Morgunblaðið - 19.04.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018FRÉTTIR
SVEIGJANLEGOGLIPUR
INNHEIMTUÞJÓNUSTA
Hafðu samband, við leysum málin með þér!
Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
Snögg
og góð
þjónusta
Stafrænt prentaðir
límmiðar á rúllum
Vantar þig lítið upplag?
Stafræn límmiðaprentun hentar vel fyrir minni upplög.
Pappír, hvítt plast, glært plast og fl. þú velur!
Sími 540 1818 | Skemmuvegi 4 | Kópavogi
midaprent@midaprent.is | midaprent.is
Samkvæmt dagatalinu er sum-
arið komið og ekki seinna vænna
að huga að garðinum. Um þetta
leyti árs fyllast Garðheimar af
plöntum og fólki og verður í nógu
að snúast hjá Kristínu Helgu og
félögum næstu vikurnar og mán-
uðina.
Hverjar eru helstu
áskoranirnar í rekstrinum
þessi misserin?
Okkar helstu áskoranir eru að
erfitt getur reynst að fá nóg af
plöntum til að selja viðskipta-
vinum okkar. Framleiðsla hér á
Íslandi er mjög takmörkuð og
erfitt og dýrt að flytja inn
plöntur til landsins, bæði vegna
fjarlægðar við meginland Evr-
ópu, reglna á Íslandi og hárra
tolla.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
sem þú sóttir?
Ég fór á mjög skemmtilega
ráðstefnu í vor á vegum SVÞ þar
sem Magnus Lindquist framtíð-
arfræðingur talaði. Hann fjallaði
um að við þyrftum að vera
óhrædd að fara okkar eigin leiðir
í framtíðinni. Okkur hættir til að
feta öruggu leiðina og fylgja
straumnum.
Hver myndi leika þig í kvik-
mynd um líf þitt og afrek?
Brynhildur Guðjónsdóttir. Hún
er frábær leikkona og á svo auð-
velt með að túlka mismunandi
karaktera og svo er hún líka lág-
vaxin og dökkhærð eins og ég.
Hugsarðu vel um líkamann?
Mín aðallíkamsrækt er að
vinna í garðinum. Það er svo end-
urnærandi að vera úti, innan um
plönturnar, eftir erfiðan dag.
Mér finnst það vera eins og að
fara í jógatíma, kemur ró á hug-
ann.
Hvert væri draumastarfið
ef þú þyrftir að finna
þér nýjan starfa?
Það er ýmislegt sem kæmi til
greina. Það sem vekur helst
áhuga minn er hönnun og garð-
yrkja og því myndi ég gjarnan
vilja vinna á þeim vettvangi eins
og ég geri í dag. Einnig væri ég
alveg til í að fara aftur í kennslu
einhvern daginn
Hvað myndirðu læra ef
þú fengir að bæta við
þig nýrri gráðu?
Líklegast væri að MBA-gráða
yrði fyrir valinu. Einfaldlega af
því að það myndi nýtast mér best
í því starfi sem ég er í núna.
Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?
Kosturinn og gallinn við okkar
rekstur er að við erum fjöl-
skyldufyrirtæki. Við erum í sam-
keppni við fyrirtæki sem eru mun
stærri en við og í eigu stórra að-
ila, það getur oft verið erfitt. Aft-
ur á móti er það líka styrkur að
vera minna fjölskyldufyrirtæki
þar sem starfsfólk fyrirtækisins
er þéttur kjarni sem hefur unnið
hér lengi og vinnur vel saman
eins og ein stór fjölskylda.
Hvað gerirðu til að fá orku
og innblástur í starfi?
Ég fer á vörusýningar erlendis
og heimsæki garðyrkjustöðvar
um alla Evrópu. Það hefur mikil
þróun átt sér stað í starfsemi
þeirra og við reynum að skila
þeim áhrifum hingað heim til Ís-
lands.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráð í einn dag?
Ég myndi fella niður tolla af
pottaplöntum og afskornum
blómum sem virðast hafa gleymst
í umræðu um niðurfellingu tolla.
Þetta eru tollar sem voru settir á
til að vernda íslenska framleiðslu
fyrir mörgum árum þegar fram-
leiðsla á plöntum var mikið meiri
en hún er í dag. Þessir tollar eru
orðnir tímaskekkja.
SVIPMYND Kristín Helga Gísladóttir, framkvæmdastjóri Garðheima
Getur verið erfitt að fá
nóg af plöntum til að selja
Morgunblaðið/RAX
Kristín segir að svo virðist sem tollar af pottaplöntum og afskornum blómum hafi gleymst í umræðunni um
niðurfellingu tolla. Hún segir tollana tímaskekju og hafa verið setta á þegar aðstæður voru allt aðrar.
FYRIR ERFINGJANN
Býr lítil kappaksturshetja á heim-
ilinu? Gæti verið að litla krílið yrði
næsti Marc Márquez eða Danica
Patrick? Verður krakkinn alveg óð-
ur þegar hann sér flottan sportbíl
eða kröftug mótorhjól? Þá er rétta
sumargjöfin fundin: Moto Rocker-
rugguhesturinn frá þýska hönn-
uðinum Felix Monza.
Eins og sést á myndunum er um
bráðskemmtilegan rugguhest að
ræða, sem lítur út eins og mótorhjól
af gamla skólanum. Sætið og stýrið
eru leðurklædd, fram- og afturljósin
eru á sínum stað, og líka voldug eins
strokks gervivél. Það er sko ekkert
„hott hott“ á þessum hesti, heldur
„vrúmm vrúmm“ og eins gott að
halla sér inn í beygjuna.
Þrenns konar útfærslur eru í boði,
og hægt að fá mótorhjóla-ruggu-
hestana í hvítum, gráum og grænum
lit, eða sérpanta lit-
inn (sem lengir
afhending-
artímann upp í tíu vikur) svo að
rugguhesturinn smellpassi örugg-
lega við litavalið í barnaherberginu.
Moto Rocker er ekki ódýrasti
rugguhesturinn í bænum, því hann
kostar 1.295 evrur hjá Felix-
monza.com. jafnvirði u.þ.b. 160.000
króna. ai@mbl.is
Rugguhestur fyrir litla
mótorhjólatöffara
Moto Rocket minnir á gamaldags
mótorhjól og fegrar heimilið.
NÁM: Verzlunarskóli Íslands, 1989, stúdentspróf; Háskóli Ís-
lands, 1995, B.A. í uppeldis- og menntunarfræði; Háskólinn í
Reykjavík, 2008, AMP.
STÖRF: 1995-1997 Strá, Starfsmannaráðningar; 1997-2000
Smáraskóli, kennari og námsráðgjafi; 2000-2015 Garðheimar,
starfsmannastjóri og verslunarstjóri. Framkvæmdastjóri frá
2015.
ÁHUGAMÁL: Garðyrkja, hönnun, ferðalög og góður matur
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er gift Sigurði E. Þorsteinssyni og á
þrjú börn: Tómas Árna, Gísla Snæ og Sigríði Lilju.
HIN HLIÐIN