Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 1
BLÓMOGPLÖNTURHAFAGLEYMST
Ruggumótorhjól gæti verið upplögð sumargjöf. 4
Unnið í samvinnu við
Snjalltreyjan frá Tyme Wear gæti valdið
straumhvörfum í þjálfun, bæði fyrir
almenning og afreksíþróttafólk. 14
VIÐSKIPTA
Kristín Helga Gísladóttir hjá Garðheimum segir að
pottaplöntur og afskorin blóm virðist h f
gleymst í umræðu um niðurfellingu tol
SNJÖLL ÍÞRÓTTATREYJA
a a
la.
FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Vodafone skoðar sæstreng
Vodafone á Íslandi, með aðstoð
Vodafone Group, hefur hafið skoðun
á fýsileika þess að leggja nýjan sæ-
strengs frá Íslandi til Evrópu. Verk-
efnið er enn á þróunarstigi og ekki
ljóst hvort af því verður. Þetta stað-
festir Guðfinnur Sigurvinsson, sam-
skiptastjóri Sýnar, móðurfélags
Vodafone. Vodafone Group hefur
þekkingu og reynslu af slíkum verk-
efnum og starfrækir sérstakt teymi
á þessu sviði.
„Þar sem um væri að ræða upp-
byggingu á mikilvægum fjar-
skiptainnviðum til landsins á félagið
nú einnig í uppbyggilegum við-
ræðum við stjórnvöld. Rétt er að
taka fram að ekki er á þessu stigi
gert ráð fyrir að koma þurfi til beins
fjárhagslegs ríkisstuðnings verði
verkefnið að veruleika,“ segir hann.
Að hans sögn er kostnaður við
gagnasambönd frá Íslandi til
Evrópu á meðal stærstu kostn-
aðarliða Sýnar. Þess vegna hafi fé-
lagið á undanförnum árum leitað
leiða til að draga úr kostnaði vegna
útlandasambanda fyrir félagið auk
þess að skapa tækifæri og styðja við
vöxt gagnavera á Íslandi. Vodafone
hefur fram að þessu einungis lagt út
fyrir óverulegum ráðgjafakostnaði
vegna málsins en ekki tekið neinar
skuldbindandi ákvarðanir um lagn-
ingu sæstrengsins. „En ef af verk-
efninu verður mun Vodafone stíga
með afgerandi hætti inn á mark-
aðinn með útlandasambönd og veita
það nauðsynlega samkeppnislega
aðhald sem skortur er á í dag,“ segir
Guðfinnur.
Fram kom í nýlegri úttekt KPMG
á gagnaversiðnaðinum að litið væri á
það neikvæðum augum af mögu-
legum viðskiptavinum gagnavera að
einungis eitt fyrirtæki, Farice, bjóði
nettengingar við umheiminn. Auk
þess sé bandvídd dýrari hér en í
samkeppnislöndum. Efla þurfi net-
tengingar til landsins til þess að
gagnaver hérlendis geti keppt al-
þjóðlega. Það verði æ erfiðara fyrir
þau ef ekkert verður aðhafst í mál-
inu. Ákjósanlegast væri, að mati höf-
unda skýrslunnar, ef það væru tveir
netstrengir í einkaeigu og sá þriðji
væri í eigu ríkisins sem tryggði
áreiðanlega og hagkvæma varateng-
ingu við umheiminn, eins og Morg-
unblaðið hefur áður greint frá.
Thule Investments hefur í nokkur
ár leitt annað verkefni um lagningu
nýs sæstrengs milli Íslands, Írlands
og Noregs. Gísli Hjálmtýsson, fram-
kvæmdastjóri Thule Investments,
hefur sagt við Morgunblaðið að nýr
strengur kosti um 6-7 milljarða
króna. Að hans sögn þarf að leggja
nýjan sæstreng á sjö ára fresti.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Vodafone á Íslandi hefur átt
í viðræðum við stjórnvöld
um lagningu nýs sæ-
strengs frá Íslandi til Evr-
ópu. Verkefnið er í sam-
vinnu við Vodafone Group.
Morgunblaðið/Ófeigur
Vodafone Group hefur þekkingu og reynslu af því að leggja sæstrengi.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
19.10.‘17
19.10.‘17
18.4.‘18
18.4.‘18
1.683,15
1.775,63
130
125
120
115
110
124,3
123,15 Ómar Svavarsson, forstjóri öryggis-
fyrirtækisins Securitas, segir að
þegar Securitas hafi ákveðið að
snjallvæða öryggisvöktun sína, þá
hafi valið staðið á milli þess að fara
sjálft í þróun og verða hugbúnaðar-
hús, eða að halda sig við sitt hlutverk
og sína kjarnastarfsemi og stofna til
samstarfs við leiðandi aðila í tækni.
„Í mínum huga var algjörlega ljóst
að fara síðarnefndu leiðina,“ segir
Ómar.
Hann segir að eftir að hafa skoðað
nokkra mögulega samstarfsaðila, þá
hafi valið verið auðvelt að lokum
þegar jákvæð viðbrögð bárust frá
stærsta fyrirtæki Bandaríkjanna á
þessu sviði, Alarm.com. Hann segir
að fljótt hafi tekist góður vinskapur
milli félaganna. „Þau hafa sýnt það í
verki alveg frá upphafi að þau
standa þétt við bakið á okkur.“
Ómar segist jafnframt aldrei hafa
séð önnur eins viðbrögð
við nokkurri vöru.
Ómar segir að yngra fólk sé mót-
tækilegra fyrir snjalllausnunum.
Securitas valdi að semja við
tæknifyrirtæki frekar en að
verða sjálft hugbúnaðarhús.
8
Áfram í kjarnastarfseminni
Nýjasta skýrsla Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins um horfur í
heimsbúskapnum bendir bæði
til aukins bata og
vaxandi veikleika.
Vinsamlegast
höndlið með varúð
10
Tekjur af streymisþjónustu
Netflix jukust um 43% á milli
ára en félagið er með neikvætt
sjóðstreymi upp á 4
milljarða dala á ári.
Lex: Góðar tekjur
af sjónvarpsglápi
11