Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.03.2018, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2018 Það er afar ánægjulegt að sjá yngri landsliðum okkar ganga vel, eins og U20-landsliði kvenna í handbolta um helgina. Stelpurnar tryggðu sér sæti á HM í Ungverjalandi og slíkur ár- angur gefur óhjákvæmilega fyr- irheit um að framtíðin sé bjart- ari en síðustu ár hjá A-lands- liðinu. Þjálfarar U20-liðsins, Stefán Arnarsson og Hrafnhildur Skúla- dóttir, gátu fagnað saman en mætast svo sem andstæðingar í úrslitakeppni Olís-deildarinnar í næstu viku, með lið Fram og ÍBV. Ísland hefur aðeins tvisvar áður komist á HM U20-landsliða kvenna. Fyrst var það árið 1999 þegar liðið lék á HM í Kína. Þá voru í hópnum leikmenn sem sett hafa mikið mark á íslenskan handbolta síðan þá og gera jafn- vel enn, eins og Guðný Jenny Ásmundsdóttir, Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Dagný og Drífa Skúladætur og Hafrún Kristjáns- dóttir, svo einhverjar séu nefnd- ar. (Þóra B. Helgadóttir, síðar landsliðsmarkvörður í fótbolta, var einnig í hópnum.) Ísland var einnig með á HM 2008 í Makedóníu. A-landsliðið komst svo í fyrsta og eina sinn í lokamót HM árið 2011. Þó að það sé ekki endilega ávísun á ár- angur A-landsliða að yngri landsliðum vegni vel er dæmið samt mjög einfalt. Með því að hlúa vel að ungum leikmönnum er efniviðurinn fyrir hendi til að ná langt síðar meir. Það mætti líka horfa á karla- landsliðið í fótbolta í þessu sam- hengi. Í 30 manna hópnum sem valinn var fyrir Bandaríkjaferð- ina sem liðið er í núna eru 10 leikmenn, eða þriðjungur, sem komu við sögu í leikjum U21-landsliðsins þegar það lék í fyrsta og eina sinn í lokakeppni EM 2011. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Hinn 33 ára gamli Jefferson Farfán er þekktasti leikmaður perúska landsliðsins í knattspyrnu sem mæt- ir Íslandi í vináttulandsleik í New Jersey í nótt. Þessi fljóti sóknar- maður hefur tvívegis þurft að taka út agabann hjá landsliðinu, vegna lífsstíls sem ekki er víst að hann hafi þroskast upp úr, og nú er hann á leið með Perú á fyrsta heimsmeistara- mót liðsins síðan árið 1982. Gríðarmiklar vonir voru bundnar við Farfán þegar hann kom fyrst fram á sjónarsviðið sem leikmaður Alianza Lima í heimalandinu. Pabbi kappans hafði yfirgefið fjölskylduna þegar Farfán var ungur en mamma hans lét ekki skort á peningum koma í veg fyrir að strákurinn fengi sitt tækifæri í fótboltanum. „Það vita það fáir en mamma vann fyrir sér sem dansari og var í vinnunni fram að sólarupprás, en fór samt með mig og studdi mig í leikjum klukkan 8 á morgnana. Hún sat í stúkunni en var dauðþreytt og jafnvel sofnuð þegar ég hljóp til hennar og vildi tileinka henni mark,“ sagði Farfán tárvotur í sjónvarpsþætti á síðasta ári. „Litli selurinn“, eins og Farfán hefur verið kallaður vegna þess hve listilega og hratt hann getur ferðast með boltann fram völlinn, spilaði sinn fyrsta landsleik 19 ára gamall og þótti einn efnilegasti knatt- spyrnumaður Suður-Ameríku. Hann fór frá Perú árið 2004 og til liðs við PSV í Hollandi, þar sem Guus Hidd- ink var við stjórnvölinn. Farfán stóð undir væntingum og vel það, skoraði 57 mörk í 118 deildarleikjum, og var seldur til Schalke í Þýskalandi þar sem hann lék í átta ár og vakti mikla athygli. Djammaði fram undir morgun til að fagna jafntefli Þrátt fyrir að hafa staðið sig vel hjá Schalke, á blómaskeiði ferilsins ef svo má segja, varpaði hegðun Farfáns utan vallar skugga á frammistöðuna. Hann var ásamt Claudio Pizarro og fleirum settur í agabann hjá perúska landsliðinu ár- ið 2007 eftir að hafa drukkið og djammað með léttklæddum konum fram undir morgun á Los Incas hót- elinu í Lima, til að fagna 1:1-jafntefli við Brasilíu. Þetta gerðu leikmenn- irnir þrátt fyrir að aðeins þrír dagar væru í mikilvægan leik við Ekvador, sem tapaðist 5:1. Þessi hegðun mun hafa verið ein- kennandi fyrir leikmenn perúska landsliðsins á þessum tíma, en „Los Incas“-hneykslið varð stærst enda birtust myndskeið og ljósmyndir af partístandinu. Perúska sambandið úrskurðaði leikmennina í agabann og þjálfarinn José Guillermo del Sol- ar neitaði að nýta krafta þeirra næstu tvö árin, en það hafði líka í för með sér að Perú endaði í neðsta sæti undankeppninnar í Suður-Ameríku fyrir HM 2010. Með Schalke í undanúrslit Meistaradeildarinnar Farfán var svo aftur settur í bann hjá landsliðinu undir lok árs 2010, eftir að hafa fengið tvo liðsfélaga sína með sér af liðshótelinu og í spilavíti kvöldið eftir útileik við Pan- ama, þvert gegn tilmælum þjálfara. Þessi hegðun Farfán varð til þess að almenningsálitið á honum í Perú var og er jafnvel enn ekkert sérstakt, jafnvel þó að hann spilaði jafnan vel í landsleikjum. Á þessum árum lék Farfán einnig vel með liði sínu Schalke, og skoraði til að mynda fjögur mörk í 10 leikj- um þegar liðinu tókst að komast í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu árið 2011. Alls skoraði Farfán 39 mörk á sjö leiktíðum í þýsku deild- inni, en meiðsli fóru að setja svip sinn á ferilinn síðustu árin þar. Landsliðsferlinum virtist vera að ljúka árið 2015 þegar hann gekk í raðir Al Jazira í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og enn settu meiðsli strik í reikninginn. Farfán hefur hins vegar komist vel í gang í vetur og raðað inn mörkum, eftir að hann gekk í raðir Lokomotiv Moskvu síðasta sumar. Sneri aftur og kom Perú á HM Farfán fékk sæti í landsliðinu á ný síðasta haust, eftir 18 mánaða fjar- veru, og skoraði fyrra markið í 2:0- sigrinum á Nýja-Sjálandi í nóv- ember þegar 36 ára bið Perú eftir sæti á HM lauk. „Vandræðageml- ingurinn“ fær því að sjá drauminn sinn rætast og er búinn að leigja hús í Moskvu fyrir vini og vandamenn yfir heimsmeistaramótið, en fylgir vonandi reglum um að halda sig sjálfur á liðshótelinu á næturnar. „Þetta er fyrir perúsku þjóðina sem hefur þurft að þjást svo mikið í mörg ár. Framtíðin er enn bjartari. Þetta landslið er með báða fætur á jörðinni og ætlar sér stóra hluti,“ sagði Farf- án eftir að HM-sætið var í höfn. Vandræðagemsi sem fékk drauminn uppfylltan  Farfán tvívegis settur í bann frá landsliðinu  Í eldlínunni gegn Íslandi í nótt AFP Lunkinn Jefferson Farfán í baráttu við Mateo Kovacic í 2:0-sigri Perú á Króatíu í vináttulandsleik á föstudag. Perú » Ísland hefur aldrei áður mætt Perú í landsleik í knatt- spyrnu. » Perú er í 11. sæti styrkleika- lista FIFA eftir að hafa verið í 75. sæti fyrir tíu árum. » Perú hefur fjórum sinnum tekið þátt á HM, síðast árið 1982. Liðið leikur á HM í Rúss- landi, líkt og Ísland, eftir að hafa hafnað í 5. sæti Suður- Ameríkuriðilsins og svo unnið Nýja-Sjáland í umspili. Norska hand- boltastjarnan Nora Mörk kveðst afar þakk- lát landsliðsþjálf- aranum Þóri Hergeirssyni fyr- ir hans stuðning á mjög erfiðum tímum í vetur en Mörk hefur upp- lifað áföll innan sem utan vallar á leiktíðinni. Í fyrrahaust var nektarmyndum af Mörk stolið úr síma hennar og þær settar í dreifingu. Á meðal þeirra sem dreifðu myndunum voru leikmenn norska karlalandsliðsins í handbolta, og gagnrýndi Mörk bæði þá og norska handknattleiks- sambandið í janúar, að loknu heimsmeistaramótinu í desember þar sem Noregur vann silfur. Hún segir Þóri hafa staðið þétt við bakið á sér: „Ef ekki hefði verið fyrir Þóri þá hefði ég kastað inn handklæðinu,“ sagði Mörk í einlægu viðtali við TV 2 í Noregi. „Hann hefur dregið mig með sér áfram og fyrir það er ég al- veg ótrúlega þakklát,“ sagði Mörk. Skyttan frábæra sleit krossband í hné í byrjun febrúar og hún segir það ekki neina tilviljun. „Ég var orðin dauðþreytt bæði andlega og líkamlega.“ sindri@mbl.is Þakklát Þóri fyrir stuðning í erfiðleikum Nora Mörk Selfyssingurinn Teitur Örn Einars- son var markahæsti leikmaður Ol- ísdeildar karla í handknattleik á þessu keppnistímabili. Hann skoraði 160 mörk í 22 leikjum Selfossliðsins. Önnur örvhent stórskytta, Kristján Örn Kristjánsson úr Fjölni, varð næstmarkahæstur með 154 mörk. Markakóngur deildarinnar fyrir tveimur árum, FH-ingurinn Einar Rafn Eiðsson, varð þriðji marka- hæsti maður deildarinnar með 138 mörk. Samherji hans, Óðinn Þór Ríkharðsson, kom næstur. Óðinn Þór skoraði einu marki færra en Einar Rafn. Hákon Daði Styrmis- son, hornamaður Hauka, skoraði einnig 137 mörk. Theodór Sigurbjörnsson, sem varð markakóngur deildarinnar í fyrra, skoraði 110 mörk. Hann missti af fimm leikjum með ÍBV á keppnistímabilinu en varð engu að síður næstmarkahæsti leikmaður liðsins á eftir Sigurbergi Sveinssyni sem skoraði 112 mörk. Teitur Örn Einarsson, Selfossi ....160 Kristján Ö. Kristjánsson, Fj. .......152 Einar Rafn Eiðsson, FH ..............138 Hákon D. Styrmisson, Hau. .........137 Óðinn Þór Ríkharðsson, FH ........137 Anton Rúnarsson, Val...................122 Magnús Óli Magnússon, Val ........120 Arnar B. Hálfdánsson, Fram .......118 Sigurbergur Sveinsson, ÍBV........112 Daníel Þór Ingason, Haukum ......111 Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV .....110 Egill Magnússon, Stjörnunni.......109 Ásbjörn Friðriksson, FH .............107 Árni Bragi Eyjólfsson, Afture. ....103 Agnar Smári Jónsson, ÍBV ..........102 Egidijus Mikalonis, Víkingi..........101 Bergvin Þór Gíslason, ÍR .............100 iben@mbl.is Teitur Örn skoraði allra mest  Fjórir af fimm markahæstu leik- mönnum Olísdeildarinnar eru örvhentir Morgunblaðið/Eggert Aðsópsmiklir Teitur Örn Einarsson, Selfossi, og ÍR-ingurinn Bergvin Þór Gíslason léku stór hlutverk í liðum sínum á keppnistímabilinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.