Morgunblaðið - 08.03.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 08.03.2018, Síða 6
Þ að kemur að daginn að Morgunblaðið var ekki fyrsti fjölmiðillinn sem Logi starfaði á, þó að hann hafi verið ungur að árum þegar hann hóf störf á íþróttadeild Morgunblaðsins í janúar 1988. „Nei, ég byrjaði nefnilega á Þjóð- viljanum tveimur árum áður. Pabbi var framkvæmdastjóri blaðsins og þar vann ég þangað til ég réðist á Moggann.“ Blaðamaður hváir við. Er það ekki svolítið eins og að leikmaður fari frá Manchester United og til Liverpool? United-stuðningsmaðurinn Logi glottir við. „Jú, það er svolítið svo- leiðis.“ Margt er breytt en annað ekki Logi starfaði í fjögur ár hjá Morg- unblaðinu í þáverandi höfuðstöðvum fyrirtækisins við Aðalstræti 6, áður en hann hélt yfir í Efstaleitið og gerðist íþróttafréttamaður á RÚV. Þaðan lá svo leiðin um nærfellt alla fjölmiðlaflóruna hér á landi uns hann sneri aftur á Moggamiðlana síðast- liðið haust – alltént í orði kveðnu. Hann fékk ekki að hefja störf alveg strax eins og frægt er orðið, en meira um það síðar. „Það er nánast allt breytt í starfs- umhverfi fjölmiðla síðan ég byrjaði í bransanum,“ segir Logi og kímir við. „Þegar ég var að byrja á Morg- unblaðinu voru faxtæki eitt mesta undrið; maður taldi nútímatæknina þar með komna á endastöð.“ Hann hlær við. „Þar er stóra breytingin á fjöl- miðlun frá því sem var. Með tækninni er hraðinn orðinn svo gíf- urlegur. Það matast inn fréttir á net- miðlana nánast stanslaust yfir daginn á mbl.is, á meðan Morgunblaðið var svona „best-of“ dagsins áður hér í upphafi míns starfsferils.“ Engu að síður er það svo að Logi segist glögglega hafa skynj- að „Mogga-andann“ þegar hann kom aftur til starfa í Hádegismóum. Sumt breytist sjálfsagt aldrei? „Hér mættu mér merkilega mörg andlit sem ég þekkti vel frá fyrri tíma mínum á Morgunblaðinu og það voru skemmtilega mörg faðmlögin sem maður fékk þegar ég kom hing- að aftur, meðal annars frá þeim mæta manni honum Sidda, Sigtryggi Sigtryggssyni. Þegar ég hóf störf í Aðalstrætinu árið 1988 er mér minn- isstætt hvernig hann sagði alltaf „við á Morgunblaðinu“ því það var alveg sérstakur hópur. Annað sem hann sagði var að lið væru ekki orðin Ís- landsmeistarar fyrr en það væri komin mynd af þeim í Morgunblaðið! Mikilvægi miðilsins í þjóðfélaginu var og er ótvírætt. Það tók mig smástund að ná hvað þetta þýddi en fljótlega tengdi ég mjög sterkt við þetta. Sama gerðist þegar ég kom til starfa núna í haust. Morgunblaðs-andinn er ennþá til staðar. Ég finn að ég er kominn heim.“ Full orka í kjölfar „leikbanns“ Eins og flestum ætti að vera kunnugt stýrir Logi morgunþættinum Ísland vaknar á K100 ásamt þeim Rúnari Frey og Rikku, ásamt því að skrifa vikulega pistla með allra handa hug- leiðingum í SunnudagsMoggann, helgarblað Morgunblaðsins. Hvað ætlar kappinn sér eiginlega stóran þátt í útgáfustarfsemi útgáfufélags- ins Árvakurs? Logi hlær við. „Það var nú aldrei planið að leggja þetta allt undir mig en útvarpið og blaðið eru hvort um sitt vettvangur sem gaman er að taka þátt í.“ Uppsöfnuð starfsorka Loga er að hans sögn ekki síst tilkomin af því hann fékk ekki að hefja störf um leið og ráðningin til Árvakursmiðlanna lá fyrir. Hann nýtti tímann engu að síður meðan á „leikbanninu“ stóð og safnaði ýmiss konar hugmyndum í sarpinn. „Það að mega ekki hella sér út í nýja starfið strax gerði það að verkum að þegar ég mátti loks byrja að vinna var ég alveg ótrúlega til í þetta. Þess vegna hefur líka verið al- veg ótrúlega gaman að takast á við þessi nýju verkefni.“ Svo mjög reyndar að hann hefur ekki átt í teljandi vandræðum með að vakna á morgnana, en þáttur þeirra þremenninga hefst alla virka daga klukkan 06.45. Hvað eru það mörg „snús“ fyrir okk- ar mann, þegar klukkan glymur til fótaferðar? „Ég er að vinna með eitt snús, það hefur virkað hingað til. Vakna klukkan 05.50 og á fætur klukkan 06.00. Ég hef enn ekki orðið of seinn til vinnu og held þetta verði allt í lagi héðan af.“ Lexíur frá viðburðaríkum ferli Í kjölfar viðburðaríks starfsferils á öllum tegundum miðla („nema á tímaritum. Ég hef skrifað í þau en aldrei verið starfsmaður á tímariti“) er ekki úr vegi að spyrja Loga Bergmann hvaða reynslu hann hafi með sér, nú þegar hann er kominn heim? „Það gildir það sama í fjölmiðla- umhverfinu og í lífinu sjálfu að það eina sem dugir til lengdar er að vera maður sjálfur. Þú verður bara að leyfa sjálfum þér að skína í gegn, með kostum og göllum, og tala eins og þér er tamt. Annars er þetta fljótlega búið. Það sjá allir í gegnum tilgerð og henni hefur enginn áhuga á. Og passa líka að vera ekki mikill fáviti. Það hefur alltaf verið vænlegt til árangurs.“ Andinn er enn sá sami Það má með sanni segja að fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann sé kominn heim, nú þegar hann er aftur tekinn til starfa hjá Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, mbl.is og K100. En þekkir hann Moggann fyrir sama vinnustað, og hvað hefur hann lært á þeim aldarfjórðungi síðan hann fór að heiman? Ísland vaknar Logi Bergmann Eiðsson, Friðrika Hjördís Geirs- dóttir og Rúnar Freyr Gíslason. 6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 K100 Konukvöld Smáralindar og K100 í kvöld… Glæsileg dagskrá, tónlistaatriði, happdrætti og gleði - Góða skemmtun TGI Fridays Smáralind Velkomin í heimsókn á Konukvöld Smáralindar. Byrjaðu kvöldið á góðri máltíð - Börnin borða frítt á fimmtudögum í fylgd foreldra/forráðamanna. Sjáumst ORA, alla daga síðan 1952 Ert þú snillingur í að búa til brauðtertur, eða langar þig að prófa að spreyta þig ? Taktu þá þátt í ORA brauðtertunni 2018. Þú gætir unnið helgarferð fyrir tvo til London á tónleika með Ed Sheeran ásamt fleiri góðum vinningum. Kíktu inn á www.ora.is/braudtertan/ til að fá að vita meira. K100 Skemmtun, fræðsla og fróðleikur k100.is Morgunþátturinn Ísland Vaknar – Nýr morgunþáttur milli klukkan 6:40 og 9:00 alla virka daga Nói Siríus Vinnur þú páskaegg frá Nóa Siríus? Nokkur páskaegg verða falin á konukvöldi Smáralindar. Verður heppnin með þér? Brimborg Bíll ársins á Íslandi 2018, Peugeot 3008 verður til sýnis á Konukvöldi Smáralindar. Gæðin heilla þig strax!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.