Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 12

Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 Nánari upplýsingar á www.ora.is/braudtertan M ér reiknast til að þetta sé tólfta skiptið sem Smáralind heldur Konukvöld svo þessi viðburður á sér meira en áratugar hefð,“ bendir Tinna á. „Þetta er líka einn allra stærsti við- burðurinn hjá okkur á hverju ári og mikið tilhlökkunarefni.“ Það er auðheyrt á þeim stöllunum að nú stendur mikið til. „Þetta er einn af hápunktunum hjá okkur á viðburðadagatalinu, og Konukvöldið er alltaf gríðarlega vel sótt,“ bætir Sandra við. Aðspurðar hvað það er sem geri Konukvöldið ómissandi fyrir konur á öllum aldri segja þær að það sé ein- faldlega stemningin sem sé í Smára- lind á þessu árlega fimmtudags- kvöldi, einkum í göngugötunni þar sem ógrynni af alls konar uppá- komum, kynningum, tónlistar- atriðum og allra handa viðburðum er í gangi allan tímann. „Það er einhver alveg sérstakur andi í húsinu þetta kvöld,“ útskýrir Tinna. „Hann smit- ast svo áfram inn í verslanirnar sem eru fullar af nýjum vörum á þessum tíma árs.“ Óþarfi að finna upp hjólið Að vanda er viðamikil dagskrá í gangi á Konukvöldinu og hefst hún klukkan 19:30 þegar kynnir kvölds- ins, Erna Hrönn, söngkona og út- varpskona á K100, stígur á svið. Í framhaldinu skemmta meðal annars Greta Salóme, Selma Björns og Reg- ína Ósk og Eyþór Ingi, svo nokkrir séu nefndir. Hápunkturinn er svo um 22:30 þegar aðalvinningarnir eru dregnir út í happdrætti Konukvölds- ins. „Dagskráin er í grundvall- aratriðum með svipuðu sniði hjá okk- ur í ár og verið hefur undanfarin ár, enda engin ástæða til að finna upp hjólið þegar gestir skemmta sér jafn vel og raun ber vitni. Þegar hlutirnir ganga svona vel er engin ástæða til að breyta of mikið út af laginu,“ segir Sandra. „En að sjálfsögðu er alltaf eitthvað nýtt og við hlökkum til að hleypa dagskránni í gang í kvöld.“ Karlarnir mega alveg koma líka Aðspurðar hvort það sé einhver ald- urshópur sem sæki Konukvöldið öðr- um fremur segja þær Tinna og Sandra að aldurshópurinn sé býsna breiður. „Ég myndi segja að þetta væru aðallega konur á aldrinum 20 til 65 ára,“ segir Tinna. „En auðvitað eru ömmurnar líka á staðnum ásamt dætrunum og ömmustelpunum sín- um og það er einmitt mikið um að hingað komi þrjár kynslóðir saman til að hafa það gaman; dóttirin, mamman og amman.“ Sandra tekur undir þetta. „Ég tek einmitt eftir því að konurnar innan sömu fjölskyldu koma saman á Konukvöldið.“ En með þetta í huga verður ekki komist hjá því að spyrja spurningar sem snýr að herrunum í fjölskyld- unni: Er þeim vært í Smáralind með- an á Konukvöldi stendur? Þær Tinna og Sandra hlæja við. „Já, algerlega. Auðvitað eru allir karlmenn velkomnir,“ segir Sandra. „Sérstaklega ef þeir taka veskið sitt með fyrir konuna,“ bætir Tinna við og ekki minnkar hláturinn við það. „En að öllu gamni slepptu þá eru herrarnir auðvitað velkomnir eins og hvert annað kvöld í Smáralind, þótt það sé svosem alveg vitað að þeim þykir ekki alltaf jafn gaman að skoða og versla og konunum. Sumir eru þó ótrúlega duglegir við það,“ bendir Tinna á. „En fyrir þá sem ekki treysta sér í Konukvöldið eru margir staðir hér í Smáralind þar sem karl- arnir geta tyllt sér á meðan og haft það notalegt.“ Nauðsynlegt fyrir konur að koma saman Þær stöllur benda svo aftur á móti á að dagskrá kvöldsins sé ekkert frekar hugsuð fyrir konur, þar sé að finna ýmislegt við allra hæfi. Eftir rúmlega tíu ár er ljóst að Konukvöldið er búið að festa sig í sessi og aðsóknin á ári hverju er ljós- lega til marks um að eftirspurnin er fyrir hendi. Það er því mikilvægt að mati þeirra Söndru og Tinnu að halda árlegt Konukvöld til að mæta áhuganum, sem dvínar ekki nema síður sé ár frá ári. „Ég held einfaldlega að konum þyki gaman að koma saman,“ bendir Tinna á. „Kannski er það bara gott fyrir egóið að hittast margar saman, skoða okkur um í tískuverslunum, skoða og máta falleg föt, prófa nýjan ilm, smakka eitthvert spennandi góðgæti. Þetta er viðburður sem virkar, það hefur sýnt sig gegnum árin og ég er viss um að þetta myndi virka jafnvel þótt kvöldið héti eitt- hvað annað.“ Sandra tekur í sama streng. „Við erum allar komnar í sama tilgangi; þetta kvöld fáum við að vera konur alla leið og njótum þess. Andrúms- loftið endurspeglar þetta, konur eru komnar til að njóta sín, sýna sig og sjá aðrar.“ Í ljósi þess að þær Tinna og Sandra hafa borið hitann og þung- ann af skipulagningunni er spurn hvort þær verði nokkuð of uppgefnar í kvöld til að njóta viðburðarins. Því neita þær ákveðið. „Nei, við verðum hér allan daginn og fram á nótt, eflaust. Við missum ekki af þessu heldur tökum þátt allan tímann.“ „Já,“ bætir Tinna við, „og slökkv- um ljósin þegar gamanið er búið.“ Morgunblaðið/Hanna Konukvöld Þær Sandra Arn- ardóttir verkefnastjóri og Tinna Jóhannsdóttir, markaðsstjóri Smáralindar hlakka til kvöldsins. Sérstakur andi í húsinu þetta kvöld Það er meira en áratugur síðan Smáralind hélt fyrst sitt árlega Konukvöld. Í gegnum árin hafa samtals einhver hundruð þúsunda kvenna komið saman og skemmt sér eina fimmtudagskvöldstund þegar efnt er til Konukvölds og á því verður engin breyting í ár, segja þær Tinna Jóhannsdóttir, mark- aðsstjóri Smáralindar, og Sandra Arnardóttir, verk- efnastjóri á markaðsdeild Smáralindar. 19.30 Kynnir kvöldsins, Erna Hrönn, stígur á svið. 20:00 Fókushópurinn 20-23 Beggi og Pacas, Nonni gull, Halla himintungl og Elín spá í stjörnurnar og framtíðina. Staðsetning: Við hliðina á Te & kaffi 21:00 Selma Björns og Regína Ósk flytja lög úr Abba-sýningunni 21.30 Greta Salóme 22:00 Eyþór Ingi 22.30 Happdrætti – aðalvinningar dregnir út 23:00 Húsinu lokað Á göngugötunni verður lifandi stemning með tónlist, kynningum og alls konar smakki. Dagskrá Konukvölds K100 í Smáralind 8. mars

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.