Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 8
Ú tvarpsferill Kristínar hófst fyrir um þremur árum þegar hún var fengin til að vera umsjónarmaður sam- félagsmiðla fyrir þáttinn Svala og Svavar. Sá fyrrnefndi þóttist skynja í röddinni möguleika fyrir út- varp og fékk hana til að lesa inn nokkrar kynningar. Þær gengu nógu vel til að hún var fljótlega komin bak við hljóðnemann og hefur ekki hvikað frá honum síðan – nema til að stunda crossfit og box! Að tala við hlustendur – ekki til þeirra „Svali sagði að það væri eitthvað í röddinni sem honum fannst vera að virka, sem kom mér á óvart því ég ætlaði mér ekkert frekar að fara í út- varp. Hann var nefnilega á því að það vantaði fleiri konur í útvarp. Ég var bara á fullu í því að sjá um facebook- síðu þáttarins þeirra Svala og Svar- ars,“ útskýrir Kristín Sif þegar hún rifjar upp árdaga útvarpsferilsins. „Það hefur verið svona fjórum til fimm mánuðum eftir að þeir félagar réðu mig fyrst á K100 að tími var kominn fyrir mig að stýra sjálf út- varpsþætti. Það var býsna stressandi skref,“ viðurkennir Kristín og hlær við. Hún útskýrir að sá þaulvani út- varpsmaður Þór Bæring hafi meðal annars verið fenginn til að æfa hana í raddbeitingu og eitt besta ráðið sem hún fékk í byrjun síns útvarpsferils hafi einmitt verið frá honum komið: „Ekki tala til fólks þegar þú ert í út- varpinu, talaðu frekar við það.“ Það hefur hún gert allar götur síðan. „Það var dálítið skrýtið að venja sig við það að vera alein inni í stúdíóinu en setja sig samt sem áður í það hugarástand að maður væri að tala við einhvern,“ segir Kristín. „En Þór sagði mér bara að ímynda mér að hann sæti þarna inni með mér, hinum megin við borð- ið, og þá gæti ég alltaf verið í hug- anum að tala við hann. Það hjálpaði mikið til að byrja með og svo slípaðist þetta allt saman til, fljótt og vel.“ Að setja sér stöðugt ný og ný mark- mið – og ná þeim Kristín er ekki bara með annan fótinn í höfuðstöðvum K100 í Hádegismóum flesta daga vikunnar heldur stundar hún líkamsþjálfun af miklum móð. Hún ræðst heldur ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í þeim efnum heldur stundar bæði box og crossfit af krafti. En hvers vegna einmitt þessar tvær íþróttagreinar? Kristín hugsar sig um stutta stund. „Það sem heillaði mig samstundis við crossfit var að maður náði mark- miðum sínum svo ótrúlega fljótt. Ég man ennþá þann mikla sigur að geta staðið á höndum með bak upp við vegg. Það var stór áfangi,“ segir hún og brosir við. „Í framhaldinu setti ég mér ný og ný markmið og náði þeim, einu af öðru. Að gera handstöðu- pressu, upphífingar, að geta gengið á höndum – þetta eru dæmi um litla áfangasigra sem ég hef náð í crossfit. Það er það sem er svo skemmtilegt við þetta æfingakerfi. Maður er sífellt að setja sér ný og ný markmið, og svo ná þeim.“ Kristín Sif bætir því við að sam- félagið sem hún tilheyrir í kringum crossfit-ástundunina sé líka einstak- lega skemmtilegt. „Æfingarnar hverfast á hverjum degi um nýtt wod eða „workout of the day“. Við hvetj- um hvert annað til dáða og klöppum á bakið hvert á öðru þegar árangri og markmiði er náð. Það er eiginlega meiri samkennd en samkeppni í þessu, finnst mér. Keppnisskapið er fyrir hendi en þú ert bara að keppa við sjálfan þig – engan annan.“ Mætti í box en látin sippa! Hin greinin sem Kristín hefur ástríðu fyrir eru hnefaleikar; hún hefur haft áhuga á boxi frá unga aldri, þótt hún hafi ekki stundað það nema í rétt um eitt og hálft ár. „Ég bjó úti í Skotlandi þegar ég prófaði það fyrst. Ég hafði horft með stjörnur í augum á kappa eins og Mike Tyson og Evander Holyfield, og svo var Muhammed Ali auðvitað goð- sögn. En þegar ég fór á fyrstu æf- inguna mína í boxi þar úti þá gekk hún út á sippa í einn og hálfan klukkutíma. Það fannst mér glatað og ég gekk út, sannfærð um að þar með væri minni hnefaleikaástundun lokið fyrir fullt og allt.“ Svo var það á haustmánuðum árs- ins 2016 að Kristín mætti með börnin sín í Mjölni til að æfa jiu jitsu. Hún ákvað að prófa víkingaþrek á meðan krakkarnir voru í sínum tíma. „Ég var í tíma hjá Steinari Thors, yf- irþjálfara Hnefaleikafélags Reykja- víkur, að læra að kýla og sparka áður en ég mátti byrja í víkingaþrekinu.“ Áhugann og ákefðina vantaði ekki og þjálfarinn gaf sig á tal við hana. „Þá sagði hann mér að ég byggi sýnilega yfir talsverðum möguleikum hvað box varðaði, og það gladdi mig auðvitað miklu meira en hann gerði sér grein fyrir. Box … ég … loksins!“ segir Kristín og hlær dátt. „Ég hef ekki litið um öxl síðan og elska að stunda box,“ segir Kristín og bætir því við að boxfélagi hennar, eða „sparring partner“, sé einmitt Val- gerður Guðsteinsdóttir sem er fyrst Íslendinga á leiðinni í titilbardaga í hnefaleikum næstkomandi laug- ardag. Aðspurð hvort eitthvað sé svipað með boxi og crossfit segir Kristín Sif að það sé tvímælalaust hversu mikil- væg tæknin er í báðum greinum. „Hnefaleikar eru gríðarlega tækni- leg íþrótt þar sem þú notar hausinn meira en hnefana. Þar af leiðandi má segja að boxið eigi enn betur við okk- ur konurnar en karlana,“ bætir hún við og hlær dátt. „Sama er að segja um crossfit. Það er þjálfunarkerfi sem samanstendur af æfingum sem margar hverjar eru tæknilega mjög flóknar.“ Hollur matur, nægur svefn – og skemmtileg verkefni Eins og vant er þegar maður hittir fyrir orkumikið fólk sem kemur miklu í verk vaknar spurningin: Hvernig ferðu eiginlega að þessu? Kristín er fljót til svars. „Líkamsþjálfunin gefur manni orku til að fást við verkefni dagsins, auk þess sem nægur svefn og gott mataræði er ómissandi. En stóri galdurinn er sá að gera sér far um að fást við hluti sem manni þykja skemmtilegir. Þá ertu einhvern veg- inn alltaf til í það sem þú ert að fara að gera, skýtur engu á frest heldur hlakkar til alls sem dagurinn fram undan inniheldur. Það er ótrúlegt hvað þetta getur skilað manni langt,“ segir Kristín Sif, orkuboltinn á K100, að endingu. Crossfit, box og K100 í beinni Orkuboltinn Kristín Sif er ein af röddunum á K100 og hefur verið síðan Svali Kaldalóns sá – eða réttara sagt heyrði – í henni gott efni í útvarpskonu. En Kristín Sif er ekki bara útvarpskona með meiru heldur finnur sér líka tíma til alls konar lík- amsþjálfunar. Spurn- ingin er hins vegar hvar hún finnur tímann til alls þessa. Hnefaleikar Kristín Sif segir hnefa- leika henta konum enda tæknileg íþrótt. Ljósmynd/Sóllilja Baltasarsdóttir 8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 25 g hafrar 15 g tröllahafrar 1 skeið Optimum Nutrition-prótín frá Perform.is (nota alltaf súkkulaði en það er gaman að flippa og breyta til) 1 tsk Peanut butter powder nokkrar rúsínur eða saxaðar döðlur kanill Vatn (hversu mikið fer eftir því hvað þú vilt hafa grautinn þykkan en mér finnst best að setja lítið fyrst og frekar bæta við, ég vil hafa hann svolítið þykkan). Þetta set ég í tupperwarebox yfir nótt og þá er þetta æðislegt að morgni. Morgunmatur Kristínar Kristín Sif segir góðan morgunmat nauðsyn- legan fyrir daginn og gefur hér uppskrift að hafragraut sem klikkar aldrei. Hreysti Kristín Sif og krakkarnir njóta þess að hreyfa sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.