Morgunblaðið - 05.04.2018, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2018 11FRÉTTIR
Borgartúni 22 og Dugguvogi 4, Reykjavík, S: 588 8000 • Dalshrauni 11, Hafnarfirði, S: 588 8000
Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, S: 421 2720 Gleráreyrum 2, Akureyri, S: 461 2760
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • slippfelagid.is
Litina hennar Sæju
færð þú í Slippfélaginu
GÆÐIN
Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið.
Votur
Volgur Ber
Af síðum
Er Elon Musk svo „áhrifamikill“ að það valdi því að fólk „reynist
ekki lengur fært um að nota eigin dómgreind“? Það getur varla far-
ið á milli mála. Þarf ekki annað en að skoða rekstrarvirði Tesla eins
og það var metið í síðustu viku. Þá var það 300 sinnum meira en
hagnaðurinn af kjarnastarfsemi félagsins. Ómótstæðilegir persónu-
töfrar forstjórans eru það eina sem gæti útskýrt það.
Dómstóll í Delaware notaði einmitt þetta orðalag í síðustu viku, en
þó í þrengri skilningi: Beitti Musk ítökum sínum í bandaríska raf-
bílaframleiðandanum með þeim hætti að stjórnarmeðlimir beygðu
sig undir þann vilja hans að kaupa SolarCity? Musk er stærsti hlut-
hafinn í sólarrafhlöðufyrirtækinu.
Þó að það gerist oft að fyrirtækjakaup leiði til kjánalegra mála-
ferla, þá er í þessu tilviki vel hægt að skilja að hluthafar séu ósáttir.
Lögfræðingar bílaframleiðandans reyndu að halda því fram að 22,1%
eignarhlutur Musk væri ekki nægilega stór til að segja mætti að
hann færi með tögl og hagldir í fyrirtækinu. En dómarinn ákvað á
miðvikudag að Musk yrði að reyna að sannfæra réttinn um það.
Dómarinn tók það fram að ekki væri til nein formúla til að reikna
út hvenær fólk hefði áhrifavald, og hvenær ekki. Þarf þó ekki að
leita nema mánuð aftur í tímann þegar Musk var talinn svo ómiss-
andi fyrir fyrirtækið að ákveðið var að hann skyldi fá einn rausn-
arlegasta kaupaukasamning sem sögur fara af, sem metinn er á 55
milljarða dala. (En eftir nýlega söluhrinu fjárfesta í fyrirtækinu
virðist frekar langsótt að honum takist að ná fyrsta árangurstengda
markmiði samningsins um að ná markaðsvirði Tesla upp í 100 millj-
arða dala.)
Það erfitt að halda því fram að 2,1 milljarður dala hafi verið lágt
verð fyrir SolarCity, sem stóð frammi fyrir yfirvofandi lausa-
fjárvanda. Það er heldur ekki auðvelt að sýna fram á að Tesla, sem
glímir við erfiðleika við framleiðslu á nýja Model 3-bílnum, hafi haft
svo mikla þörf fyrir sólarorkutæknina að það væri þess virði að fást
við öll vandamálin sem fylgdu nærri 3,6 milljarða dala skuldum Sol-
arCity.
Og núna, 21 mánuði eftir að kaupin gengu í gegn, sést það betur
en nokkru sinni. Vaxtagjöld Tesla jukust um 137% á síðasta ári, og
þá aðallega vegna sólarsellufyrirtækisins. Bæði skuldabréf og hluta-
bréf Tesla hafa hríðfallið í verði undanfarna daga vegna ótta mark-
aðarins við að ekki takist að afhenda nægilega marga nýja bíla til að
afla félaginu þeirra tekna sem það þarf til að halda rekstrinum
gangandi án frekari fjármögnunar, og það á sama tíma og aðstæður
á mörkuðum eru ekki eins hagfelldar og þær voru áður. Með því að
leysa eitt af fyrirtækjum sínum úr snörunni hefur Musk komið sínu
besta verkefni í vonda stöðu. Svo gæti farið að hann þyrfti
senn að grípa á ný til kröftugra persónutöfra sinna.
LEX
Elon Musk:
Sólkonungurinn
Mark Zuckerberg hefur svarað fyrir
sig eftir að stjórnandi Apple gagn-
rýndi Facebook fyrir að fara óvarlega
með upplýsingar um notendur sam-
félagsmiðilsins. Segir Zuckerberg að
ásakanirnar um að Facebook sé sama
um notendur sína séu „mjög upp-
gerðarlegar“ og „ekki í neinu sam-
ræmi við sannleikann“.
Tim Cook, forstjóri Apple, beindi
spjótum sínum að stofnanda Face-
book í síðustu viku í kjölfar þess að
Cambridge Analytica-hneykslið
komst í hámæli. Var Cook spurður
hvað hann myndi gera ef hann lenti í
sömu sporum og Zuckerberg.
Svaraði hann með því að gera skýr-
an greinarmun á Apple og Facebook,
þegar hann sagði: „Ég myndi aldrei
lenda í þessum aðstæðum.“ Sagði
hann að Apple, framleiðandi iPhone-
snjallsímans, hefði neitað að leyfa
auglýsendum að nota persónuupplýs-
ingar viðskiptavina fyrirtækisins í
markaðsskyni. „Upplifun notenda
skiptir okkur miklu máli og við mun-
um ekki nota einkalíf fólks sem sölu-
vöru.“
Vill tengja alla jarðarbúa
Í viðtali við tímaritið Vox hélt
Zuckerberg uppi vörnum fyrir við-
skiptamódel Facebook, sem byggist á
sölu auglýsinga og öflun upplýsinga
um notendur. „Sannleikurinn er sá að
ef við viljum byggja upp þjónustu
sem tengir saman alla íbúa jarðar-
innar þá eru margir sem hafa ekki
efni á að greiða fyrir aðganginn,“
sagði hann. „Eina rökrétta leiðin er
því að notast við viðskiptamódel sem
reiðir sig á sölu auglýsinga.“
Bætti hann síðan við: „Ef ætlunin
er að byggja upp fyrirtæki sem sinnir
ekki bara þeim ríku, þá þarf að bjóða
upp á vöru sem fólk hefur efni á.“
Facebook glímir enn við eftirköst
Cambridge Analytica-hneykslisins,
en fyrir skemmstu kom í ljós að
breska gagnagreiningarfyrirtækið
hefði haft aðgang að persónuupplýs-
ingum 50 milljón facebooknotenda.
Ekkert lát er á óánægju stjórn-
málamanna með málið og beggja
vegna Atlantsála eru stjórnvöld að
skoða leiðir til að þrengja að starf-
semi samfélagsmiðla. Í Brussel
stendur til að skera upp herör gegn
samfélagsmiðlum og hefur ESB
kunngert að atvik á borð við gagna-
lekann frá Facebook „grafi undan
lýðræðislegum stofnunum“ sam-
félagsins.
Markmiðið tekið breytingum
Zuckerberg viðurkenndi að það
markmið Facebook að tengja alla
jarðarbúa saman hefði tekið breyt-
ingum eftir að „einangrunarhyggja
og þjóðernishyggja“ fóru að njóta
vaxandi hljómgrunns víða um heim.
„Það leikur enginn vafi á því að
okkur ber rík skylda til að magna upp
það góða sem gerist þegar fólk teng-
ist hvað öðru og að draga úr eða koma
í veg fyrir það neikvæða sem not-
endur geti gert til að níðast hver á
öðrum,“ sagði hann. „Ég held að það
sé ljóst að það eitt að leiða fólk saman
er ekki alltaf af hinu góða.“
Zuckerberg nefndi að þörf gæti
verið á aðkomu þriðja aðila, sem hefði
það hlutverk að leysa úr deilum um
efni sem birt væri á stöðum eins og
Facebook.
„Til lengri tíma litið myndi ég vilja
sjá þann möguleika að hægt væri að
áfrýja ákvörðunum til sjálfstæðs að-
ila,“ sagði hann. „Við gætum ímyndað
okkur einhvers konar stofnun, hálf-
gerðan hæstarétt, sem væri skipaður
fólki sem gæti úrskurðað með sjálf-
stæðum hætti, væri ekki í vinnu hjá
Facebook og hefði endanlegt ákvörð-
unarvald um hvers konar umræða
þykir ásættanleg á vettvangi sem
endurspeglar gildi og venjur fólks um
allan heim.“
Mikið í húfi í kosningum
Julian King, öryggismálaráðherra
ESB, hefur krafist þess að gerð verði
„skýr áætlun“ um hvernig samfélags-
miðlar starfa þegar mikið er í húfi í
kosningum, s.s. þegar kosið verður til
Evrópuþings í maí 2019.
Í bréfi sem King sendi Mariyu
Gabriel, umboðsmanni stafræna hag-
kerfisins hjá Evrópusambandinu,
kallaði hann eftir meira gagnsæi um
það algrím sem tæknifyrirtækin nota
til að koma tilteknum fréttum á fram-
færi við notendur og að settar yrðu
frekari skorður á öflun persónu-
upplýsinga í pólitískum tilgangi.
Facebook „ber líka mikla ábyrgð“
við að „styðja við hágæðafrétta-
mennsku“, sagði Zuckerberg og benti
á hversu mikilvægar áskriftartekjur
væru fyrir fréttamiðla. „Það er vissu-
lega margt sem við getum gert á
Facebook til að hjálpa fólki og hjálpa
þessum fréttamiðlum við að
fjölga áskriftum,“ sagði hann.
Zuckerberg og Cook
skiptast á skotum
Eftir Matthew Garrahan í
London
Aðferðir Facebook til
tekjuöflunar sæta nú auk-
inni gagnrýni um heim all-
an og hefur stofnandi
fyrirtækisins, Mark
Zuckerberg, m.a. átt í
orðaskaki við forstjóra
Apple vegna þess.
AFP
Stofnandi Facebook hefur átt í vök að verjast að undanförnu í kjölfar
Cambridge Analytica-hneykslisins sem skók fyrirtækið um veröld víða.