Morgunblaðið - 19.04.2018, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2018SJÓNARHÓLL
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
HARI
Allur alþjóðlegur samanburður ber með sér aðefnahagsástand á Íslandi er með því besta semþekkist. Á undanförnum árum hafa laun og
kaupmáttur hækkað mun meira hér á landi en í þeim
löndum sem við berum okkur helst saman við. Það kann
að koma á óvart að laun á vinnustund eru hærri hér á
Íslandi en í Danmörku, Þýskalandi og meira að segja
Noregi. Eina landið sem býður hærri laun en Ísland um
þessar mundir er Sviss.
Það eru mikil lífsgæði fólgin í því að búa í samfélagi
þar sem laun eru að jafnaði góð og lífsgæði mikil. Þetta
er sameiginlegt keppikefli bæði vinnuveitenda og laun-
þega, og á grundvelli þessa
sameiginlega skilnings hefur
mikill árangur náðst í kjara-
málum á undanförnum ára-
tugum.
Í aðdraganda komandi
kjaraviðræðna hlýtur það að
vera markmið allra að standa
vörð um þá góðu stöðu sem
náðst hefur. Enn fremur eru
miklir samfélagslegir hags-
munir fólgnir í því að tryggja
að samkeppnisumhverfi íslensks atvinnulífs sé gott, því
að öll verðmætasköpun framtíðarinnar byggist á því að
íslensk fyrirtæki standist alþjóðlega samkeppni.
Nú heyrast háværar raddir vinnuveitenda um erfið-
leika vegna hárra launagjalda og aukinnar erlendrar
samkeppni. Þessar áhyggjur kunna að koma ýmsum á
óvart í ljósi þess hversu gott efnahagsástandið er. En
þær eru raunverulegar og í þeim felast alvarleg viðvör-
unarmerki fyrir íslenskt samfélag. Fyrirtækin í landinu
sjá einfaldlega ekki fram á að geta borið kostnaðinn af
þeim launahækkunum sem krafist er.
Í þessu samhengi þarf að líta til þess að kostnaður
atvinnurekanda af því að hækka laun starfsmanns er
mun meiri en hin raunverulega kjarabót sem launþeginn
hlýtur. Til að vinnuveitandi geti greitt 500 þúsund krón-
ur í mánaðarlaun þarf hún að leggja út um 740 þúsund
krónur, þar sem bæði þarf að greiða tryggingagjald og
mótframlag til lífeyris sem nemur um 120 þúsund af
þessari upphæð. Því til viðbótar njóta starfsmenn orlofs-
réttinda og annarra fríðinda sem má áætla í þessu dæmi
að séu um 120 þúsund kr. Ef við hugsum dæmið alla leið,
og tökum inn í myndina skattbyrði launþegans, blasir við
sú mynd að hann fær einungis útborgaðar um 350 þús-
und krónur. Það er því ekki nema rétt þriðjungur af
heildarlaunakostnaði sem á endanum skilar sér í vasa
launþegans.
Það er dýrt að hækka laun á Íslandi. Of hár launa-
kostnaður mun á endanum bitna harkalega á sam-
keppnishæfni landsins. Því miður er staðreyndin sú að
Ísland verður æ oftar undir vegna óhagstæðra ytri
rekstrarskilyrða. Íslensk verk-
fræðistofa lenti til að mynda í því
nýverið að vera undirboðin af
norskri verkfræðistofu. Þegar
stjórnendur grennsluðust fyrir um
hvernig á þessu gæti staðið þar
sem launakostnaður í Noregi er
hár kom á daginn að meirihluti
starfsmannanna er í Austur-
Evrópu, þar sem laun eru umtals-
vert lægri, en verkstjórnunin fer
fram í Noregi. Þetta dæmi sýnir
að veruleg hætta er á því að verðmæt og vel launuð störf,
jafnvel hátæknistörf, flytjist smám saman úr landi ef
ekki er hugað að samkeppnisskilyrðum atvinnulífsins.
Ef við viljum ýta undir nýsköpun hér á landi og laða að
fremur en fæla frá fyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni
þurfum við að huga vandlega að því hvernig hægt er að
tryggja að íslensk fyrirtæki geti greitt alþjóðlega sam-
keppnishæf laun án þess að það raski undirstöðum
rekstrarins. Ein leið er að draga úr þeim mismun sem er
milli útborgaðra launa og launakostnaðar vinnuveitenda
með lækkun launatengdra skatta (tryggingagjalds,
tekjuskatts og útsvars). Þar duga skammt áform ríkis-
stjórnarinnar um að lækka tryggingagjaldið úr 6,85% í
6,60%.
Umfram allt þarf þó að líta raunsæjum augum á það
svigrúm sem íslenskt atvinnulíf hefur til launahækkana,
og stefna ekki í voða þeirri öfundsverðu stöðu sem Ísland
er í.
VIÐSKIPTALÍF
Ásta Fjeldsted
framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs
Það er dýrt að hækka
laun á Íslandi
”
Veruleg hætta er á því að
verðmæt og vel launuð
störf, jafnvel hátækni-
störf, flytjist smám saman
úr landi ef ekki er hugað
að samkeppnisskilyrðum
atvinnulífsins.
VEFSÍÐAN
Því miður þarf atvinnulífið að búa
við tíðar breytingar á lögum og
reglugerðum. Löggjafinn er iðinn
við kolann og ekki auðvelt fyrir
stjórnendur að henda reiður á því
hverju sinni hvað má og má ekki.
Verður samt að vera með á nótunum
enda mjög dýrt ef lögin eru brotin –
jafnvel þótt það sé alveg óvart.
Legislation Watch (legislation-
watch.co) er ný þjónusta sem hjálp-
ar fyrirtækjum að vakta lagabreyt-
ingar bæði í Bandaríkjunum og
ESB.
Notendur geta tilgreint hvaða
svið þeir vilja láta vakta og fengið
tilkynningar bæði þegar nýjar regl-
ur taka gildi og þegar lagabreyt-
ingar eru til skoðunar. Legislation
Watch gefur líka út ársfjórðungs-
skýrslur um áhrif nýrra og vænt-
anlegra lagabreytinga á tilteknar at-
vinnugreinar, og gefur stjórnendum
ráð um hvaða aðgerða fyrirtæki
þeirra þurfa að grípa til til að full-
nægja skilyrðum laganna.
Legislation Watch er í beta-
útgáfu eins og stendur og liggur
ekki fyrir hvað þjónustan mun
kosta. ai@mbl.is
Ekki láta lagabreyting-
ar fram hjá þér fara