Morgunblaðið - 19.04.2018, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018 9FRÉTTASKÝRING
Þjónustan sem Rimmer talar um er veitt í
gegnum margvíslega nema og myndavélar sem
samstarfsfyrirtæki Alarm.com eða viðskiptavin-
irnir sjálfir setja upp á heimilum sínum. Dyra-
skynjarar, þrýstinemar í rúmum og sófum,
dyrasímamyndavélar, vatnsnemar og hreyfan-
legar myndavélar í almannarýmum, eins og í
stofunni til dæmis. Til að kynnast þessu nánar
var blaðamanni boðið í heimsókn í sérstakt
snjallhús Alarm.com í Washington, ekki langt
frá höfuðstöðvum fyrirtækisins. Snjallhúsið er
innréttað eftir kúnstarinnar reglum og var ekki
laust við að manni þætti dálítill framtíðarbragur
á hlutunum, enda er þarna nánast allt vaktað og
skráð sem hugsast getur, til hagsbóta og aukins
öryggis fyrir íbúa. Að auki hefur Alarm.com
með samningi við Apple, Amazon Alexa og Go-
ogle Home gert fólki kleift að tala við heim-
ilistækin í húsinu.
„Samstarfsaðilar eins og Securitas á Íslandi
eru fullkomnir fyrir okkur. Þetta eru fyrirtæki
sem eru með öryggismálin í forgrunni, og eru
núna byrjuð að nota Alarm.com-grunnkerfið til
að víkka sína þjónustu út í aukna sjálfvirkni,
vídeóvöktun, snjalllýsingu og hitt og þetta
skemmtilegt, eins og sjá má í snjallhúsinu. En
allt er þetta grundvallað á öryggisþjónustu fyrir
fólk og fyrirtæki. Securitas er samstarfsaðili
eins og við viljum að samstarfsaðilar okkar
séu.“
Rimmer rekur í stuttu máli sögu Alarm.com
með blaðamanni, en fyrirtækið var stofnað af
upplýsingatæknifyrirtækinu MicroStrategy.
„Þó að fyrirtækið hafi upprunalega, undir sínu
gamla nafni, ekki snúist beint um viðvörunar-
boð og öryggismál, þá hefur fyrirtækið frá upp-
hafi snúist um gögn. MicroStrategy var gagna-
fyrirtæki, og hugmyndin þá, rétt eins og nú,
gekk út á hvernig hægt væri að draga saman
gögn sem í dag streyma frá öllum nemunum og
myndavélunum, og búa til úr þeim verðmæti.
Það sem fólk sér utan frá í dag er þetta alþjóð-
lega snjallfyrirtæki sem Alarm.com er, með
þessar frábæru öryggislausnir sem stýrt er í
gegnum smáforrit í snjallsímanum, en undir
niðri er gríðarlegt magn gagna og allt snýst um
þau.“ Rimmer segir að öll gögn úr nemum
Alarm.com skráist í gagnagrunn fyrirtækisins,
hvort sem það eru gögn frá hreyfi-, þrýsti- eða
hitaskynjurum, sem og gögn frá myndavélum,
myndbandsupptökuvélum og hljóð. „Þetta skrá-
ist allt, en auðvitað er þetta allt nafnlaust og
dulkóðað. Þetta gefur okkur hinsvegar gríð-
arlegt magn af upplýsingum til að vinna úr, og
hjálpar okkur að sjá hvað það er sem fær við-
skiptavininn til að vilja halda áfram viðskiptum
við okkur. Upplýsingarnar nýtast svo sam-
starfsaðilum okkar til að vinna sína markaðs-
vinnu, eins og til dæmis hvaða þjónustu væri
sniðugt að bæta við hjá viðskiptavini svo hann
haldi áfram í viðskiptum. Við erum núna að
vinna með uppsöfnuð gögn frá samtals 18 árum,
og viðskiptavinir eru um sex milljónir talsins.“
90% halda áfram ef ráðum er fylgt
David Rimmer segir að fyrirtækið hafi skil-
greint sex atriði sem hjálpi samstarfsaðilum að
halda áskrifendum í viðskiptum. Að passa að
hafa rétt netfang er til dæmis eitt þeirra, annað
er að kveikja á staðsetningarþjónustu í síman-
um. „Ef viðskiptavinir nota þessa sex hluti þá
lækkar hlutfall þeirra sem hætta í viðskiptum
gríðarlega mikið. Við gerðum úttekt á því í
Bandaríkjunum að á fjögurra ára tímabili
myndu 50% viðskiptavina hætta á endanum ef
þeir gera ekkert af þessum sex hlutum, þar sem
þeir myndu ekki að fá nægt virði út úr þjónust-
unni. En ef þeir gera alla sex hlutina, þá munu
90% viðskiptavina halda áfram í viðskiptum.
Þetta er eitt af þeim „verkfærum“ sem við bjóð-
um samstarfsaðilum okkar, til að hjálpa þeim að
viðhalda sínum viðskiptum. Þetta dregur veru-
lega úr uppsögnum þjónustunnar.“
Eins og rakið er hér annars staðar á síðunni
þá er félagið 18 ára gamalt og hefur vaxið
ævintýralega frá stofnun. Eins og Rimmer
bendir á tók það félagið 10 ár að ná einni milljón
viðskiptavina, en eftir það tók það félagið sjö ár
að ná sex milljónum viðskiptavina. „Vöxturinn
er mjög hraðar, kúrfan er eins og íshokkíkylfa í
laginu.“
Rimmer segir að tæknilega hafi hraður vöxt-
urinn verið áskorun fyrir félagið, þar sem ráð-
ast hafi þurft í breytingar á tæknilegri grunn-
gerð. „Við þurftum að færa allt yfir í sýndar-
umhverfi til að styðja við vöxtinn og vera
„teygjanlegri“.“ Árið 2016 voru skráðar að sögn
Rimmer 30 milljarðar gagnasendinga frá áskrif-
endum kerfisins. Ein milljón boða komu á 15
mínútna fresti og sjö milljónir atvika voru
skráðar þar sem kerfi var sett á vörð og tekið
af verði á hverjum einasta degi.
Halloween stærsti dagurinn
Til gamans má geta þess að sá dagur ársins
þar sem flest boð berast frá Alarm.com-
snjallöryggiskerfum er hrekkjavakan, enda er
það sá dagur þar sem stöðugur straumur
barna er að útihurðum Bandaríkjamanna. Þá
taka dyrabjöllumyndavélarnar við sér og senda
boð í hvert skipti sem einhver nálgast. Fjöldi
boða er 10-12 sinnum meiri þann dag en aðra
daga ársins, og Alarm.com þarf að fjórfalda
tæknilega getu sína á meðan þetta gengur yfir,
að því er Alex Freias, tæknilegur fram-
kvæmdastjóri félagsins, sagði frá á kynningu.
Einn áhugaverður vinkill á snjalllausnum
eins og Alarm.com býður er það sem snýr að
heilsu og umönnun (Wellness). Til útskýringar
nefnir Rimmer þrýstinema undir rúmum.
Neminn skynjar breytingu á þrýstingi, til
dæmis ef amma eða afi fara á klósettið um
miðja nótt. Ef neminn skynjar ekki aðra breyt-
ingu fljótlega, segir það að viðkomandi hafi
ekki skilað sér aftur í rúmið, sem er þá vís-
bending um að eitthvað sé mögulega ekki eins
og það á að vera.
„Mörg fyrirtæki notfæra sér ekki þessar
gagnasendingar, heldur hlusta bara á viðvör-
unarboð. Við notum gögnin til að búa til nýja
þjónustu.“
Rimmer segir að samstarfsaðilar fyrirtæk-
isins alþjóðlega séu misstórir, en sumir bæti
við sig áskrifendum á ógnarhraða. „Við erum
með nokkra samstarfsaðila hér í Bandaríkj-
unum sem bæta við sig hundruðum þúsunda
viðskiptavina á ári. Þess vegna þurfum við að
vera tæknilega tilbúin að taka við slíkum fjölda
gagnasendinga á mjög skömmum tíma. Við er-
um til dæmis með einn samstarfsaðila hér rétt
fyrir utan Washington sem bætir við sig um 10
þúsund nýjum áskrifendum á mánuði.“
Þó að skilja megi á þessari grein að þeir sem
kaupi sér snjalllausnir frá Securitas með
undirliggjandi tækni Alarm.com noti Al-
arm.com-viðmótið, þá er Alarm.com hvergi sjá-
anlegt á yfirborðinu. „Þó að smáforritið sé frá
okkur, þá er það alltaf útlit viðkomandi sam-
starfsaðila sem er lagt ofan á, sem er Sec-
uritas í þessu tilfelli. Við erum eins og Intel-
örgjörvinn sem keyrir tölvurnar í bakgrunn-
inum.“
Forstjóri áhugasamur um Ísland
Þó að Ísland sé lítill markaður, þá er greini-
lega engu minna púðri eytt í samstarfið við
íslenska samstarfsaðilann en aðra. Í heim-
sókninni til höfuðstöðvanna var heill dagur
tekinn undir margvíslega undirbúningsfundi,
með háttsettum yfirmönnum félagsins.
„Öll lönd eru mikilvæg fyrir okkur, lítil og
stór. Ísland er auðvitað lítill markaður, en
samt góður. Þar búa hundruð þúsunda manna
og öryggi heldur áfram að vera mikilvægt, og
mestu skiptir að ná samningi við fyrirtæki
sem vill víkka út öryggisstarfsemi í snjallari
heimi. Forstjórinn okkar [Stephen Trundle]
er mjög áhugasamur um Ísland,“ segir Rim-
mer.
Alarm.com færir sig nú hægt og rólega til
Evrópu, sem og fleiri landa og heimsálfa. Eins
og Rimmer bendir á þá vill forstjórinn „mála
heiminn appelsínugulan“, þ.e. í einkennislit
Alarm.com.
Spurður um næstu skref fyrir Alarm.com
alþjóðlega, segir Rimmer að fyrirtækið búi að
traustum viðskiptum í Bandaríkjunum, þar
sem fyrirtækið sé leiðandi, og meira en eitt af
hverjum tveimur nýjum öryggiskerfum sem
tengd eru þar í landi sé tengt við Alarm.com.
„Alþjóðlega teymið okkar hefur vaxið hratt
á síðustu 2-3 árum. Fyrir þremur árum vorum
við rúmlega 10 en við erum um 30 í teyminu
núna.“
Nú þegar hefur Alarm.com náð góðri fót-
festu í löndum eins og Ástralíu, Portúgal,
Nýja-Sjálandi, Suður-Afríku, Suður-Ameríku
og Tyrklandi, sem og í Kanada. Næst á dag-
skrá er að fara inn í APAC-löndin, þ.e. Suður-
og Suðaustur Asíu.
Rimmer nefnir einnig Benelux-löndin, sem
og Norðurlönd, Írland og Spán, en fyrirtækið
er að byggja upp starfsstöð og gagnaver í
Amsterdam í Hollandi til að styðja við þessa
uppbyggingu. Þá er önnur aðalskrifstofan í
Madrid á Spáni.
Morgunblaðið / Þóroddur Bjarnason
heiminn appelsínugulan
Í snjallhúsi Alarm.com í Washington er eftirlitið
tekið á annað stig með þrýstinemum í rúmum,
myndavélum inni og úti, vatns- og hitaskynj-
urum, snjalllásum og samtengingu við Alexa
og Google Home svo eitthvað sé nefnt.
David Rimmer segir skemmtilega sögu af
uppruna Alarm.com. „Þegar internetbólan
stóð sem hæst um síðustu aldamót keypti
gagnagraftar (e. data mining) fyrirtækið
MicroStrategy fullt af fimm stafa vefslóðum,
og þar á meðal var Alarm.com og Angel-
.com. Félagið lét ungt fólk sem kom til starfa
hjá fyrirtækinu fá vefslóðirnar og fól því það
verkefni að finna góða viðskiptahugmynd
sem byggðist á slóðinni,“ segir Rimmer.
Hann segir að þrjú verkefni hafi komist vel
á legg, en allt í allt var um 50 vefslóðum út-
deilt. „Alarm.com hefur náð lengst.“
Angel.com varð einnig stórt fyrirtæki í
fjarskiptatækni, en var á endanum yfirtekið
af Genesys og heitir núna Genesys Cloud.
Alarm.com óx hægt en örugglega fyrstu
árin, en kippur kom í vöxtinn eftir að fram-
takssjóðurinn ABS Capital Partners keypti
fyrirtækið í febrúar árið 2009 á 27,7 milljónir
bandaríkjadala. Félagið var síðan skráð á
hlutabréfamarkað árið 2015.
Gengi félagsins á Nasdaq er í dag 43 dalir
á hlut, og heildarmarkaðsvirðið er tæpir
tveir milljarðar dala, um 200 milljarðar
króna.
Nýir starfsmenn fengu 50 vefslóðir til að spreyta sig á
Ljósmynd / Ólafur Friðrik Sigvaldason
Útboðsgengi Alarm.com á Nasdag árið 2015 var 14 dalir á hlut, en er nú 43 dalir á hlut.