Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 6

Morgunblaðið - 19.04.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018SJÁVARÚTVEGUR Vélasalan rekur viðurkennt þjónustu- verkstæði fyrir Cummins á Íslandi Varahlutir í allar gerðir Cumminsvéla. Snögg og áreiðanleg þjónusta. Verkstæðið er opið 8-17 virka daga Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Margar stærðir og gerðir af land og sjó rafstöðvum án eða í húsi frá Cummins. RAFSTÖÐVAR BÁTAVÉLAR Umhverfisvottaðar vélar í hæsta gæðaflokki Cummins – KRAFTUR – ENDING – ÁREIÐANLEIKI Versluniner opin 8-18virka daga Eigum nmargar stærðir og gerðir af bátavélum frá Cummins. Sparneytinn og áhugaverður valkostur Sími 520 0000 Verðið kemur á óvart, leitið tilboða. „Eitt af stærstu verkefnum Sjávar- klasans hefur verið að tengja saman fyrirtæki og stofnanir á sameigin- legum vettvangi sem helgaður er samgöngum og flutningum í land- inu. Í gegnum þá vinnu kom fljót- lega í ljós hve mikilvægt er að þessi hópur tali saman og að litið sé á samgöngumál sem eina heild þar sem allir eiga sameiginlega hags- muna að gæta. Þannig skiptir miklu fyrir flug að hafnirnar séu góðar, og mikilvægt fyrir hafnirnar að öflugar flugsamgöngur séu til og frá land- inu.“ Hafa nýtt tækifærin Þetta segir Þór Sigfússon hjá Sjávarklasanum en þar var efnt til fundar fyrr í vikunni þar sem hags- munaaðilar ræddu tækifæri og áskoranir í samgöngumálum. „Fundurinn var umfram allt hugs- aður til hugflæðis, þar sem leitast var við að svara stóru spurningunni um hvernig mætti bæta samkeppn- ishæfni flutningaþjónustu á Íslandi og þar með samkeppnishæfni þjóð- arinnar,“ segir Þór. Sjávarútvegurinn reiðir sig mjög á góðar samgöngur innanlands sem og greiðar flutningaleiðir út í heim með skipum og flugvélum. „Það samgöngukerfi sem við búum við í dag hefur nú þegar gefið íslenskum sjávarútvegi ákveðið samkeppnis- forskot sem mætti samt nýta bet- ur,“ segir Þór og bendir á hvernig fiskútflytjendur hafa t.d. verið dug- legir að sækja inn á nýja markaði fyrir ferskar sjávarafurðir sem hafa opnast með flugtengingum við fleiri áfangastaði. „Við höfum svo sann- arlega notið góðs af því að vera með mun betri tengingar við umheiminn en flest önnur lönd af sömu stærð.“ Mætti fljúga fiskinum beint til neytenda? En hvernig gæti framtíðin litið út fyrir sjávarútveginn, ef mörkuð verður skynsamleg stefna í sam- göngumálum? Þór nefnir sem dæmi að tengingarnar við umheiminn gætu hugsanlega boðið upp á að neytendur í útlöndum panti sér ferskan fisk yfir netið og fái sendan með fyrstu vél beint frá Íslandi og heim að dyrum, án þess að hafa við- komu í stórmarkaði. Nýjar og öfl- ugri dreifileiðir gætu líka þýtt að sjávarútvegurinn ætti samleið með stórum seljendum á borð við Ama- zon Fresh eða Blue Apron sem senda matvæli heim til fólks. „Við eigum mun tæknivæddari sjávar- útveg en flestar aðrar þjóðir, getum gengið frá vörunni alveg eftir ósk- um viðskiptavinarins og sent úr landi í fallegum neytendapakkn- ingum,“ segir Þór. „Ekki er nóg með að við höfum fengið aðgang að fleiri stöðum með öflugu leiðakerfi skipafélaga og stækkandi leiðakerfi flugfélaganna, heldur höfum við líka getuna til að skaffa hágæðahráefni árið um kring, sem er það sem stór- ir söluaðilar á netinu krefjast.“ Bendir Þór á að mikið og stöðugt framboð af fiski þýði að með nægi- lega góðum tengingum við umheim- inn geti íslenskur sjávarútvegur staðið betur að vígi á stöðum eins og Bandaríkjamarkaði en seljendur sem eiga greiðari leið inn á mark- aðinn en geta ekki tryggt nægilegt vöruframboð. „Þetta barst í tal þeg- ar ég ræddi við útgerðarmenn við Mexíkóflóa á síðasta ári, en þá höfðu stórar bandarískar netversl- anir leitað til þeirra eftir hráefni. Þær viðræður strönduðu á að ekki var nægileg samstaða á meðal út- gerðarfyrirtækjanna um að tryggja viðunandi hráefnisframboð allan ársins hring. Eitt af okkar stærstu trompum hér á Íslandi er að geta þjónustað jafnvel allra stærstu við- skiptavini hnökralaust, á öllum árs- tímum.“ Góðar samgöngur gefa sjávarútvegi samkeppnisforskot Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í framtíðinni gætu neyt- endur í útlöndum kannski pantað íslenskan fisk yfir netið, alveg milliliðalaust, og fengið hann sendan beint heim að dyrum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vigri siglir út úr Reykjavíkurhöfn. Greiðar samgöngur hafa haft mikið að segja fyrir árangur sjávarútvegsins. Morgunblaðið/RAX Þór Sigfússon bendir á að þegar saman fara góðar tengingar við erlenda markaði og stöðugt framboð af fiski standi mörg tækifæri til boða. Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxa- flóahafna, var meðal þátttakenda á umræðufundi Sjávarklasans. Hann segir tímbært að taka samgöngu- áætlun til endurskoðunar. „Nú eru liðin liðlega tíu ár síðan í fyrsta skipti voru samþykkt lög um sam- gönguáætlun, og var það mjög já- kvætt skref. En nú er kominn tími til að skerpa enn frekar á mark- miðasetningu áætlunarinnar, m.a. með það fyrir augum að láta að- skilda samgönguinnviði vinna bet- ur saman,“ segir hann. „Ætti um leið að líta á uppbyggingu á sam- göngusviðinu sem tækifæri til hag- vaxtar, frekar en bara sem fjárfrekt vandamál sem þurfi að leysa.“ Gísli bendir á að það skapi strax ákveðið vandamál að ábyrgð á samgöngumannvirkjum dreifist mjög víða. „Vegakerfið er meira og minna á hendi ríkisins, flugið er aftur á móti í opinberu hlutafélagi og sveitarfélögunum hefur verið falin uppbygging og rekstur hafn- anna. Bæði þarf að samræma ákveðna hluti innan þessa stóra hóps, þegar teknar eru ákvarðanir um framtíð samgöngumála, og einnig þurfa fleiri að koma að borðinu og leggja sitt af mörkum við gerð bættrar samgönguáætl- unar.“ Hvað hafnamálin snertir segir Gísli að reikna megi með að sigl- ingar í Norðurhöfum muni aukast mikið á komandi árum og áratug- um og dýrmæt tækifæri fólgin í því að byggja upp hafnarmannvirki sem gætu þjónustað umferð flutn- ingaskipa umhverfis Ísland. „En það er líka ljóst að allir þeir 36 hafnarsjóðir sem eru núna starf- ræktir á Íslandi munu seint hafa burði til að taka á móti þessari skipaumferð og væri skynsamleg- ast að hafa framtíðarstefnu um uppbyggingu ákveðinna lands- hlutahafna sem gætu þjónað þessu hlutverki,“ segir hann og bendir á að samanlagt hafi hafn- irnar um 8-9 milljarða í tekjur og því ljóst að afgangur af rekstri þeirra muni seint nægja til að standa undir mikilli uppbyggingu. „Frekar en að líta á þannig á að hafnir séu bundnar tilteknum sveitarfélagamörkum ætti að líta þannig að þær þjóni heilu land- svæði, þar sem hafnir, vegakerfi og flugvellir spila saman til að skapa sterkari búsetuskilyrði og skila um leið samfélaginu arði,“ segir hann. „Það er mikilvægt að fleiri hafnir geti tekið þátt í inn- og útflutningi frá landinu, en líka að ávinningurinn sé ekki bara sam- félagslegur heldur að þessi mann- virki skili þjóðfélaginu nægilegum arði af þeim fjármunum sem til þeirra er varið.“ Tímabært að skerpa á samgönguáætlun Gísli vill sjá að því stefnt að samgönguinnviðir vinni enn betur saman. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.