Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti Síldarvinnslunnar hf. á síðasta ári reyndist umtalsvert minna en verið hefur undanfarin ár, þrátt fyrir að aflamagn hafi aukist mjög frá fyrri árum. Að sögn Gunn- þórs B. Ingvason- ar, fram- kvæmdastjóra Síldarvinnsl- unnar, einkennd- ist síðasta ár af verðlækkunum ýmissa afurða fyr- irtækisins á mörkuðum erlendis, ekki síst á mark- aði með síld. Síldarverð ekki jafn lágt lengi Verðmæti uppsjávar- og bolfisk- afurða Síldarvinnslunnar á síðasta ári nam samtals 8,3 milljörðum króna og aflamagn var 163 þúsund tonn. Verðmæti uppsjávarafurða var 3,7 milljarðar, samanborið við 5,3 millj- arða árið 2013, en uppsjávarskip Síld- arvinnslunnar lönduðu 147 þúsund tonnum af hráefni í fyrra, svipuðu magni og árið 2013 en aflaverðmæti var 1.700 milljónum lægra. „Það voru töluverðar verðlækkanir á síldarafurðum sem vega þungt hjá okkur og verð á mjöli og lýsi var lágt framan af síðasta ári,“ segir Gunn- þór. Hann nefnir að almennt séu meiri sveiflur í uppsjávartegundum og að „höggið“ hafi verið þyngra á þeim mörkuðum en á markaði með bolfiskafurðir. „Hvað snertir mjöl og lýsi þá erum við mjög háðir kvótum í Suður- Ameríku og því sem er að gerast þar. Þar voru væntingar um góðar vertíð- ir í fyrra. Það vegur þungt að það hef- ur verið lágt verð á mjöli og lýsi, sér- staklega á fyrri hluta síðasta árs. Á þeim tíma var hlutfallslega mikil framleiðsla hjá okkur, loðnuvertíð, kolmunnavertíð o.s.frv., síðan lagað- ist verð þegar leið á árið.“ „Verð á síldarafurðum einfaldlega hrundi, það er ekki hægt að segja annað þegar verð fer úr 1.300 doll- urum í 850 dollara. Makríllinn hélt sér mun betur. Mikil framleiðsla var á frosnum loðnuafurðum þannig að þar gaf verð eftir og var erfitt að selja loðnu inn á austrið. Við höfum ekki séð jafn lélegt verð á síld í mörg ár. Það munar mikið um Rússlands- markað bæði í síldinni og loðnunni en það var einn stærsti markaður okkar fyrir síld og loðnu.,“ segir Gunnþór. Viðskiptabann þyngdi róðurinn Veiðar á bolfiskskipum Síldar- vinnslunnar fóru vaxandi á árunum 2010 til 2015, í kjölfar kaupa á bol- fiskkvóta og félögum sem yfir slíkum kvóta bjuggu. Hápunktur var árið 2015 þegar veidd voru 20 þúsund tonn og verðmæti aflans var tæplega sex milljarðar króna. Á síðasta ári nam verðmæti aflans einungis fjórum milljörðum króna þrátt fyrir að veið- in væri nærri jafn mikil og árið 2015. „Verð á þorski og ýsu var lágt í kjölfarið á verkfallinu og verð á ufsa og karfaafurðum hefur verið mjög dapurt. Karfinn hefur líka verið erf- iður vegna Rússlandsmarkaðarins,“ segir Gunnþór, en nefnir að aðrir markaðir í Austur-Evrópu hafi þó vaxið. „Úkraína hefur vaxið og löndin þar í kring. Í Austur-Evrópu er löng hefð fyrir neyslu á loðnu og síld,“ seg- ir hann. „Þorskafurðirnar fara meira inn á Evrópu, Bretland og eitthvað til Am- eríku, en ufsinn hefur farið til Suður- Evrópu,“ bætir hann við. Síldarvinnslan vinnur nú að endur- nýjun bolfisktogara sinna, en sam- komulag var nýverið gert við skipa- smíðastöðina VARD Aukra í Noregi um smíði tveggja 29 metra togara. Bregðast stöðugt við ytri að- stæðum Spurður hvernig reynt sé að bregðast við þróuninni segir Gunn- þór að vel sé fylgst með þróun mark- aða. Aðspurður segir hann ástand heimsmála almennt hafa sitthvað að segja. „Ytri aðstæður skipta miklu máli, hver fisktegund hefur sitt markaðs- svæði. Sveiflur í efnahag markaðs- svæða skipta miklu máli,“ segir Gunnþór. „Við erum að senda fisk út um allan heim og ástand heimsmála almennt skiptir að sjálfsögðu miklu máli. Ólgan í kringum Rússland og viðskiptabannið hefur kostað okkur gríðarlega fjármuni,“ segir hann. „Menn reyna að bregðast stöðugt við ytri aðstæðum og skoða með hvaða hætti þeir markaðssetja og hvert þeir selja sínar afurðir,“segir hann, en nefnir að einnig geti verið að Íslendingar þurfi að líta sér nær. „Ég held að þetta sé að hluta til heimatilbúið vandamál, í einhverjum tilvikum erum við að undirbjóða hver annan og getum örugglega gert bet- ur þar,“ segir hann. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki leita nú leiða til að hagræða að sögn Gunn- þórs, ekki síst vegna aukinna álaga á borð við veiðigjöld. „Íslenskur sjávarútvegur er að koma út úr mjög góðum árum, krónan hefur verið lág. Nú hefur þetta verið að snúast snöggt. Í niðursveiflum eins og núna vega veiðigjöld mun þyngra í rekstri útgerða, svo er mikil hækkun kolefn- isgjalds á sama tíma og olíuverð er að hækka, miklar launahækkanir síð- ustu misseri hafa líka sitt að segja. Þegar menn hafa bætt við kostnaðarliðum og álögum á sjáv- arútvegsfyrirtæki, þá munu þær vega hlutfallslega þyngra í niður- sveiflu eins og núna, það gefur auga- leið. Auk sveiflna í mörkuðum þá er styking krónunnar þung, nú erum við að fá undir 100 kr. fyrir USD sem var yfir 120 krónum fyrir ári. Þegar tekjur minnka verðum við að leita leiða til að hagræða á móti, það er óumflýjanlegt,“ segir Gunnþór. Minna aflaverðmæti hjá Síldarvinnslunni Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Aflaverðmæti Síldarvinnsl- unnar hf. á síðasta ári var minna en á undanförnum árum í hlutfalli við afla- magn. Lágu verði og gengissveiflum er um að kenna. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Börkur NK 122 er eitt af þremur uppsjávarskipum Síldarvinnslunnar hf. og var smíðaður í Tyrklandi árið 2012. 36,6 53,0 53,2 1,9 5,4 4,4 4,2 4,1 Uppsjávarskip Síldarvinnslunnar Bolfi skskip Síldarvinnslunnar Heimild: Síldarvinnslan hf. Veiði uppsjávar- og bolfi skskipa 2010-2017 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 150 120 90 60 30 0 þúsund tonn Milljarðar kr. Milljarðar kr. þúsund tonn25 20 15 10 5 0 6 5 4 3 2 1 6 5 4 3 2 1 Barði NK Bjartur NK Blængur NK Vestmannaey VE Bergey VE Gullver NS Afl averðmæti Bjarni Beitir Börkur Afl averðmæti Gunnþór Ingvason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.