þess vegna
kemur til oddaleiks milli liðanna um
sæti í undanúrslitum. Oddaleikurinn
fer fram annað kvöld í Schenkerhöll
Haukanna á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Fyrir leik var títt rætt um það að
þjálfarar liðanna þyrftu að stilla
spennustig leikmanna uppá milli-
metra. Hjá Keflvíkingum var spenn-
an hátt stillt og menn augljóslega
meðvitaðir um þá stöðu sem þeir
voru í enda engir hvítvoðungar í sínu
fyrsta hestaati þar á ferð. Haukar
voru töluvert yfirvegaðri í sínum að-
gerðum og allt rólegra yfir þeirra
leik. Það var ekki fyrr en undir lok
leiks að þeir voru komnir í sama gír
og Keflvíkingar en að lokum voru
það heimamenn sem unnu það reip-
tog.
Þreyta sagði til sín
Þrátt fyrir mikla baráttu og þá
staðreynd að um var að ræða fjórða
leik liðanna í þessari rimmu var leik-
urinn hin mesta skemmtun en undir
lok leiks fór þreytan að segja til sín.
Þá gerðu bæði lið sig sek um mistök
sem var augljóslega hægt að rekja
beint til þols leikmanna.
Christian Jones, annar af tveimur
erlendum leikmönnum Keflavíkur,
hefur haft ansi hægt um sig síðan
hann kom til liðsins. Hann sýndi
hinsvegar í gær hvers hann er megn-
ugur og leiddi Keflvíkinga áfram.
Jones endaði leik með 20 stig og 9
fráköst.
Kári kom liðinu ekki í gang
Hjá Haukum var það sem fyrr
Kári Jónsson sem var þeirra at-
kvæðamestur með 21 stig. Líkt og í
fyrri leik liðanna var Kára falið það
verkefni að skjóta sínum mönnum
aftur í leikinn þegar aðeins um 10
sekúndur voru til loka leiks og Kefl-
víkingar höfðu komið sér í þriggja
stiga forystu. Að þessu sinni brást
honum bogalistin af fremur stuttu
færi ef tekið er mið af því ótrúlega
skoti sem hann skellti niður í lok síð-
asta leiks.
Oddaleikur verður háður að Ás-
völlum, heimavelli Hauka, annað
kvöld. Þar mun sjóða á keipum ef að
líkum lætur. Stuðningsmenn munu
fjölmenna og koma fyrir öndveg-
issúlum sínum beggja vegna vall-
arins. Sú staðreynd að annað liðið
endaði í fyrsta sæti og hitt í áttunda
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018
Fyrirliði knattspyrnulandsliðs Perú, Paolo Gu-
errero, verður ekki með liðinu í vináttulands-
leiknum gegn Íslandi í New Jersey í nótt því
hann er í hálfs árs keppnisbanni sem lýkur í
maí. Í Guerrero fannst benzóýlekgonin, um-
brotsefni kókaíns, eftir að hann fór í lyfjapróf í
kjölfar 0:0-jafnteflis við Argentínu í byrjun
október. Guerrero var upphaflega úrskurð-
aður í árs bann en bannið var stytt um helming
eftir að þessi 33 ára gamli framherji áfrýjaði
dómnum. Í málsvörn héldu lögfræðingar hans
því fram að bannaða efnið hefði hann fengið í
líkamann vegna tedrykkju. „Mér finnst ég vera fórnarlamb órétt-
lætis. Ég er saklaus, hef ekkert gert rangt, og er mjög reiður. Það
er erfitt fyrir mig að skilja þetta óréttlæti sem ég hef verið beitt-
ur,“ sagði Guerrero við brasilíska sjónvarpsstöð. sindris@mbl.is
Fyrirliði Perú í banni
Paolo
Guerrero
Íshokkíliðið á Íslendingaslóðunum í Kanada,
Winnipeg Jets, á góðu gengi að fagna í vetur
og hefur tryggt sér sæti í úrslitakeppni NHL-
deildarinnar. Winnipeg er sem stendur með
fjórða besta árangurinn en liðið hefur leikið
75 leiki af þeim 82 sem á dagskrá eru í deilda-
keppninni. Liðið hefur unnið 46 þeirra í
venjulegum leiktíma, 10 hafa verið fram-
lengdir en liðið hefur tapað 19. Liðið er á
góðri siglingu og hefur unnið fimm leiki í röð
undir stjórn þjálfarans Pauls Maurice.
Winnipeg eignaðist lið í NHL að nýju árið
2011 og var þá haldin netkosning varðandi nafngiftina og varð
Jets niðurstaðan. Í eina tíð hét liðið Winnipeg Falcons. Uppi-
staðan í liði fyrstu ólympíumeistaranna í íshokkíi, í Kanada árið
1920, var frá Falcons og voru nokkrir af íslenskum ættum.
Vel gengur í Winnipeg
Paul
Maurice
Ekki er hátt risið á ríkjandi meisturum í Gold-
en State Warriors þessa dagana í NBA-
körfuboltanum. Nú er sú staða uppi að liðið er
án fjögurra þekktustu leikmanna sinna. Allt
menn sem tekið hafa þátt í Stjörnuleikjum
NBA. Stephen Curry hefur verið seinheppinn
í vetur. Hann hefur tvívegis meiðst á ökkla í
vetur og þegar hann sneri aftur á dögunum
meiddist kappinn á hné. Verður hann frá
næstu þrjár vikurnar en gæti verið klár í slag-
inn þegar úrslitakeppnin hefst. Önnur stór-
stjarna, Kevin Durant, er einnig frá sem
stendur vegna brákaðs rifbeins. Á sjúkralistanum eru einnig Klay
Thompson og Draymond Green en enginn fjórmenninganna ætti
þó að vera lengi frá. En nú er farið að styttast í úrslitakeppnina
og ríkjandi meistarar eru ekki samkeppnishæfir við bestu liðin.
Án fjögurra frækinna
Stephen
Curry
TM-höllin, Keflavík, 8-liða úrslit karla,
fjórði leikur 26. mars 2018.
Gangur leiksins: 3:6, 9:14, 14:19,
20:23, 24:25, 28:27, 38:30, 42:38,
46:40, 51:46, 53:52, 57:55, 61:57,
66:66, 69:69, 75:72.
Keflavík: Christian Dion Jones 20/9
fráköst/5 stoðsendingar, Hörður Axel
Vilhjálmsson 18/6 fráköst, Magnús
Már Traustason 12, Guðmundur Jóns-
son 11/5 fráköst, Reggie Dupree 5/4
fráköst, Daði Lár Jónsson 5, Dom-
inique Elliott 2, Ragnar Örn Bragason
2.
Fráköst: 27 í vörn, 3 í sókn.
Haukar: Kári Jónsson 21/6 fráköst/5
stolnir, Paul Anthony Jones III 15/9
fráköst, Haukur Óskarsson 10/4 frá-
köst, Breki Gylfason 7, Hjálmar Stef-
ánsson 7, Finnur Atli Magnússon 6/7
fráköst, Emil Barja 4/4 fráköst, Krist-
ján Leifur Sverrisson 2.
Fráköst: 27 í vörn, 10 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Davíð Tómas Tómasson, Davíð
Kristján Hreiðarsson.
Staðan er jöfn, 2:2. Oddaleikur verð-
ur í Schenkerhöllinni annað kvöld.
Keflavík – Haukar 75:72
ÍR-ingar hafa tryggt sér liðsstyrk
vegna fjarveru Ryans Taylors í fyrstu
tveimur leikjunum í undanúrslitum Ís-
landsmóts karla í körfubolta.
Borche Ilievski, þjálfari ÍR, staðfesti
við karfan.is eftir sigurinn á Stjörnunni
í fyrrakvöld að félagið myndi endur-
heimta Hjalta Friðriksson fyrir næsta
einvígi. Hjalti kemur til landsins
fimmtudaginn. Hjalti er stór og stæði-
legur framherji sem lék 15 leiki með ÍR
á síðustu leiktíð og skoraði þá 7,5 stig
að meðaltali í leik, og tók 5,1 frákast.
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
hafnaði í 76.-80.
sæti á Kia Classic
mótinu í golfi sem
fram fór í Carls-
bad í Kaliforníu
um helgina. Hún
fékk fyrir árangur
sinn 3.215 Banda-
ríkjadali, jafnvirði um 320.000 króna.
Ólafía lék hringina fjóra samtals á 2
höggum yfir pari en hún átti slæman
lokahring og lék hann á 6 höggum yfir
pari.
Sigurvegari varð Eun-Hee Ji frá Suð-
ur-Kóreu sem fékk 270.000 dali í sinn
hlut, eða um 27 milljónir króna. Ekki
nóg með það heldur tryggði Ji sér tvo
bíla frá aðalstyrktaraðila þessa LPGA-
móts, Kia.
Ji tryggði sér fyrst bíl með því að ná
holu í höggi á 14. braut, þar sem hún
tók fram 7-járn og sló boltann 151
metra. Hún fagnaði því vel en fékk svo
annan bíl fyrir sigurinn í mótinu. Hún
lék samtals á 16 höggum undir pari
Kolbeinn Sigþórsson, Hörður
Björgvin Magnússon og Jón Daði
Böðvarsson verða fjarri góðu gamni
þegar Ísland mætir Perú í vináttuleik í
Bandaríkjunum í nótt.
Frá þessu var greint á vefnum fótbolt-
i.net í gær en leikmennirnir þrír glíma
allir við meiðsli og voru ekki með í tap-
leiknum gegn Mexíkó
um nýliðna helgi. Fyr-
irliðinn Aron Einar
Gunnarsson verður
heldur ekki með en
hann átti aðeins að vera
með í leiknum á móti
Mexíkó þar sem hann
spilaði fyrri hálfleikinn.
Þá fóru Albert Guð-
mundsson og Samúel
Kári Friðjónsson til N-
Írlands þar sem
spiluðu með U21 árs
landsliðinu í gær en
báðir komu þeir við
sögu í leiknum við
Mexíkó.
Eitt
ogannað