Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018FRÉTTIR
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
ORIGO
-10,78%
21,1
EIK
+3,55%
10,35
S&P 500 NASDAQ
+2,81%
7.306,481
+2,26%
2.716,3
+0,73%
7.317,34
FTSE 100 NIKKEI 225
19.10.‘17 19.10.‘1718.4.‘18 18.4.‘18
1.900
702.500
2.153,15
2.474,0
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
57,23
72,8
+1,74%
22.158,2
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
50
Lífeyrissjóðir landsins munu þurfa á
meiri gjaldeyri að halda en sem nem-
ur viðskiptaafgangi ætli þeir að auka
hlutfall erlendra eigna úr 25% í 40%
á næstu 20 árum, samkvæmt sviðs-
mynd frá greiningardeild Arion
banka.
„Miðað við núverandi samsetningu
eigna þarf að breyta um 600 millj-
örðum króna af innlendum eignum í
erlendar. Það verður eflaust ekki
gert á skömmum tíma heldur þannig
að nýtt ráðstöfunarfé lífeyrissjóð-
anna leitar að stórum hluta úr landi,
eins og raunin varð í fyrra þegar þeir
fjárfestu fyrir 119 milljarða króna er-
lendis,“ segir Stefán Broddi Guð-
jónsson, forstöðumaður greining-
ardeildar Arion banka, í samtali við
ViðskiptaMoggann.
Til þess að fjárfesta erlendis þurfa
lífeyrissjóðir gjaldeyri. Hann bendir
á að í fyrra hafi viðskiptaafgangurinn
verði svipaður og fjárfestingar lífeyr-
issjóðanna erlendis. „Að því gefnu að
viðskiptaafgangurinn dragist saman,
sem við gerum ráð fyrir, mun hann
ekki duga til þess að mæta þörf líf-
eyrissjóða til að fjárfesta erlendis
nema annaðhvort gengi krónunnar
veikist, sem eykur viðskiptaafgang,
eða erlend fjárfesting hér á landi
vegi upp á móti.“ Þriðja sviðsmyndin
væri að lífeyrissjóðir myndu færa
eignir á erlenda markaði yfir enn
lengra tímabil.
Að sögn Stefáns Brodda má segja
að um 40% af eignum lífeyrissjóða
ættu að vera erlendis, byggt á sjón-
armiðum um áhættustýringu og
neyslumynstur Íslendinga.
Kostnaður forða jafn arði
Hann ræddi einnig gjaldeyris-
varaforða Seðlabankans í erindi sínu
í gær þegar hagspá greiningar-
deildar Arion banka var kynnt. „Mér
sýnist að árlegur vaxtakostnaður
Seðlabankans vegna gjaldeyrisforð-
ans sé af svipaðri stærðargráðu og
væntar arðgreiðslur ríkisbankanna,
þ.e. Íslandsbanka og Landsbanka
eða um 15-20 milljarðar króna á ári
að óbreyttu.“ Samkvæmt Seðlabank-
anum var gjaldeyrisforðinn 686 millj-
arðar króna við árslok.
Eigið fé Seðlabankans hefur lækk-
að úr tæplega 100 milljörðum króna
árið 2013 í um 23 milljarða nú. Stefán
Broddi óttast ekki að eigið fé bank-
ans fari þverrandi. „Seðlabankinn er
að fullu starfhæfur þótt eigið fé hans
verði uppurið. Bankinn gerir upp í
krónum og gefur út krónur. Hann er
ekki eins og hvert annað fyrirtæki,“
segir hann. Seðlabankastjóri hefur
þó boðað aðgerðir í þessum efnum.
„Annaðhvort virðist ætlunin að kalla
eftir auknu eiginfjárframlagi frá rík-
issjóði eða viðskiptabankarnir eiga
að taka þátt í kostnaði við gjaldeyr-
isforðann. Það hefði annaðhvort í för
með sér að afkoma ríkissjóðs versn-
aði og skuldir ykjust eða að álögur á
viðskiptabankana ykjust. Það gæti
haft í för með sér aukinn vaxtamun
sem bitnaði á viðskiptavinum, og
hefði líklega svipuð áhrif á hagkerfið
og ef Seðlabankinn hækkaði vexti.“
Viðskiptaafgangur
mun ekki nægja
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Lífeyrissjóðir ættu að
breyta um 600 milljörðum
af innlendum eignum í
erlendar á næstu 20 árum.
Þá yrðu erlendir eignir 40%
af heildareignum.
Hrein erlend fjárfesting lífeyrissjóða af VLF
– svo erlend eign þeirra verði 40% af heildareignum 2037
5%
4%
3%
2%
1%
0%
2016 2019 2022 2025 2028 2031 2034 2037
Heimild: Greiningardeild Arion banka
FJÁRFESTINGAR
Hagnaður Eyris Invest jókst um
163% á milli ára og nam 110 millj-
ónum evra í fyrra, jafnvirði 13,6 millj-
arða króna. Arðsemi eigin fjár Eyris
Invest var 34% á árinu og eigin-
fjárhlutfallið var 66% við árslok. Þetta
kemur fram í ársreikningi félagsins.
Marel hækkaði um 30% á árinu að
teknu tilliti til arðgreiðslna. Til sam-
anburðar lækkaði Marel um 4% árið
2016 að teknu tilliti til arðgreiðslna,
samkvæmt athugun ViðskiptaMogg-
ans.
Helstu eignir félagsins eru 26%
hlutur í Marel og 43% hlutur í Eyri
Sprotum. Eyrir hefur verið stærsti
hluthafi Marels frá árinu 2005. Eyrir
Sprotar fjárfesta í vænlegum vaxtar-
fyrirækjum. Við árslok átti fyrirtækið
í tíu félögum. Eyrir Invest á einnig
þriðjungshlut í Efni Media, sem selur
vöru og þjónustu í gegnum netið og
samfélagsmiðla.
Á liðnu ári seldi Eyrir í Marel fyrir
66,9 milljónir evra, jafnvirði 8,3 millj-
arða króna. Fjárfestingafélagið lagði
3,6 milljónir evra, jafnvirði 444 millj-
óna króna, í Eyri Sprota. Það keypti
sömuleiðis eigin bréf fyrir 748 þúsund
evrur.
Stærstu hluthafar Eyris Invest eru
Landsbankinn með 22%, Þórður
Magnússon stjórnarformaður með
19% og Árni Oddur Þórðarson, sonur
hans og forstjóri Marels, með 16%
hlut. helgivifill@mbl.is
Eyrir Invest hagnast
um tæplega 14 milljarða
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þórður Magnússon er stjórnarformaður Eyri Invest og á 19% hlut í félaginu.
KAUPHÖLL
Alvarlegar truflanir urðu í við-
skiptakerfinu hjá kauphöllum
Nasdaq á Norðurlöndunum og í
Eystrasaltsríkjunum, bæði á hluta-
bréfamörkuðum og skuldabréfa-
mörkuðum, og svo á hrávörumörk-
uðum, þegar galli í eldvarnarkerfi
varð til þess að búnaður sem
geymdur er í gagnaveri þriðja aðila
í Svíþjóð varð fyrir skemmdum.
Opnað var fyrir viðskipti á íslenska
markaðnum kl. 12.40 með uppboði
og samfelldum viðskiptum kl.
12.50.
Magnús Harðarson, aðstoðarfor-
stjóri Nasdaq á Íslandi, segir í
samtali við ViðskiptaMoggann, að
nú verði farið í að kryfja atvikið til
mergjar. Spurður hvort einhver
eftirmál geti orðið af lokuninni,
segir hann að of snemmt sé að geta
sér til um það að svo stöddu.
Hann segir að mörkuðum Kaup-
hallarinnar hafi verið lokað áður
vegna truflana. „En sem betur fer
er það fátítt og oftast hefur verið
um afmarkaðri atvik að ræða. Okk-
ur rekur ekki minni til sambæri-
legs atviks áður.“
Hvað þýðir það þegar Kauphöll
lokast með þessum hætti?
„Alvarlegustu áhrifin eru þau að
fjárfestar geta ekki átt viðskipti sín
á milli með þá fjármálagjörninga
sem lokað er fyrir viðskipti með.“
tobj@mbl.is
Skemmdir í búnaði seink-
uðu opnun Kauphallar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kauphöll Íslands var ekki opnuð fyrr
en skömmu fyrir klukkan 13 í gær.Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Vörur fyrir sjávarútveginn
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Atvinnuhúsnæði óskast
Ca. 600-800 fm atvinnuhúsnæði óskast til kaups á höfuðborgar-
svæðinu.
Fyrir traustan aðila leitum við að ca. 600-800 fm atvinnuhúsnæði
á góðum stað á höfuðborgarsvæðinu. Æskilegt er að um helm-
ingur húsnæðisins sé gott verslunar- og skrifstofuhúsnæði og um
helmingur húsnæðisins sé iðnaðar- og lagerhúsnæði.
Allar nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Jónsson hagfræðingur og
löggiltur fasteignasali.
Farið er að hægja á hagkerfinu og
hagvöxtur á Íslandi mun færast
nær því sem tíðkast hjá öðrum
þróuðum ríkjum, samkvæmt hag-
vaxtarspá greiningardeildar Arion
banka.
Hagvöxtur verður 2,8% í ár, 3,2%
árið 2019 og 2,1% árið 2020 gangi
spáin eftir. Einkaneyslan mun
draga vagninn en íbúðafjárfesting
og fjárfesting hins opinbera munu
leggja hönd á plóg. Ferðaþjón-
ustan mun halda áfram að vaxa en
mun hægar en áður, enda raun-
gengið í hæstu hæðum. Þrátt fyrir
spá um gengisveikingu verður
krónan áfram sterk.
Færumst nær öðrum
þróuðum ríkjum